Vilji löggjafans að almenningur hafi rétt til upplýsinga um starfsmannamál RÚV

Rík­is­út­varpið mun þurfa að veita almenn­ingi upp­lýs­ingar um starfs­manna­mál sín rétt eins og um stjórn­vald væri að ræða, sam­kvæmt nýju laga­frum­varpi sem mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur lagt fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Stjórn Ríkisútvarpsins neitaði að gefa upp hverjir það voru sem sóttust eftir starfi útvarpsstjóra í fyrra, en það var þvert á vilja löggjafans, samkvæmt nýju frumvarpi menntamálaráðherra.
Stjórn Rík­is­út­varps­ins neit­aði að gefa upp hverjir það voru sem sótt­ust eftir starfi útvarps­stjóra í fyrra, en það var þvert á vilja lög­gjafans, sam­kvæmt nýju frum­varpi mennta­mála­ráð­herra. Mynd: RÚV

Ákvæði upp­lýs­inga­laga um upp­lýs­inga­rétt almenn­ings varð­andi mál­efni opin­berra starfs­manna munu ná yfir upp­lýs­inga­gjöf hjá Rík­is­út­varp­inu, en það hefur reyndar alltaf verið vilji lög­gjafans, sam­kvæmt því sem fram kemur í nýjum frum­varps­drögum sem Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur lagt fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Frum­varpið er sett fram til þess að bregð­ast við ábend­ingum frá umboðs­manni Alþingis. Þær komu fram vegna kvört­unar sem umboðs­manni barst í kjöl­far þess að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber 2019 að Rík­is­út­varpið þyrfti ekki segja frá því hverjir sóttu um starf útvarps­stjóra.

Blaða­maður Vísis óskaði eftir þeim upp­lýs­ingum, en fékk ekki, eins og frægt varð og umrætt í sam­fé­lag­inu á meðan ráðn­ing­ar­ferlið stóð yfir. Stjórn RÚV bar fyrir sig að ráð­gjafar í ráðn­inga­málum hefðu mælt með því að þessar upp­lýs­ingar yrðu ekki veittar, til þess að fæla ekki hæfa umsækj­endur frá.

Frumvarp Lilju er til breyt­inga á lögum um Rík­is­út­varpið, nánar til­tekið 2. mgr. 18. gr. lag­anna, en þar segir ein­fald­lega í dag að upp­lýs­inga­lög gildi um starf­semi Rík­is­út­varps­ins.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál sagði í úrskurði sínum frá því í fyrra að ekki væri unnt að túlka ákvæðið á þann veg að það veitti almenn­ingi rétt til aðgangs að gögnum um mál­efni starfs­manna hjá Rík­is­út­varp­inu og áleit að sér­reglur upp­lýs­inga­laga um lög­að­ila í opin­berri eigu ættu að eiga við í stað­inn.

Upplýsingalög gildi um RÚV eins og um stjórnvald sé að ræða

Það var aldrei vilji lög­gjafans, sam­kvæmt því sem fram kemur í þessu nýja frum­varpi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Þar er rakið að þegar ný lög um Rík­is­út­varpið og ný upp­lýs­inga­lög tóku gildi á 141. lög­gjaf­ar­þingi, vet­ur­inn 2012-2013, skap­að­ist laga­leg óvissa um hvort almenn­ingur ætti rétt til upp­lýs­inga um mál­efni starfs­manna Rík­is­út­varps­ins, sem reyndi reyndar ekk­ert á fyrr en árum seinna.

Í grein­ar­gerð með frum­varpi Lilju segir að ljóst sé að þegar lög­unum um Rík­is­út­varpið var breytt þing­vet­ur­inn 2012-2013 hefði það verið vilji Alþingis að láta ákvæði upp­lýs­inga­laga áfram gilda um starf­semi Rík­is­út­varps­ins líkt og um stjórn­vald væri að ræða.

Því er lagt til í frum­varps­drögum ráð­herra að þegar aðrar tak­mark­anir á upp­lýs­inga­rétti almenn­ings eigi ekki við þurfi Rík­is­út­varpið að veita upp­lýs­ingar um eft­ir­talin atriði sem varði starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins:

  1. nöfn og starfs­heiti umsækj­enda um starf, þegar umsókn­ar­frestur er lið­inn,
  2. nöfn starfs­manna og starfs­svið
  3. föst launa­kjör ann­arra starfs­manna en æðstu stjórn­enda,
  4. launa­kjör æðstu stjórn­enda,
  5. áherslur og kröfur um árangur í starfi æðstu stjórn­enda sem fram koma í ráðn­ing­ar­samn­ingi eða öðrum gögnum og upp­lýs­ingar um menntun þeirra.

Upp­lýs­ingar um við­ur­lög í starfi sem æðstu stjórn­endur hafa sætt skulu einnig vera veittar, þar á meðal vegna áminn­inga og brott­vís­ana, ef ekki eru liðin meira en fjögur ár frá þeirri ákvörðun sem um ræðir.

Ávinningur af auknu gagnsæi í starfseminni

Í grein­ar­gerð segir að frum­varpið feli í sér skýr­ari upp­lýs­inga­rétt almenn­ings er varðar mál­efni Rík­is­út­varps­ins og taki af skarið um að réttur almenn­ings nái til upp­lýs­inga um mál­efni starfs­manna Rík­is­út­varps­ins líkt og um starfs­menn stjórn­valda í skiln­ingi upp­lýs­inga­laga. Þetta er sagt til þess fallið að auka gagn­sæi í starf­semi Rík­is­út­varps­ins.

Sér­stak­lega er tekið fram að ekki sé talið að frum­varpið skerði frið­helgi einka­lífs starfs­manna Rík­is­út­varps­ins umfram kröfur sem gerðar eru til slíkrar skerð­ingar sam­kvæmt stjórn­ar­skrá og mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.

„Rík­is­út­varpið er þjóð­ar­mið­ill og starf­rækir fjöl­miðla­þjón­ustu í almanna­þágu. Það er því aug­ljós ávinn­ingur af því að auka gegn­sæi í starf­semi þess og að réttur almenn­ings til aðgangs að upp­lýs­ingum um hana sé ríkur,“ segir í nið­ur­lagi grein­ar­gerð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

upplýsingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár