Borgarbyggð skikkuð til að afhenda íbúa endurskoðunarskýrslu

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur skikkað Borg­ar­byggð til þess að afhenda íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu skýrslu sem KPMG vann fyrir sveit­ar­stjórn­ina undir lok síð­asta árs. Oddviti minni­hluta sveit­ar­stjórnar segir það hið besta mál.

Meirihluti sveitarstjórnar í Borgarbyggð neitaði að láta íbúa hafa skýrslu sem KPMG vann um fjárhagsmálefni sveitarfélagsins.
Meiri­hluti sveit­ar­stjórnar í Borg­ar­byggð neit­aði að láta íbúa hafa skýrslu sem KPMG vann um fjár­hags­mál­efni sveit­ar­fé­lags­ins. Mynd: Wikimedia Commons/Anjali Kiggal

Sveit­ar­fé­lag­inu Borg­ar­byggð hefur verið gert að veita íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu aðgang að skýrslu sem end­ur­skoð­enda­svið KPMG vann og skil­aði til sveit­ar­stjóra um skoðun á innra eft­ir­liti og fjár­hags­kerfi árs­ins 2020 hjá sveit­ar­fé­lag­inu.

Þessari nið­ur­stöðu komst úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál (ÚNU) að fyrr í mán­uð­inum eftir að hafa tekið málið til með­ferðar, en sveit­ar­stjórnin hafn­aði í upp­hafi árs að láta skýrsl­una af hendi og sagði að hún ætti að telj­ast vinnu­skjal í skiln­ingi upp­lýs­inga­laga og gæti auk þess inni­haldið upp­lýs­ingar um ein­staka starfs­menn og annað sem féllu undir per­sónu­vernd.

Guðveig Lind Eygló­ar­dóttir odd­viti Fram­sókn­ar­flokks í sveit­ar­stjórn and­mælti þess­ari nið­ur­stöðu meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar og óháðra á byggð­ar­ráðs­fundi í jan­úar og lét bóka í fund­ar­gerð við það til­efni að hún teldi „óásætt­an­legt“ að ekki væri hægt að greina frá helstu veik­leikum og ábend­ingum sem sveit­ar­fé­lag­inu hefði borist og til­lögum að úrbótum. Eðli­leg­ast væri að byggð­ar­ráð myndi greina íbúum í meg­in­at­riðum hverjar athuga­semd­irnar væru.

Hún segir við Kjarnann, nú þegar nið­ur­staða í þessu kæru­máli liggur fyrir, að á tímum eins og í dag þegar mikið sé talað um opna stjórn­sýslu, hefði henni þótt „mjög sér­stakt“ að meiri­hlut­inn hefði staðið fast á að birta ekki skýrsl­una.

Þá afstöðu telur hún skýr­ast af því að upp­lýs­ing­arnar sem finna hafi mátt í skýrsl­unni hafi ekki komið vel út fyrir meiri­hlut­ann og lýsir því að upp hafi komið hálf­gert „Bragga­mál í Borg­ar­byggð“ við fram­kvæmdir við grunn­skól­ann í Borg­ar­nesi og fleiri fram­kvæmda­verk­efni í sveit­ar­fé­lag­inu.

„Það er miklu betra að deila vanda­mál­unum með íbúum í stað­inn fyrir að reyna að hylma yfir þau,“ segir Guðveig Lind. Hún segir það „hið besta mál“ að úrskurð­ar­nefndin hafi nú skikkað sveit­ar­fé­lagið til að láta skýrsl­una af hendi til íbú­ans, rúmu hálfu ári eftir að óskað var eftir henni.

Betra sé að hafa allt uppi á borðum, ekki síst fyrir starfs­menn sveit­ar­fé­lags­ins, því ef út spyrj­ist að ekki megi veita ein­hverjar upp­lýs­ingar sem snerta störf þeirra fari íbúar í sveit­ar­fé­lag­inu ef til vill að draga sínar eigin álykt­anir um málin.

Ekki mögulega vinnugagn

Samkvæmt úrskurði ÚNU, sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins í gær, getur skýrsla af þessu tagi ekki talist vinnu­gagn í skiln­ingi upp­lýs­inga­laga, þar sem hún upp­fyllir ekki það skil­yrði að hafa verið útbúin af stjórn­vald­inu sjálfu.

[adspot]

Úrskurð­ar­nefndin skoð­aði einnig hvort að í skýrsl­unni frá KPMG, sem var merkt sem „trún­að­ar­mál“ væru ein­hverjar trún­að­ar­upp­lýs­ingar sem gæfu ástæðu til þess að tak­marka aðgang að því á grund­velli ann­arra und­an­þágu­á­kvæða upp­lýs­inga­laga. Svo var ekki.

Nefndin segir að í skýrsl­unni sé að finna „almennar athuga­semdir og ábend­ingar um atriði sem fram hafa komið við end­ur­skoðun á reikn­ings­skilum sveit­ar­fé­lags­ins“ og „til­lögur að lausnum og við­brögðum við þeim“.

„Í skýrsl­unni er ekki sér­stak­lega fjallað um aðkomu nafn­greindra ein­stak­linga, starfs­manna eða stjórn­enda. Að mati úrskurð­ar­nefnd­ar­innar eru upp­lýs­ing­arnar sem þar koma fram því ekki þess eðlis að efni skýrsl­unnar telj­ist vera við­kvæmar upp­lýs­ingar sem lúta skuli trún­aði með vísan til þeirra hags­muna sem fram­an­greindum und­an­þágu­á­kvæðum er ætlað að vernda. Þvert á móti hefur skýrslan að geyma upp­lýs­ingar um rekstur sveit­ar­fé­lags­ins og þar með ráð­stöfun opin­bers fjár og hags­muna sem telja verður að almenn­ingur hafi almennt ríka hags­muni af því að kynna sér,“ segir í nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

upplýsingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár