Persónuverndarlög hindra ekki birtingu lista yfir fyrirtæki sem nýta hlutabótaleiðina

Per­sónu­vernd segir í svari til Vinnu­mála­stofn­unar að per­sónu­vernd­ar­lög gildi ekki um fyr­ir­tæki og því sé ekk­ert í þeim sem geri stofn­un­inni óheim­ilt að verða við beiðni um birt­ingu lista yfir þau fyr­ir­tæki sem nýtt hafa hluta­bóta­leið­ina.

Að mati Per­sónu­verndar er ekk­ert í lögum um per­sónu­vernd og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga sem kemur í veg fyrir að Vinnu­mála­stofnun birti eða afhendi upp­lýs­ingar um það hvaða fyr­ir­tæki hafa nýtt sér hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu.

Per­sónu­vernd tekur þó ekki afstöðu til þess hvort birt­ing þess­ara upp­lýs­inga sé lög­mæt, þar sem beiðni um birt­ingu þurfi að skoð­ast í ljósi upp­lýs­inga­laga. Þetta kemur fram í svari Per­sónu­verndar til Vinnu­mála­stofn­unar vegna bréfs sem Vinnu­mála­stofnun sendi á dög­unum.

Bréfið sendi stofn­unin eftir að for­ystu­fólk rík­is­stjórn­ar­innar lýsti því skyndi­lega yfir, í kjöl­far fjölda frétta um að stöndug fyr­ir­tæki væru að nýta sér hluta­bóta­leið­ina, að rétt­ast væri að gagn­sæi ríkti um hvaða fyr­ir­tæki hefðu nýtt sér þetta úrræði stjórn­valda um að semja við starfs­fólk um minnkað starfs­hlut­fall.

Vinnu­mála­stofnun sagði að hún teldi sig hvorki hafa heim­ild til að afhenda né birta slíkan lista, þar sem með slíkri birt­ingu yrði auð­velt að finna út nöfn þeirra starf­manna minni fyr­ir­tækja sem hafa fengið greiddar hluta­at­vinnu­leys­is­bætur í minnk­uðu starfs­hlut­falli.

Per­sónu­vernd telur að þrátt fyrir að mögu­lega yrði hægt að per­sónu­greina upp­lýs­ing­arnar, geti upp­lýs­ingar um það hvaða ein­stak­lingar eru í minnk­uðu starfs­hlut­falli ekki talist vera „við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar“ í laga­legum skiln­ingi.

Fram hefur komið sú hug­mynd að birta ein­ungis lista yfir stærri fyr­ir­tæki sem nýtt hafa hluta­bóta­leið­ina, til að kom­ast hjá því að upp­lýs­ing­arnar verði per­sónu­grein­an­legar. Vinnu­mála­stofnun spurði hvort þetta væri „nægj­an­leg aðgerð“ til að tryggja ekki væri unnt að per­sónu­greina ein­stak­linga.

Per­sónu­vernd telur að leggja verði til grund­vallar að almanna­hags­munir standi til þess að upp­lýs­ingar um hvaða fyr­ir­tæki hafa nýtt sér hluta­bóta­leið­ina verði gerðar aðgengi­legar og að lík­legt sé að til­gang­ur­inn, aðhald með fyr­ir­tækjum, „náist ekki fylli­lega“ verði fámenn fyr­ir­tæki und­an­skilin með öllu frá birt­ing­unni.

„Í því sam­bandi bendir Per­sónu­vernd á að ekki er alltaf sam­hengi á milli starfs­manna­fjölda fyr­ir­tækja og fjár­hags­legrar stöðu þeirra,“ segir í svari Per­sónu­verndar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár