Íbúi á hjúkrunarheimili í Bolungarvík lést vegna COVID-19

Karl­maður á níræð­is­aldri, íbúi á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík, lést í gær eftir að hafa smit­ast af COVID-19. Sex manns hafa nú lát­ist eftir að hafa smit­ast af sjúk­dómnum hér á landi.

Íbúi á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík lést í gær úr COVID-19. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða. Sex manns hafa nú lát­ist eftir að hafa smit­ast af sjúk­dómnum hér á landi.

Á vest­firska vef­miðl­inum Bæjarins besta segir að mað­ur­inn sem lést hafi heitið Gunn­steinn Svavar Sig­urðs­son. Hann var fæddur árið 1938.

Tveir íbúar á Bergi til við­bótar eru sýktir af sjúk­dómnum og þrír eru í ein­angrun og bíða nið­ur­stöðu úr sýna­töku. Fimm íbúar á hjúkr­un­ar­heim­il­inu eru í sótt­kví án ein­kenna.

Meiri­hluti fastra starfs­manna á hjúkr­un­ar­heim­il­inu eru í ein­angrun, þar af fimm með stað­fest smit. Aðrir fastir starfs­menn utan þriggja eru í sótt­kví og er heim­il­inu því sinnt nær ein­göngu af fólki úr bak­varða­sveit eða öðrum deildum stofn­un­ar­innar, sam­kvæmt til­kynn­ingu heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar.

Óskað hefur verið eftir bæði sjúkra­liðum og hjúkr­un­ar­fræð­ingum úr öðrum lands­hlutum til starfa á hjúkr­un­ar­heim­il­inu og einnig á bráða­deild Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða.

Slíkur liðs­afli hefur þegar borist úr bak­varða­sveit og von er á fleirum með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar seinna í dag, ef veður leyfir.

„Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða vottar aðstand­endum samúð. Starf­mönnum og heim­il­is­fólki óskum við skjóts bata og sam­fé­lag­inu þökkum við aðstoð og vel­vilja. Einnig þökkum við fólki sem boð­ist hefur til starfa á stofn­un­inni sem hluti af bak­varða­sveit,“ segir í til­kynn­ingu stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár