Um 75 þúsund Íslendingar náð í smitrakningarappið

Á mið­nætti höfðu yfir fimm­tíu þús­und manns hér á landi náð í smitrakn­ing­arappið, Rakning C-19. Í hádeg­inu höfðu 75 þús­und hlaðið app­inu niður í sím­ann sinn.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Lögreglan

Smitrakn­ing­arappið Rakning C-19 var gert aðgengi­legt í gær og við­brögðin hafa ekki látið á sér standa. Á mið­nætti höfðu yfir fimm­tíu þús­und manns hér á landi sótt appið og í hádeg­inu í dag höfðu 75 þús­und hlaðið app­inu niður í sím­ann sinn.

Alma Möller land­læknir þakk­aði sér­stak­lega fyrir við­tök­urnar á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Þessar við­tökur eru framar okkar vonum.“

Benti Alma á að fjöl­margir hafi komið að gerð apps­ins, þó að það sé á ábyrgð emb­ættis land­læknis. Allir hafi þessir aðilar boðið fram aðstoð án end­ur­gjalds. Þessir aðilar eru: íslensku fyr­ir­tækin Aranja, Kolibri, Stokkur, Sensa, Samsýn, for­rit­arar frá Íslenskri erfða­grein­ingu og Syndis. Þakkaði land­læknir þessum aðilum sér­stak­lega á fundi dags­ins.

[adspot]

Appið er liður í viða­miklum aðgerðum yfir­valda í því að hægja á og von­andi minnka útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19.

Íslend­ingar munu geta sótt appið, Rakning C-19, end­ur­gjalds­laust í App eða Play Store. Því fleiri sem sækja appið, þeim mun betur mun það gagn­ast smitrakn­ingateym­inu. Appið mun þó engu að síður gagn­ast við að aðstoða alla, sem velja að taka þátt, við að rifja upp ferðir sínar.

Notkun apps­ins byggir á sam­þykki not­enda, bæði til að taka appið í notkun og til miðl­unar upp­lýs­inga síðar meir ef þess ger­ist þörf, en þetta er kallað tvö­falt sam­þykki.

Appið notar GPS stað­setn­ing­ar­gögn og eru upp­lýs­ingar um ferðir við­kom­andi ein­göngu vistaðar á síma not­anda. Ef not­andi grein­ist með smit og rakn­ingateymið þarf að rekja ferðir þá fær not­andi beiðni um að miðla þeim upp­lýs­ingum til rakn­ingateym­is­ins.

Um leið og smitrakn­ingateymið biður um aðgang að gögn­unum mun það einnig óska eftir kenni­tölu við­kom­andi svo ekki fari á milli mála hver er á bak­við gögnin. Þannig er tryggt að eng­inn hefur aðgang að þessum upp­lýs­ingum nema að not­and­inn vilji það. Stað­setn­ing­ar­gögn­unum verður svo eytt um leið og rakn­ingateymið þarf ekki lengur á þeim að halda.

Sjá frek­ari upp­lýs­ingar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár