Um 300 til 1.100 gætu smitast á næstu þremur vikum

Í þriðju bylgju far­ald­urs COVID-19, sem hófst 11. sept­em­ber, hafa 506 greinst með sjúk­dóm­inn. Vís­inda­menn við Háskóla Íslands spá því að næstu daga haldi áfram að grein­ast 20-40 ný smit á dag.

Vísindamennirnir telja að enn eigi töluverður fjöldi eftir að greinast með COVID-19 í þessari bylgju faraldursins.
Vís­inda­menn­irnir telja að enn eigi tölu­verður fjöldi eftir að grein­ast með COVID-19 í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins. Mynd: EPA

Á næstu dögum er lík­legt að dag­legur fjöldi nýgreindra smita verði á bil­inu 20-40 en þó gætu orðið hátt í 70 ný smit á dag. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri spá vís­inda­fólks frá Háskóla Íslands, emb­ættis land­læknis og Land­spít­ala um hvernig þróun far­ald­urs COVID-19 gæti orðið.

Spáin bendir til þess að nýgreindum smitum fari hægt fækk­andi. Eftir þrjár vikur er lík­legt að dag­legur fjöldi nýgreindra smita verði á bil­inu 10 til 30 á dag, en gætu orðið hátt í 60 nýgreind smit.

[adspot]

Vís­inda­menn­irnir miða við að þriðja bylgja far­ald­urs­ins hafi haf­ist 11. sept­em­ber en voru þá sam­komur tak­mark­aðar við 200 manns og eru enn. Í henni hafa því 506 smit greinst. Líklegur upp­safn­aður fjöldi smita í þess­ari bylgju verður á bil­inu 800-1.100 að mati vís­inda­mann­anna nætu þrjár vik­urnar en smitin gætu þó orðið allt að 1.650. Þetta þýðir að enn gætu 294-1.144 átt eftir að sýkj­ast á kom­andi vikum.

Smitstuðull utan sóttkvíar í kringum 1

Í spánni er fjallað um svo­kall­aðan smit­stuðul sem segir til um hvað ein­stak­lingur sem sýk­ist muni að jafn­aði smita marga aðra. Ef smit­stuð­ull­inn er fjórir mun hver og einn að jafn­aði sýkja fjóra aðra, sem sýkja fjóra aðra og svo koll af kolli sem birt­ist í hinum marg­um­tal­aða veld­is­vísis­vexti. Ef heild­arsmit­stuð­ull­inn er hins vegar nægi­lega lágur (vel undir einum) mun hver og einn að jafn­aði smita færri en einn annan og far­ald­ur­inn því deyja út.

[links]Í lík­ani vís­inda­mann­anna er gert ráð fyrir að landamæra­smit hafi smit­stuð­ul­inn núll, smit sem grein­ist í sótt­kví hafi fastan smit­stuðul í gegnum allan far­ald­ur­inn og að smit­stuð­ull­inn fyrir smit utan sótt­kvíar sé breyti­legur frá degi til dags. Breyti­legi smit­stuð­ull­inn metur smit­hrað­ann í sam­fé­lag­inu á hverjum tíma­punkti og getur því gefið mynd af áhrifum inn­gripa og sam­fé­lags­legri hegðun.

„Okkar útreikn­ingar benda til þess að núver­andi smit­stuð­ull utan sótt­kvíar sé um einn (95% lík­inda­bil: 0,3-2,5). Þó óvissan sé tals­verð virð­ist smit­stuð­ull­inn fara lækk­andi. Þessa lækkun má lík­lega rekja til öfl­ugrar smitrakn­ingar og auk­innar vit­und­ar­vakn­ingar um per­sónu­bundnar sótt­varnir í sam­fé­lag­inu,“ segir í sam­an­tekt vís­inda­mann­anna.

Meðal smit­stuð­ull alls tíma­bils­ins fyrir ein­stak­linga í sótt­kví er met­inn 0,6 (95% lík­inda­bil: 0,3-0,9), sem bendir til þess að sótt­kví sé mjög öflug sótt­varna­að­gerð, segir enn­fremur í sam­an­tekt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár