Tveir á gjörgæslu með COVID-19 – 32 ný smit

32 ný smit af kór­ónu­veirunni greindust í gær, mánu­dag, og eru 525 eru nú með COVID-19 hér á landi og í ein­angrun. Tveir sjúk­lingar eru nú á gjör­gæslu.

Í gær voru tekin yfir 2.300 sýni.
Í gær voru tekin yfir 2.300 sýni. Mynd: EPA

Frá 15. sept­em­ber, á hálfs mán­aðar tíma­bili, hafa tæp­lega 500 manns eða 496 greinst með COVID-19 hér á landi. Í gær greindust 32 með veiruna inn­an­lands og 525 eru nú með sjúk­dóm­inn og í ein­angrun.

Nýgengi inn­an­lands­smita á hverja 100 þús­und íbúa er nú komið í 135,3. Það var 13,6 fyrir tveimur vikum eða um það leyti sem þriðja bylgja far­ald­urs­ins hér á landi hófst. Í sam­an­burði við önnur Evr­ópu­lönd er Ísland ofar­lega á lista yfir þau lönd þar sem nýgengi er hæst. Á Spáni er nýgengið hæst eða um 320 á hverja 100 þús­und íbúa. Nýgengi í Danmörku er tæp­lega 128 en í Svíþjóð er það 42,7 og í Noregi 28,9 svo dæmi séu tekin.

Fimm sjúk­lingar eru inniliggj­andi á Land­spít­al­anum og í gær voru tveir þeirra á gjör­gæslu­deild.

Í gær voru 2.328 sýni tekin á land­inu og þar af 564 við landa­mærin. Þetta er nokkuð minni fjöldi en síð­ustu daga enda eru yfir­leitt tekin færri sýni á sunnu­dögum en aðra daga vik­unnar. Rétt rúm­lega helm­ingur þeirra sem greind­ist í gær var þegar í sótt­kví.

Flestir þeirra sem eru í ein­angrun eru á aldr­inum 18-29 ára eða 153.

Í heild eru 525 í ein­angrun vegna COVID-19 og 1.620 manns í sótt­kví. Frá upp­hafi far­ald­urs­ins í lok febr­úar hafa 2.695 fengið COVID-19 á Íslandi. Tíu eru látin.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær að hann teldi ekki til­efni að herða aðgerðir inn­an­lands. Margir þeirra sem væru að grein­ast væru í sótt­kví og að sam­fé­lags­smit virt­ist á nið­ur­leið.

Fjórum skurð­stofum af átta á Land­spít­ala Fossvogi hefur verið lokað og sjúk­lingar því ekki kall­aðir inn til aðgerða þar í ljósi við­bún­aðar vegna smita og sótt­kvía starfs­manna. Bráða­að­gerðum verður þó sinnt, sagði í til­kynn­ingu á vef Land­spít­ala í gær.

Í gær voru 37 starfs­menn spít­al­ans í ein­angrun og 177 í sótt­kví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár