Hagstofan spáir mesta samdrætti í heila öld – 30 prósent samdráttur í útflutningi

Hagstofa Íslands spáir því að hag­kerfið taki við sér á næsta ári og að þá verði hag­vöxtur upp á 3,9 pró­sent. Ver­bólgu­horfur hafa versnað og nú er gert ráð fyrir að verð­bólga verði að með­al­tali yfir mark­miði út næsta ár.

Útflutningur dregst verulega saman á milli ára. Þar skiptir mestu máli að ferðaþjónusta er nær lömuð sem stendur. Kórónuveiran gerir það að verkum að fáir heimsækja Ísland.
Útflutn­ingur dregst veru­lega saman á milli ára. Þar skiptir mestu máli að ferða­þjón­usta er nær lömuð sem stendur. Kór­ónu­veiran gerir það að verkum að fáir heim­sækja Ísland. Mynd: Bára Huld Beck

Horfur eru á því að lands­fram­leiðsla drag­ist saman um 7,6 pró­sent í ár, sam­kvæmt nýrri þjóð­hags­spá Hagstofu Íslands, sem birt var í dag. Þar er gert ráð fyrir því að hag­kerfið taki aftur við sér á næsta ári og að þá verði hag­vöxtur 3,9 pró­sent.

Ástæða þessa blasir við flestum, kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur haft víð­tæk áhrif á íslenska hag­kerfið. Áhrifin eru mest á ferða­þjón­ustu, sem hefur nán­ast lam­ast, og atvinnu­leysi hefur auk­ist hratt. Vinnu­mála­stofnun spáir því að það verði komið í 10,2 pró­sent í lok októ­ber og almennt atvinnu­leysi stefnir í að verða jafn mikið og það var í kjöl­far banka­hruns­ins.

Í þjóð­hags­spánni segir að útlit sé fyrir að einka­neysla muni drag­ast saman um fimm pró­sent í ár og að þjóð­ar­út­gjöld muni drag­ast saman um 3,6 pró­sent. Árið 2021 sé þó gert ráð fyrir að einka­neysla taki við sér á ný og auk­ist um 4,2 pró­sent, 3,3 pró­sent árið 2022 en auk­ist að með­al­tali um 2,5 pró­sent eftir það.

Samkvæmt spánni eykst sam­neysla um 2,8 pró­sent í ár og í kringum 1,8 pró­sent út spá­tím­ann. „Fjár­fest­ing dregst saman um 8,9 pró­sent í ár þrátt fyrir umtals­verðan vöxt opin­berrar fjár­fest­ingar. Á næsta ári er reiknað með 5,5 pró­sent vexti fjár­fest­ingar, einkum vegna bata í atvinnu­vega­fjár­fest­ingu. Spáð er hóf­legum vexti fjár­fest­ingar á næstu árum eftir það. Framlag utan­rík­is­við­skipta til hag­vaxtar verður nei­kvætt um rúm 4 pró­sent en reiknað er með að útflutn­ingur drag­ist saman um 30 pró­sent í ár. Á næsta ári er gert ráð fyrir um 17 pró­sent útflutn­ings­vexti sam­hliða bata í ferða­þjón­ustu. Þrátt fyrir mik­inn sam­drátt útflutn­ings hefur inn­flutn­ingur einnig minnkað veru­lega og því útlit fyrir að við­skipta­af­gangur verði 1,8 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í ár og að hann hald­ist jákvæður á spá­tím­anum.“

Halli á ríkissjóði 100 milljarðar á fyrri hluta árs

Í spánni er einnig farið yfir áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á afkomu hins opin­bera, sem hefur þurft að stofna til nýrra útgjalda til að mæta áhrifum hans á sama tíma og tekjur hafa dreg­ist saman.

[adspot]Þar segir að það sem af sé ári sé áætlað að afkoman hafi verið nei­kvæð um 78 millj­arða króna á öðrum árs­fjórð­ungi, eða sem nemur um 11 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu fjórð­ungs­ins. „Áætlað er að upp­safn­aður halli rík­is­sjóðs á fyrri hluta árs nemi um 100 millj­örðum króna, en í nýsam­þykktum breyt­ingum á fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar er gert ráð fyrir að halli rík­is­sjóðs fari ekki yfir 11 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í ár eða sem nemur rúm­lega 300 millj­örðum króna. Gert er ráð fyrir að sam­neysla auk­ist um 2,8 pró­sent í ár og að hlutur hennar í vergri lands­fram­leiðslu auk­ist en þar gætir áhrifa vax­andi sam­neyslu á sama tíma og lands­fram­leiðslan dregst saman.“

Fjölmörg fyr­ir­tæki hafa einnig orðið fyrir veru­legu tekju­falli vegna far­ald­urs­ins og áfram­hald­andi óvissa hefur raskað fjár­fest­ing­ar­á­formum. Í spánni segir að í ár séu horfur á að atvinnu­vega­fjár­fest­ing drag­ist saman um 12,6 pró­sent og nær sam­drátt­ur­inn til flestra þátta að frá­töldum skipum og flug­vélum, en án þeirra liða er sam­drátt­ur­inn tæp­lega 18 pró­sent. Árið 2021 er reiknað með að fjár­fest­ing atvinnu­vega auk­ist um 8,2 pró­sent frá fyrra ári og nái sér að hluta til á strik.“

Íbúða­fjár­fest­ing hefur vaxið mikið síð­ast­liðin fjögur ár og náði vöxt­ur­inn hámarki í fyrra þegar hún jókst um rúm­lega 31 pró­sent. Í ár hefur orðið við­snún­ingur og mæld­ist rúm­lega 14 pró­sent sam­dráttur á fyrra hluta árs­ins. Útlit er fyrir að sam­dráttur á seinni hluta árs­ins verði svip­aður og að hann teygi sig yfir á næsta ár.

30 prósent samdráttur í útflutningi

Samkvæmt spánni er talið að útflutn­ingur drag­ist saman um 30 pró­sent í ár sem megi að stærstum hluta rekja til hruns í komum ferða­manna og áhrif­anna sem það hefur á þjón­ustu­út­flutn­ing, en einnig til sam­dráttar í útflutn­ingi sjáv­ar­af­urða, áls og ann­arra vara. „Á næsta ári er búist við um 17 pró­sent bata vegna fjölg­unar ferða­manna, aukn­ingu í útflutn­ingi sjáv­ar­af­urða og bata í öðrum vöru­út­flutn­ingi. Gert er ráð fyrir tölu­verðum vexti útflutn­ings út spá­tím­ann þar sem ferða­þjón­ustan nær fyrri styrk.“

Verð­bólgu­horfur hafa versnað vegna veik­ingu á gengi krón­unnar frá því í sumar. Nú telur Hag­stofan að útlit sé fyrir að verð­bólga verði um 2,8 pró­sent að með­al­tali á árinu. Árið 2021 er svo gert ráð fyrir að verð­bólga verði 2,7 pró­sent en eftir það dragi úr verð­bólgu og að hún nálgist 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár