33 ný smit – nýgengi komið yfir 140 á hverja 100 þúsund íbúa

33 greindust með smit af kór­ónu­veirunni inn­an­lands í gær. Rúmlega helm­ingur þeirra var í sótt­kví við grein­ingu.

Rúmlega 2.200 sýni voru tekin á landinu í gær.
Rúmlega 2.200 sýni voru tekin á land­inu í gær. Mynd: EPA

Frá því þriðja bylgja far­ald­urs COVID-19 hófst hér á landi þann 11. sept­em­ber, hafa 540 manns greinst með sjúk­dóm­inn. Í gær greindust 33 með veiruna inn­an­lands og 551 er nú með sjúk­dóm­inn og í ein­angrun.

Nýgengi inn­an­lands­smita á hverja 100 þús­und íbúa er nú komið í 140,7. Það var 10,6 um það leyti sem þriðja bylgjan hófst.

Sex sjúk­lingar eru inniliggj­andi á Land­spít­al­anum og í gær voru tveir þeirra á gjör­gæslu­deild, þar af annar í önd­un­ar­vél.

Í gær voru 2.229 sýni tekin á land­inu og þar af 526 við landa­mærin. Rúmlega helm­ingur þeirra sem greind­ist í gær var þegar í sótt­kví.

Flestir þeirra sem eru í ein­angrun eru á aldr­inum 18-29 ára eða 165 manns.

Í heild er 551 í ein­angrun vegna COVID-19 og 1.747 manns í sótt­kví. Frá upp­hafi far­ald­urs­ins í lok febr­úar hafa 2.728 fengið COVID-19 á Íslandi.

Tíu eru látin.

Spá 20-40 smitum á dag næstu vikurnar

Ef ný spá vís­inda­manna við Háskóla Íslands gengur eftir mun nýgreindum smitum fara hægt fækk­andi á næstu dögum en þó munu um 20-40 manns grein­ast með veiruna á hverjum degi. Smitin gætu þó orðið hátt í sjö­tíu dag­lega þó að á því séu minni líkur. Að þremur vikum liðnum reikna vís­inda­menn­irnir með að dag­legur fjöldi nýgreindra smita verði á blinu 10-30 á dag. Eftir þrjár vikur telja þeir líkur á því að á bil­inu 800 til 1.100 manns hafi greinst með COVID-19 í þess­ari þriðju bylgju far­ald­urs­ins en fjöld­inn gæti þó orðið allt að 1.650.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár