Fjárlög gera ráð fyrir 264 milljarða króna halla árið 2021

Sam­an­lagður halli á rekstri rík­is­sjóðs á árunum 2020 og 2021 mun nema yfir 530 millj­örðum króna. Rík­is­stjórnin seg­ist ætla að beita rík­is­fjár­mál­unum af fullum þunga og safna skuldum, frekar en að grípa til nið­ur­skurðar eða skatta­hækk­ana.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra við kynningu fjárlagafrumvarpsins í dag.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við kynn­ingu fjár­laga­frum­varps­ins í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árið 2021 gerir ráð fyrir því að halli rík­is­sjóðs verði 264 millj­arðar króna. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði á kynn­ing­ar­fundi í fjár­mála­ráðu­neyt­inu að góðri stöðu rík­is­sjóðs yrði beitt til þess að takast á við stöð­una sem þjóð­ar­búið er í vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Ráðist yrði í lán­tökur til þess að fjár­magna það að mæta útblásnum gjalda­kerfum fremur en að hækka skatta. Það væri hug­mynda­fræði rík­is­stjórn­ar­innar.

Halli rík­is­sjóðs verður rúmir 269 millj­arðar í ár og er sam­an­lagður halli þessa árs og þess næsta því yfir 530 millj­arðar króna. Bjarni sagði að reiknað væri með því, í fjár­mála­á­ætlun 2021-2025, að skulda­staða rík­is­ins myndi versna út tíma­bilið og að sam­an­lagður halli á rekstri rík­is­sjóðs yrði um 900 millj­arðar fram til árs­ins 2025.

Stefnt er að jákvæðum frum­jöfn­uði á rekstri rík­is­sjóðs árið 2025 og sagði Bjarni á kynn­ing­ar­fund­inum að það væri póli­tíska verk­efnið næstu árin, að tryggja að við lok tíma­bils fjár­mála­á­ætl­unar yrði rík­is­sjóður ekki lengur rek­inn með veru­legum halla.

Bjarni sagði að rík­is­stjórnin trúði því að það að beita rík­is­fjár­mál­unum til þess að takast á við stöð­una, í stað þess að grípa til nið­ur­skurðar í þjón­ustu, myndi skila okkur á betri stað þegar krís­unni væri lokið. Hann sagði að það væri í raun­inni ekki val­kostur að fara í harka­legan nið­ur­skurð eða tekju­öflun þegar það væri ekki neitt til skipt­anna hjá fyr­ir­tækj­unum í land­inu.

Afkoma versnar um 192 milljarða vegna faraldursins

Samkvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins mun afkoma rík­is­sjóðs á næsta ári versna um 192 millj­arða króna vegna beinna efna­hags­legra áhrifa far­ald­urs­ins og ákvarð­ana til að sporna við afleið­ingum hans.

Þar vegur sam­dráttur skatt­tekna vegna minni umsvifa þyngst, en hann nemur um 89 millj­örðum króna. Einnig minnka tekjur rík­is­sjóðs vegna aðgerða til að bregð­ast við heims­far­aldr­inum, meðal ann­ars með því að end­ur­greiða virð­is­auka­skatt vegna vinnu, flýt­ingu á lækkun banka­skatts og nið­ur­fell­ingu gistin­átta­skatts en sam­tals kosta þessar aðgerðir rík­is­sjóð um 17 millj­arða króna.

Þá er gert ráð fyrir að atvinnu­leys­is­bætur hækki um 23 millj­arða króna á milli ára. Útgjöld vegna ýmissa mót­væg­is­að­gerða eru áætluð um 35 millj­arðar króna, en þar má nefna fjár­fest­ingar- og upp­bygg­ing­ar­á­tak, efl­ingu háskóla- og fram­halds­skóla­stigs til að bregð­ast við atvinnu­leysi og auknar end­ur­greiðslur vegna rann­sókna- og þró­unar. Þá er gert ráð fyrir að arð­greiðslur frá lögum í eigu rík­is­ins lækki um 27 millj­arða króna, sam­kvæmt til­kynn­ingu stjórn­valda.

Skuldasöfnun verði stöðvuð 2025

Bjarni lagði áherslu á það, sem áður segir, að stefnt yrði að því að rekstur rík­is­sjóðs yrði kom­inn í jafn­vægi árið 2025. Á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að rík­is­stjórnin telji mik­il­vægt að stöðva skulda­söfn­un­ina á því ári og „rjúfa með því víta­hring halla­rekst­urs og skulda­söfn­unar til að end­ur­heimta styrka fjár­hags­stöðu hins opin­bera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár