COVID-19 hefur áhrif á hreyfingar jarðar

Athafnir manna skapa alla jafna titr­ing í jarð­skorp­unni. Nú þegar veru­lega hefur dregið úr ferða­lögum og starf­semi verk­smiðja hefur dregið úr hreyf­ingum jarðar.

Mannlausar götur eru fylgifiskur COVID-19.
Mann­lausar götur eru fylgi­fiskur COVID-19. Mynd: EPA

Á meðan við mann­fólkið glímum við mestu heil­brigðisógn síð­ustu ára­tuga og gripið hefur verið til harðra aðgerða til að hefta útbreiðslu veirunnar taka vís­inda­menn eftir því að jörðin sjálf, plánetan okkar, er rólegri. Dregið hefur úr því sem kall­ast jarð­órói (seismic noise), stöð­ugum titr­ingi jarð­skorpunnar. Þetta telja þeir lík­lega afleið­ingu þess að umferð far­ar­tækja og athafnir manna almennt eru mun minni. Vís­inda­menn­irnir segja að þetta gæti orðið til þess að hægt verði að fylgj­ast betur en áður með því sem er að ger­ast í iðrum jarðar; smáum jarð­skjálftum og öðrum hreyf­ingum.

Um þetta er fjallað í grein á vef vís­inda­rits­ins Nature.

Þar er haft eftir Thomas Lecocq, jarð­skjálfta­fræð­ingi í Belgíu, að mjög sjaldan dragi svo mikið úr hávaða og öðru álagi á jörð­inni. Það ger­ist aðeins í stuttan tíma ár hvert yfir jól.

[adspot]

Í grein­inni kemur fram að hreyf­ingar séu í jarð­skorp­unni af nátt­úru­legum orsökum en einnig vegna titr­ings vegna far­ar­tækja á hreyf­ingu og marg­vís­legrar starf­semi, svo sem stórra verk­smiðja. Hver upp­spretta titr­ings­ins fyrir sig hafi ekki mikið að segja en þegar þetta álag á jörð­ina safn­ast saman veldur það því sem kalla mætti baksuði sem verður aftur til þess að erf­ið­ara reyn­ist að greina nátt­úru­legar hreyf­ingar af sömu tíðni.

Lecocq segir að vís­inda­menn við rann­sókn­ar­stofnun í Brussel hafi kom­ist að því að tak­mark­anir á ferða­lögum fólks og athöfnum manna hafi orðið til þess að dregið hafi úr jarð­óróa af manna­völdum um þriðj­ung. Á sama tíma geti mæli­tæki numið nátt­úru­legar hreyf­ingar jarð­ar­innar af meiri næmni en áður.

Fleiri vís­inda­menn en þeir belgísku hafa komið auga á þetta. Celeste Labedz, jarð­eðl­is­fræð­ingur í Kali­forníu, hefur svip­aða kenn­ingu. Hún segir jarð­óró­ann hafa minnkað veru­lega.

Mörg mæli­tæki sem hafa það hlut­verk að fylgj­ast með hreyf­ingum jarðar eru hins vegar stað­sett langt frá byggð – einmitt til að koma í veg fyrir að athafnir manna hafi áhrif á nið­ur­stöð­urnar. Þess vegna er ólík­legt að á þeim muni sjást miklar breyt­ingar. En mögu­lega ein­hverjar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðskjálfti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár