Fossar markaðir mátu ekki upplýsingar um raunverulega eigendur með sjálfstæðum hætti

Fossar mark­aðir hafa verið leið­andi í að koma með erlenda fjár­festa til Íslands á und­an­förnum árum. Í athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á pen­inga­þvætt­is­vörnum fyr­ir­tæk­is­ins komu fram brotala­mir.

Haraldur Þórðarson er forstjóri Fossa markaða og á meðal stærstu eigenda fyrirtækisins.
Haraldur Þórð­ar­son er for­stjóri Fossa mark­aða og á meðal stærstu eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: Aðsend mynd

Upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur við­skipta­vina Fossa mark­aða hf.. voru almennt ekki metnir af fyr­ir­tæk­inu með sjálf­stæðum hætti, í tveimur til­vikum sem könnuð voru höfðu við­skipta­menn ekki sannað á sér deili við upp­haf samn­ings­sam­bands, áhættu­mat Fossa á rekstri sínum og við­skiptum full­nægði ekki kröfum og fyr­ir­tækið hafði ekki sett sér skjal­festa stefnu um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Þetta er nið­ur­staða athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á aðgerðum Fossa gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka sem hófst í ágúst 2019 og lauk í febr­úar 2020. Nið­ur­staðan var birt í lok síð­ustu viku.

Að teknu til­liti til þeirra gagna og upp­lýs­inga sem Fjár­mála­eft­ir­litið afl­aði við athug­un­ina taldi það ekki til­efni til að gera athuga­semdir við reglu­legt eft­ir­lit Fossa, eft­ir­lits­kerfi vegna ein­stak­linga í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla, kerfi vegna alþjóð­legra þving­un­ar­að­gerða eða hvernig staðið var við að upp­fylla rann­sóknar- og til­kynn­ing­ar­skyldu.

Fossar mark­aðir hafa verið leið­andi í að koma með erlenda fjár­festa til Íslands á und­an­förnum árum.

Brotalamir hjá öllum bönkunum

Kjarninn greindi frá því 22. des­em­ber síð­ast­lið­inn að Fjár­mála­eft­ir­litið hefði birt nið­ur­stöður sínar um pen­inga­þvætt­is­varnir allra íslensku við­skipta­bank­anna; Lands­bank­ans, Íslands­banka, Arion banka og Kviku banka. Þar komu fram brotala­mir í varn­ar­virki þeirra allra. Á meðal þess sem eft­ir­litið gerði athuga­semdir við var mat allra íslensku við­skipta­bank­anna á upp­lýs­ingum um raun­veru­lega eig­endur fjár­muna eða félaga sem eru, eða hafa verið, í við­skiptum við þá.

[adspot]Í nið­ur­stöðum eft­ir­lits­ins voru líka gerðar athuga­semdir við að þeir hafi ekki metið upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur með sjálf­stæðum hætti. Nið­ur­staða athug­unar eft­ir­lits­ins á Arion banka var birt í maí en nið­ur­stöður vegna athug­unar á hinum þremur bönk­unum ekki birt fyrr en 20. des­em­ber 2019.

Í til­felli Lands­bank­ans, sem er í rík­i­s­eigu, lauk athugun í októ­ber það ár en nið­ur­staðan þrátt fyrir það ekki birt fyrr en tveimur mán­uðum síðar. Athugun á Kviku banka og Íslands­banka í des­em­ber á síð­asta ári.

Aðgerðir eftir áfelli FATF

Alþjóð­legur vinnu­hópur um um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, Financial Action Task Force (FATF), skil­aði kol­svartri úttekt á frammi­stöðu Íslands í mála­flokknum í apríl 2018. Í kjöl­farið var gripið til mik­ils átaks sem í fólst að upp­færa lög, reglu­verk og fram­fylgni eft­ir­lits með pen­inga­þvættis hér­lendis.

[links]Allt kom fyrir ekki og á end­anum reynd­ust aðgerð­irnar ekki nægj­an­legar. Ísland var sett á gráan lista fyrir að bregð­ast ekki nægi­lega vel við fjöl­mörgum athuga­semdum sam­tak­anna um brotala­mir í vörnum gegn pen­inga­þvætti á Íslandi í októ­ber 2019. Ísland var áfram á þeim lista eftir fund sam­tak­anna í febr­úar en hann verður næst end­ur­skoð­aður að óbreyttu í júní.

Ein af athuga­semd­unum sem FATF gerði sneri að því að ekki þurfti að greina frá raun­veru­legum eig­endum félaga á Íslandi. Enda felst í því að þekkja ekki við­skipta­vin­inn, að þekkja ekki hvaðan pen­ing­arnir hans koma. Lög voru upp­færð í kjöl­farið og frestur gefin til 1. mars síð­ast­lið­inn um að greina frá raun­veru­legum eig­endum félaga á Íslandi. Ekki liggur fyrir nákvæm­lega hversu vel sú skrán­ing gekk, enda kór­ónu­veiran og afleið­ingar hennar búin að taka yfir allt sam­fé­lagið síð­ast­liðnar vikur.

Í kjöl­far þess að FATF gerði úttekt á Íslandi þá hóf Fjár­mála­eft­ir­litið að gera nýjar athug­anir á íslenskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum og getu þeirra til að verj­ast pen­inga­þvætti. Á meðal þeirra voru Fossar mark­aðir og stóru við­skipta­bank­arnir fjórir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

FME

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár