„Hægt að eyðileggja orðspor fólks með slúðri eða árásum á samfélagsmiðlum“

For­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins segir að eft­ir­litið þurfi að vanda sig mjög þegar það metur hvort orð­spor fólks sem vill stýra fjár­mála­fyr­ir­tækjum eða sitja í stjórnum þeirra eigi að koma í veg fyrir að við­kom­andi sé hæfur til þess.

„Þetta er stórt mál. Við þurfum líka að gæta þess að það sé ekki hægt að eyði­leggja orð­spor fólks með slúðri eða árásum á sam­fé­lags­miðlum eða eitt­hvað slíkt. Þannig að við vöndum okkur auð­vitað mjög mikið við svona mik­il­vægar ákvarð­anir.“

Þetta segir Unnur Gunn­ars­dóttir, for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, um það þegar eft­ir­litið er að meta hæfi fólks til að stýra fjár­mála­fyr­ir­tækjum eða sitja í stjórnum þeirra. Einn þeirra þátt sem eft­ir­litið metur er orð­spor þeirra sem eru metnir.

Unnur var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Traust á banka­kerfið hrundi fyrir ára­tug og þótt það hafi bragg­ast á síð­ustu árum mælist það enn ein­ungis 20 pró­sent. Fjórir af hverjum fimm lands­mönnum treysta því ekki bönkum.

Unnur segir að mikil breyt­ing hafi orðið á und­an­förnum árum á því hvernig hæfi ein­stak­linga til að stýra fjár­mála­fyr­ir­tækjum eða sitja í stjórnum þess er metið. „Það komu inn í lög 2010 ákvæði þar sem eft­ir­lit­inu var falið að meta hæfi allra stjórn­ar­manna í eft­ir­lits­skyldum aðilum. Þetta eru 600-700 manns. Á hverju ári eru um 100 metnir. Í fyrra voru þeir akkúrat 100. Tíu stóð­ust ekki hæf­is­mat. 115 voru metnir árið 2017. Níu stóð­ust ekki þá. Þetta er fyrir utan þá sem ákveða að víkja þegar þeir finna að þeir eru ekki að full­nægja kröf­unum.“

[adspot]Það séu bæði hlut­læg og hug­læg skil­yrði fyrir því að stand­ast mat. Hlutlægu skil­yrðin séu að vera fjár­hags­lega sjálf­stæður, hafa þekk­ingu og reynslu. Það reyni oftar á þau atriði. Síðan séu hug­lægu atriðin sem snúa að því að hafa gott orð­spor. „Það er auð­vitað flókn­ara að meta það,“ segir Unnur.

Hún segir að stjórnir fjár­mála­fyr­ir­tækja hafa meira frelsi en Fjár­mála­eft­ir­litið til að takast á við þetta mat vegna þess að eft­ir­litið er svo bundið af atvinnu­frels­is­á­kvæði stjórn­ar­skrár

[links]„Þetta er eins og eign­ar­nám. Mjög mikið inn­grip inn í grund­vall­ar­frelsi ein­stak­lings­ins þegar verið er að kveða upp um það að þú sért ekki hæfur til að stjórna fyr­ir­tæki. Þannig að það sem við þurfum að byggja á varð­andi orð­sporið það er í raun­inni hlutir sem hafa verið sann­aðir.“

Aðspurð um hvort það fari saman að ein­stak­lingar, sem hafi til að mynda stöðu grun­aðra manna í virkri saka­mála­rann­sókn, sitji í stjórnum eft­ir­lits­skyldra fyr­ir­tækja segir Unnur að það sé ekki til neitt ein­falt svar við því. „Í þeim til­vikum er heppi­leg­ast að þeir sem veita þessu fólki umboð taki sjálft þessa stefnu­mark­andi ákvörðun um hvaða svip­mót á að vera á stjórn­inni, áður en að hægt verði að fara með stjórn­valds­á­kvörðum í slíkt inn­grip.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

FME

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár