FME getur séð hverjir eiga erlendu sjóðina sem eiga í íslenskum banka

For­stjóri FME segir eft­ir­litið rann­saka hæfi virkra eig­enda nægi­lega djúpt til að fá upp­lýs­ingar um hverjir standi á bak við erlenda sjóði. Það geti þó ekki fylgst með því hvort að pen­ingar sem komið hafi verið undan séu not­aðir í að kaupa hlut í bönkum.

Unnur Gunn­ars­dóttir, for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, segir eft­ir­litið fylgj­ast vel með því hverjir eiga fjár­mála­fyr­ir­tæki og nýtir þær heim­ildir sem það hefur til þess til hins ítrasta.

„Við höfum mjög víð­tækar heim­ildir varð­andi virka eig­endur, þá sem eiga yfir tíu pró­sent, við metum hæfi þeirra.“ Það sé rann­sakað nægi­lega djúpt til að eft­ir­litið fái vit­neskju um hverjir séu eig­endur í erlendum sjóðum sem eiga stóra hluti í íslenskum bönkum. Slíkir sjóðir eru til að mynda á meðal stærstu eig­enda Arion banka.

Þetta er meðal þess sem kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Unni í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan:

Grein sem Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, skrif­aði í Vís­bend­ingu nýverið vakti mikla athygli, en þar sagði hann meðal ann­ars: „„Um þessar mundir eru ýmsir af þeim ein­stak­lingum sem tóku virkan þátt í fjár­mála­æv­in­týr­inu 2003-2008 að snúa aftur til lands­ins. Pen­ingum var í mörgum til­vikum komið undan árin 2007-2008 og eru þetta fjár­magn nú að skila sér til baka, einmitt þegar búið er að gera upp þrotabú hinna föllnu banka upp. Lík­legt er að a.m.k. einn öfl­ugur banki verði í eigu þess­ara aðila innan ekki langs tíma ef það hefur ekki gerst nú þeg­ar. Vand­inn er sá að rekstur bank­anna fyrir 2008 var ámæl­is­verður eins og margir refsi­dómar bera vitni um. Ekki eru öll kurl komin til grafar um þann rekst­ur. End­ur­skoð­endur gegndu lyk­il­hlut­verki í því að láta bók­fært eigið fé marg­fald­ast á fáum árum en hafa ekki sýnt neina iðrun í þeim efn­um.“

[adspot]Aðspurð um hvort að þetta séu rétt­mætar áhyggjur hjá Gylfa sagði Unnur: „Þetta er mjög lit­rík og sterk lýs­ing,“ og bætti við að um ákveð­inn spá­dóm væri að ræða.

Unnur stað­festi þó í þætt­inum að Fjár­mála­eft­ir­litið geti séð hvort að þeir sem áttu eða stýrðu bönkum á Íslandi fyrir hrun séu á bak­við þá sjóði sem fara með virkan eign­ar­hlut í skráðum íslenskum banka. „Við förum ekki offari í því að dæma menn fyr­ir­fram úr leik. Það þarf að fara yfir hvert og eitt mál.“

Hún segir að Fjár­mála­eft­ir­litið geti ekki fylgst með því beint hvort að pen­ingum sem komið hafi verið með ein­hverjum hætti undan séu nú að not­ast til að kaupa upp hluti í bönkum en bendir á að verið sé að bregð­ast mjög hart við ábend­ingum um veik­leika sem tengj­ast vörnum Íslands gegn pen­inga­þvætti um þessar mundir. „Það er verið að styrkja allt kerfið varð­andi aðgerðir gegn pen­inga­þvætti. Áður var kannski fók­us­inn fyrst og síð­ast á fjár­mála­þjón­ustu en nú er búið að stækka flór­una. Þannig að það á að vera erf­ið­ara að nota lista­verka­sala, fast­eigna­sala og allt svo­leiðis til að þvætti pen­inga.“

[links]Þar er Unnur að vísa í það að í apríl 2018 skil­uðu alþjóð­legu sam­tökin Financial Action Task Force (FATF) úttekt á Íslandi þar sem nið­ur­staðan var sú að varnir lands­ins gegn pen­inga­þvætti fengu fall­ein­kunn. Sér­stak­lega var þar fjallað um fjár­magns­höftin sem voru við lýði á Íslandi frá nóv­em­ber 2008 og fram í mars 2017. Í skýrslu FATF sagði: „Þessum höftum var lyft í mars 2017 og yfir­völd hafa ekki tekið til­lit til þeirra áhrifa sem það geti haft á áhættu vegna pen­inga­þvættis/fjár­mögnun hryðju­verka­sam­taka í land­inu.“

Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­legar, og Ísland færi á lista FATF yfir ósam­vinnu­þýð ríki myndi það, að mati inn­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­legan hnekki.

Ef Ísland yrði sett á slíkan lista myndi það einnig leiða til þess að gerðar yrðu strang­ari kröfur til lands­ins og aðila sem þar búa um hvers konar fjár­mála­starf­semi, stofnun úti­búa, dótt­ur­fé­laga og umboðs­skrif­stofa og jafn­vel útgáfu aðvar­ana um að við­skipti við íslenska aðila sem gætu falið í sér hættu á pen­inga­þvætti.

Skýrsla FATF ýtti veru­lega við málum hér­lendis. Nánar er hægt að lesa um það hér til hliðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

FME

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár