Helstu leikendur snúnir aftur og endurskoðendur hafa ekki sýnt neina iðrun

Pró­fessor í hag­fræði segir að reyna muni á fjár­mála­eft­ir­lit á næst­unni þar sem helstu leik­endur í fjár­mála­æv­in­týr­inu sem leiddi til hruns, séu snúnir aftur í íslenska fjár­mála­kerfið.

„Mis­vísandi upp­gjör voru for­senda þess að banka­kerfið marg­fald­að­ist að stærð á stuttum tíma og féll m.a. vegna þess að eigið fé var ekki raun­veru­legt heldur búið til með bók­halds­brellum og bank­anir of stórir til þess að ríkið gæti komið þeim til bjargar. Það er því fyr­ir­sjá­an­legt að sömu aðilar komi sumir aftur til sög­unnar, ráði sömu end­ur­skoð­endur sem fyrr og reynir þá mikið á fjár­mála­eft­ir­lit.“

Þetta segir Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor, í ítar­legri grein í Vís­bend­ingu, sem kom til áskrif­enda í dag, þar sem hann fjallar meðal ann­ars um fyr­ir­hug­aða sam­ein­ingu Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Einnig er fjallað um ýmsar hættur á fjár­mála­mark­aði, og hvernig þær séu farnar að birt­ast þessi miss­erin. Í grein­inni segir meðal ann­ars:

„Um þessar mundir eru ýmsir af þeim ein­stak­lingum sem tóku virkan þátt í fjár­mála­æv­in­týr­inu 2003-2008 að snúa aftur til lands­ins. Peningum var í mörgum til­vikum komið undan árin 2007-2008 og eru þetta fjár­magn nú að skila sér til baka, einmitt þegar búið er að gera upp þrotabú hinna föllnu banka upp. Líklegt er að a.m.k. einn öfl­ugur banki verði í eigu þess­ara aðila innan ekki langs tíma ef það hefur ekki gerst nú þegar. Vandinn er sá að rekstur bank­anna fyrir 2008 var ámæl­is­verður eins og margir refsi­dómar bera vitni um. Ekki eru öll kurl komin til grafar um þann rekstur. End­ur­skoð­endur gegndu lyk­il­hlut­verki í því að láta bók­fært eigið fé marg­fald­ast á fáum árum en hafa ekki sýnt neina iðrun í þeim efnum. Mis­vísandi upp­gjör voru for­senda þess að banka­kerfið marg­fald­að­ist að stærð á stuttum tíma og féll m.a. vegna þess að eigið fé var ekki raun­veru­legt heldur búið til með bók­halds­brellum og bank­anir of stórir til þess að ríkið gæti komið þeim til bjargar. Það er því fyr­ir­sjá­an­legt að sömu aðilar komi sumir aftur til sög­unnar, ráði sömu end­ur­skoð­endur sem fyrr og reynir þá mikið á fjár­mála­eft­ir­lit. Ef þessir aðilar tengj­ast stjórn­mála­flokkum þá mun reyna á sjálf­stæði fjár­mála­eft­ir­lits bæði í sam­skiptum við bank­ana og einnig við rík­is­stjórn. Þá væri betra að pen­inga­stefnan væri ekki undir sama þaki.“

Þá fjallar Gylfi einnig um ýmsar hættur sem geta falist í því að sam­eina Seðla­bank­ann og FME. Hin sam­ein­aða stofnun verði veru­lega valda­mikil, og það geti skapað hættur.

Þá sé sann­gjarnt að spyrja að því hvers vegna þarf að umbreyta kerf­inu með þeim hætti sem að er stefnt, þar sem árang­ur­inn á und­an­förnum árum hafi verið góður, ekki síst vegna þess hvernig stjórn­tækjum Seðla­bank­ans hafi verið beitt.

„Á síð­ustu tíu árum hefur farið fram stöðug vinna við að end­ur­skipu­leggja fram­kvæmd pen­inga­stefnu með breyttum áherslum og breyttri nýt­ingu stjórn­tækja. Í fyrsta sinn í sögu lýð­veld­is­ins hefur tek­ist að kalla fram jákvæða þróun þar sem saman fara hag­vöxtur, lág verð­bólga, jákvæður við­skipta­jöfn­uður og batn­andi staða gagn­vart útlöndum og vax­andi kaup­máttur. Án efa hefur heppni ráðið ein­hverju en því verður ekki neitað að önnur beit­ing stjórn­tækja Seðla­bank­ans árin 2009-2019 hefur skilað stór­lega bættum árangri. Kannski gengur það að hafa sjálf­stæðan gjald­miðil án þess að hag­kerfið fari í gegnum dýfur með reglu­bundnum hætti, verð­bólgu­skot og skertan kaup­mátt!

En af hverju þarf þá að umbylta stjórn­kerf­inu á grund­velli til­lagna sem urðu til fyrir mis­skiln­ing með breyt­ingum sem stefna þessum árangri í tví­sýnu? Er ekki betra að taka fleiri og smærri skref, halda í það sem gott er og bæta smám saman þegar við erum alveg viss um að næsta skref sé til bóta? Og ekki gera ráð fyrir að emb­ætt­is­menn og stjórn­mála­menn hugsi alltaf ein­ungis um þjóð­ar­hag en ekki eigin hags­muni og sína póli­tísku stöðu.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár