FME kallar eftir upplýsingum frá íslenskum bönkum um Samherja

Íslensku bank­arnir eiga að upp­lýsa Fjár­mála­eft­ir­litið um það hvernig eft­ir­liti þeirra með við­skiptum við Samherja hafi verið háttað.

Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Unnur Gunn­ars­dóttir, for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Mynd: Hringbraut

Íslenskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem taka við inn­lánum sem hafa verið í við­skiptum við Samherja og tengd félög hefur verið gert að veita Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME) upp­lýs­ingar um áhættu­mat þeirra á Sam­herj­a­sam­stæð­unni. Auk þess eiga fjár­mála­fyr­ir­tækin, sem eru að uppi­stöðu stærstu bank­arnir fjórir, að upp­lýsa eft­ir­litið um hvernig reglu­bundnu eft­ir­liti þeirra með við­skiptum við Samherja hafi verið háttað.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þegar hefur verið greint frá því í fjöl­miðlum að stjórnir Íslands­banka, sem er helsti við­skipta­banki Samherja á Íslandi, og Arion banka hafi ákveðið að láta fara fram ítar­lega könnun á við­skiptum við Sam­herj­a­sam­stæð­una. Stjórn Lands­bank­ans hefur ekki viljað upp­lýsa um hvort að slík könnun sé að fara fram. Í Noregi hefur norski bank­inn DNB, helsti við­skipta­banki Samherja, fyr­ir­skipað inn­an­hús­rann­sókn á við­skiptum hans við Samherja eftir að greint var frá því að reikn­ingar útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins hjá DNB hafi meðal ann­ars verið not­aðir til þess að milli­færa um níu millj­arða króna frá félagi á Marshall-eyjum.

[adspot]Það félag var ekki með upp­gef­inn raun­veru­legan eig­anda, en ein helsta kvöðin vegna pen­inga­þvætt­is­varna er sú að bankar þurfa að þekkja við­skipta­vini sína og upp­runa fjár­magns­ins sem þeir færa inn á reikn­inga. Banka­reikn­ing­unum sem um ræðir var lokað í fyrra eftir að banda­rískur banki gerði við­vart um að fjár­magns­flutn­ing­arnir stæð­ust lík­ast til ekki skil­yrði sem sett væru vegna pen­inga­þvætt­is­varna.

Kjerstin Braathen, for­stjóri DNB, sagði við norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv í gær að hún úti­loki ekki að bank­inn hafi verið mis­not­aður í tengslum við málið. Hún líti málið alvar­legum augum.

Siv Jensen, fjár­mála­ráð­herra Noregs, hefur kallað eftir því að DNB leggi öll spil á borðið vegna máls­ins og yfir­maður pen­inga­þvætt­is­eft­ir­lits DNB sagði upp störfum í haust. DNB hefur opin­ber­lega sagt að það hafi verið vegna skipu­lags­breyt­inga en norskir fjöl­miðlar tengja það við það sem átt hafði sér stað vegna fjár­magnstil­færslna Samherja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

FME

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár