Stoðir borga FME 3,7 milljónir í sáttargreiðslu

Fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir hf. mun greiða Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­bank­ans 3,7 millj­ónir króna fyrir að hafa ekki til­kynnt þegar það varð virkur eig­andi í TM í fyrra.

Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða
Jón Sig­urðs­son, stjórn­ar­for­maður Stoða Mynd: Síminn

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefur gert sam­komu­lag við fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Stoðir hf. um að félagið greiði 3,7 millj­ónir króna í sátt­ar­greiðslu fyrir að hafa ekki til­kynnt áform sín um að verða virku eig­andi í trygg­ing­ar­fé­lag­inu TM hf. fyrir rúmu ári síðan. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu eft­ir­lits­ins sem birt­ist á vef Seðla­bank­ans fyrr í dag.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni jók Stoðir við hlut sinn í TM í mars­byrjun í fyrra úr 9,9 pró­sentum í 11,66 pró­sent. Með því höfðu Stoðir eign­ast virkan egin­ar­hlut í trygg­ing­ar­fé­lag­inu og þremur dótt­ur­fé­lögum þess; Lykli fjár­mögnun hf., Íslenskri end­ur­trygg­ingu hf., og TM líf­trygg­ingum hf., án þess að til­kynna Fjár­mála­eft­ir­lit­inu fyrir fram um áformin sín.

Með því að hafa sleppt því að til­kynna Fjár­mála­eft­ir­lit­inu telur Fjár­mála­eft­ir­litið að Stoðir hafi brotið lög um vátrygg­inga­starf­semi, en sektir sem lagðar eru á lög­að­ila vegna þess geta numið frá 100 þús­und krónum til 50 millj­óna króna. Einnig er fjár­fest­inga­fé­lagið talið hafa brotið lög um fjár­mála­fyr­ir­tæki, þar sem sektir geta numið frá hálfri milljón króna til 800 milljón króna.

Þar sem brot Stoða tald­ist ekki meiri háttar var félag­inu boðið að greiða 3,7 millj­ónir í sátt­ar­greiðslu og sleppa þannig við mögu­lega hærri sektir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

FME

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár