FME gerði líka athugasemdir við aðgerðarleysi líftryggingafélaga og miðlara gegn þvætti

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur gert marg­hátt­aðar athuga­semdir vegna aðgerð­ar­leysis hjá nokkrum líf­trygg­inga­fé­lögum og vátrygg­ing­ar­miðl­urum gegn pen­inga­þvætti. Áður hafði eft­ir­litið gert athuga­semdir vegna Arion banka.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hefur birt nið­ur­stöðu vegna athug­unar eft­ir­lits­ins á aðgerðum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka hjá líf­trygg­inga­fé­lögum og vátrygg­ing­ar­miðl­urum.

[links]Nið­ur­staðan er að aðgerðir voru ekki í lagi hjá nokkrum þeirra félaga sem skoðuð voru.

Í nið­ur­stöðum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins kemur fram að hjá Fjár­fest­inga­miðlun Íslands hafi verið gerðar athuga­semdir við að reglu­bundið eft­ir­lit með við­skipta­sam­bandi hafi ekki verið í fullu sam­ræmi við ákvæði laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Þá hafi heldur ekki verið skjal­fest stefna, stýr­ingar eða verk­ferlar til staðar í sam­ræmi við áður­nefnd lög né hafi verið til­nefndur sér­stakur ábyrgð­ar­maður í sam­ræmi við þau.

Þá var gerð athuga­semd hjá Líf­trygg­inga­fé­lagi Íslands hf., Nýju vátrygg­inga­þjón­ust­unni ehf. og Trygg­inga­miðlun Íslands ehf. varð­andi reglu­bundið eft­ir­lit með við­skipta­sam­bandi.

Fjöldi athugasemda vegna Arion banka

Þetta er önnur nið­ur­staðan sem Fjár­mála­eft­ir­litið birtir vegna athug­unar sinnar á stöðu pen­inga­þvætt­is­mála hjá eft­ir­lits­skyldum fyr­ir­tækjum á und­an­förnum dögum.

[adspot]Í lok maí greindi eft­ir­litið frá því að það hefði í jan­úar 2019 gert athuga­semd við að Arion banki hefði ekki metið með sjálf­stæðum hætti hvort upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur við­skipta­vina væru réttar og full­nægj­andi og að þær upp­lýs­ingar hafi ekki verið upp­færðar með reglu­legum hætti, líkt og lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka gerðu ráð fyr­ir. Eft­ir­litið gerði einnig athuga­semd um að Arion banki hefði ekki sinnt rann­sókn­ar­skyldu sinni í til­viki erlends við­skipta­vin­ar, það taldi að reglu­bundið eft­ir­lit bank­ans með við­skipta­vinum hafi ekki full­nægt kröfum laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka né að verk­lag í tengslum við upp­færslu á upp­lýs­ingum um við­skipta­vini hafi ekki verið full­nægt. Þá taldi FME að skýrslur Arion banka um grun­sam­legar og óvenju­legar færslur hefðu ekki verið full­nægj­andi.

At­huga­semd­irnar voru gerðar í kjöl­far þess að FME fram­kvæmdi athugun á aðgerðum Arion banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Sú athugun hófst með bréfi sem sent var til bank­ans 3. októ­ber 2018. Nið­ur­staða athug­un­ar­innar lá fyrir í jan­úar 2019 og var hún byggð á gögnum og upp­lýs­inga miðað við stöð­una eins og hún var á þeim tíma sem athug­unin hófst. Nið­ur­staðan var ekki birt fyrr en 29. maí, að beiðni Arion banka, sem vildi fá að bregð­ast við úrbóta­kröfum áður en að hún yrði gerð opin­ber.

Ísland fékk fall­ein­kunn

Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um slakar varnir Íslend­inga gegn pen­inga­þvætti und­an­farin miss­eri. Í byrjun jan­úar greindi Kjarn­inn frá því að í fyrra­vor hafi Ísland fengið aðvör­un. Annað hvort myndu stjórn­völd þar taka sig til og inn­leiða almenni­legar varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka eða landið myndi verða sett á lista alþjóð­legu sam­tak­anna Financial Action Task ­Force (FATF) um ósam­vinnu­þýð ríki.

[adspot]Ólafur Þór Hauks­son, hér­aðs­sak­sókn­ari, var spurður af því í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut 3. októ­ber síð­ast­lið­inn hvort aðgerðir Íslend­inga til að koma í veg fyrir að pen­inga­þvætti hefðu verið við­un­andi á und­an­förnum árum. „Þessu eru auðsvar­að,“ sagði Ólaf­ur, „nei það er það ekki.“

Í úttekt sam­tak­anna á stöðu mála Íslandi, sem var gerð opin­ber í apríl 2018, fengu varnir Íslands gegn pen­inga­þvætti fall­ein­kunn. Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­leg­ar, og Ísland færi á lista FATF ­yfir ósam­vinnu­þýð ríki myndi það, að mati inn­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­legan hnekki.

Ef Ísland yrði sett á slíkan lista myndi það einnig leiða til þess að gerðar yrðu strang­ari kröfur til lands­ins og aðila sem þar búa um hvers konar fjár­mála­starf­semi, stofnun úti­búa, dótt­ur­fé­laga og umboðs­skrif­stofa og jafn­vel útgáfu aðvar­ana um að við­skipti við íslenska aðila sem gætu falið í sér hættu á pen­inga­þvætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár