FME gerði fjölmargar athugasemdir við aðgerðir Arion banka gegn peningaþvætti

Athugun FME á aðgerðum Arion banka gegn pen­inga­þvætti leiddi í ljós fjöl­margar brotala­mir að mati eft­ir­lits­ins. Nið­ur­staða athug­un­ar­innar lá fyrir í jan­úar en var ekki birt fyrr en á mið­viku­dag. Arion banki seg­ist hafa brugð­ist við öllum úrbóta­kröfum.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) gerði í jan­úar 2019 athuga­semd við að Arion banki hefði ekki metið með sjálf­stæðum hætti hvort upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur við­skipta­vina væru réttar og full­nægj­andi og að þær upp­lýs­ingar hafi ekki verið upp­færðar með reglu­legum hætti, líkt og lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka gerðu ráð fyrir. Eft­ir­litið gerði einnig athuga­semd um að Arion banki hefði ekki sinnt rann­sókn­ar­skyldu sinni í til­viki erlends við­skipta­vinar, það taldi að reglu­bundið eft­ir­lit bank­ans með við­skipta­vinum hafi ekki full­nægt kröfum laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka né að verk­lag í tengslum við upp­færslu á upp­lýs­ingum um við­skipta­vini hafi ekki verið full­nægt. Þá taldi FME að skýrslur Arion banka um grun­sam­legar og óvenju­legar færslur hefðu ekki verið full­nægj­andi.

[links]Athuga­semd­irnar voru gerðar í kjöl­far þess að FME fram­kvæmdi athugun á aðgerðum Arion banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Sú athugun hófst með bréfi sem sent var til bank­ans 3. októ­ber 2018. Nið­ur­staða athug­un­ar­innar lá fyrir í jan­úar 2019 og var hún byggð á gögnum og upp­lýs­inga miðað við stöð­una eins og hún var á þeim tíma sem athug­unin hófst. Nið­ur­staðan var ekki birt fyrr en 29. maí, að beiðni Arion banka, sem vildi fá að bregð­ast við úrbóta­kröfum áður en að hún yrði gerð opin­ber.

Arion hefur sent áætlun um úrbætur

Í athug­un­inni var tekið úrtak 27 við­skipta­vina Arion banka og fram­kvæmd áreið­an­leika­könn­unnar bank­ans á þeim könnuð. Í nið­ur­stöðu athug­un­ar­innar, sem birt var á mið­viku­dag á vef FME, segir að eft­ir­litið hafi gert „athuga­semd við að bank­inn hefði ekki metið með sjálf­stæðum hætti hvort upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur við­skipta­vina væru réttar og full­nægj­andi[...]Þá var gerð athuga­semd við að upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur hefðu ekki verið upp­færðar eða upp­lýs­ingar ekki verið upp­færðar með reglu­legum hætti.“

[adspot]Í til­viki við­skipta­vina, þar sem fram kom í áreið­an­leika­könnun að eng­inn aðili ætti yfir 25 pró­sent hlut í lög­að­ila, var gerð athuga­semd við að ekki hefði verið gripið til rétt­mætra ráð­staf­ana til að afla full­nægj­andi upp­lýs­inga um ein­stak­linga sem í raun stjórn­uðu starf­semi við­skipta­vinar. „Þá gerði Fjár­mála­eft­ir­litið athuga­semd við að í til­viki erlends við­skipta­vinar hefði bank­inn ekki sinnt rann­sókn­ar­skyldu sinni á grund­velli 1. mgr. 17. gr. þágild­andi laga nr. 64/2006, í ljósi upp­lýs­inga sem fram komu við lok við­skipta­sam­bands.“

Þá var gerð athuga­semd við að reglu­bundið eft­ir­lit Arion banka með við­skipta­vinum hefði ekki full­nægt kröfum laga, en þess er þó getið að bank­inn hafði hafið inn­leið­ingu á nýju kerfi vegna reglu­bund­ins eft­ir­lits þegar athug­unin fór fram. „Einnig var gerð athuga­semd við að verk­lag í tengslum við upp­færslu á upp­lýs­ingum um við­skipta­vini hefði ekki full­nægt 6. gr. þágild­andi laga nr. 64/2006. Loks var gerð athuga­semd við að skýrslur bank­ans um grun­sam­legar og óvenju­legar færslur hefðu ekki verið full­nægj­andi, sbr. 3. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 17. gr. þágild­andi laga nr. 64/2006.“

Í kjöl­far þess að nið­ur­staðan lá fyrir óskaði FME eftir því við Arion banka að hann fæli innri end­ur­skoð­anda sínum að meta úrbætur sem bank­inn gerði í kjöl­far athug­an­ar­innar og að hann myndi skila skýrslu til eft­ir­lits­ins um hvernig þær yrðu fram­kvæmdar.

Í nið­ur­stöðu­skjali FME segir: „ Í skýrsl­unni kemur fram að bank­inn hafi brugð­ist við öllum útbóta­kröfum og telj­ist úrbótum við athuga­semd­unum lokið í öllum til­fellum nema einu, en bank­inn vinnur að því að ljúka úrbótum í tengslum við reglu­bundið eft­ir­lit. Bankinn hefur sent Fjár­mála­eft­ir­lit­inu áætlun um úrbætur og mun Fjár­mála­eft­ir­litið fylgja þeim eftir. Rétt er að taka fram að með hlið­sjón af eðli athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og þeirra athuga­semda sem gerðar voru féllst stofn­unin á beiðni Arion banka hf. um að til­kynn­ing um nið­ur­stöðu athug­un­ar­innar yrði ekki birt fyrr en innri end­ur­skoðun bank­ans hefði skilað skýrslu um úrbæt­urnar.“

Ísland fékk falleinkunn

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um slakar varnir Íslend­inga gegn pen­inga­þvætti und­an­farin miss­eri. Í byrjun jan­úar greindi Kjarninn frá því að í fyrra­vor hafi Ísland fengið aðvörun. Annað hvort myndu stjórn­völd þar taka sig til og inn­leiða almenni­legar varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka eða landið myndi verða sett á lista alþjóð­legu sam­tak­anna Financial Action Task Force (FATF) um ósam­vinnu­þýð ríki.

Ólafur Þór Hauksson, hér­aðs­sak­sókn­ari, var spurður af því í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut 3. októ­ber síð­ast­lið­inn hvort aðgerðir Íslend­inga til að koma í veg fyrir að pen­inga­þvætti hefðu verið við­un­andi á und­an­förnum árum. „Þessu eru auðsvarað,“ sagði Ólafur, „nei það er það ekki.“

Í úttekt sam­tak­anna á stöðu mála Íslandi, sem var gerð opin­ber í apríl 2018, fengu varnir Íslands gegn pen­inga­þvætti fall­ein­kunn. Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­legar, og Ísland færi á lista FATF yfir ósam­vinnu­þýð ríki myndi það, að mati inn­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­legan hnekki.

Ef Ísland yrði sett á slíkan lista myndi það einnig leiða til þess að gerðar yrðu strang­ari kröfur til lands­ins og aðila sem þar búa um hvers konar fjár­mála­starf­semi, stofnun úti­búa, dótt­ur­fé­laga og umboðs­skrif­stofa og jafn­vel útgáfu aðvar­ana um að við­skipti við íslenska aðila sem gætu falið í sér hættu á pen­inga­þvætti.

Ný lög tóku gildi

Skýrsla FATF ýtti veru­lega við málum hér­lendis. Það þurfti að bregð­ast við þessum athuga­semdum hratt, auk þess sem fyrir lá að fjórða pen­inga­þvætt­is­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins yrði tekin upp í samn­ingnum um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) í des­em­ber 2018.

[adspot]Starfs­hópur á vegum dóms­mála­ráð­herra var því settur í að semja frum­varp um heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Sú vinna skil­aði því að Sigríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, lagði fram frum­varp um ný heild­ar­lög 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Málið var afgreitt frá efna­hags- og við­skipta­nefnd 12. des­em­ber og síð­ari tvær umræður kláraðar dag­inn án ann­arra ræðu­halda en Brynjars Níels­sonar, sem mælti fyrir nefnd­ar­á­liti um málið sem full­trúar alla flokka skrif­uðu undir.

Frum­varpið varð að lögum með öllum greiddum atkvæðum þing­manna þann sama dag. Þau tóku gildi þann 1. jan­úar 2019.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu sagði að nauð­syn­legt yrði að fara í heild­ar­end­ur­skoðun á gild­andi lögum þar sem gera þarf veru­legar úrbætur á lög­unum til að upp­fylla þær lág­marks­kröfur sem gerðar eru á alþjóða­vett­vangi.

Enn á eftir að koma í ljós hvort að hertar aðgerðir Íslend­inga muni duga FATF.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár