Kvenleg reynsla, ósvikin kómík

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um sýn­ingu Reykja­vik Ensemble, Pol­is­hing Iceland.

Reykjavik Ensemble í samvinnu við Tjarnarbíó: Polishing Iceland

Höfundur: Eva Marcinek

Leikgerð, leik­stjórn og hönnun bún­inga: Pálína Jóns­dóttir

Leiktexta­fræð­ingur: Angela Rawlings

Tónlist og hljóð­hönnun: Anna Hall­dórs­dóttir

Hönnun lýs­ingar: Juliette Louste

Leikarar: Magda­lena Tworek, Michael Richardt, Pétur Óskar Sig­urðs­son

Pol­is­hing Iceland er það sem á stundum hefur verið kallað „lík­am­legt leik­hús“ – sem er leik­list sem byggir á sterkri og með­vit­aðri lík­ams­tján­ingu leik­ar­ans. Meist­arar slíks leik­húss í Evrópu eru menn á borð við Jerzy Grotowski sem ýtti hug­mynd­inni um lík­ams­tján­ingu leik­ar­ans út á ystu nöf og gerði kröfur til leik­ara sinna um að beita lík­am­anum á óhefð­bund­inn hátt og fara út fyrir real­isma og nat­úr­al­isma til að geta fangað kjarna þeirrar til­finn­ingar sem verið var að tjá. Leikhús það sem kennt er við Grotowski er einatt nefnt „The Poor Theatre“, sem lýsir vel þeim mínímal­isma sem hann beitti; áherslan var á leik­ar­anum og tján­ingu hans. Það má einnig nefna í þessu sam­bandi Eugenio Barba, ítalskan leik­stjóra sem vann um tíma með Grotowski en ferð­að­ist síðar til Indlands þar sem hann sótti inn­blástur í ind­verska dans­inn Kathakali, sem var nýmæli á Vest­ur­löndum. Ekki má heldur gleyma snill­ingum á borð við Peter Brook, Jacques Copeau og Joan Littlewood, sem öll voru inn­blásin af jap­anska No-leik­hús­inu; for­veri þeirra var faðir „leik­húss grimmd­ar­innar“, Antonin Artaud, sem sótti inn­blástur í leik­hús­menn­ingu Bali. Þessir frum­kvöðlar lögðu grunn­inn undir þá stefnu að brjóta tján­ingu hins vest­ræna leik­ara úr menn­ing­ar­viðjum hennar – en, eins og leiða má rök að, er einnig leik­listin undir þá menn­ingu lögð þar sem hún á sér stað.

Þetta „lík­am­lega leik­hús“ ein­kenn­ist af því að leik­ar­inn nýtir sér í rík­ari mæli tón­list, dans, mynd­list og fleira í þeim dúr en aðeins hið hefð­bundna „leik­hús orðs­ins“, sem er og hefur verið ríkj­andi tján­ing­ar­form leik­húss á Vest­ur­löndum – enda liggja rætur þess í leik­list forn­grikkja, sem var til á fimmtu öld fyrir Krist og mark­að­ist af sterkri, retórískri orð­ræðu, enda hluti af sam­fé­lags­þróun þeirra tíma þar sem einnig mælsku­list og lýð­ræði hasl­aði sér völl í stjórn sam­fé­lags­ins og menn­ingu þess. Þá eru einnig mörkin milli sviðs og salar, leik­ara og áhorf­anda, einatt rofin þannig að úr verður líkt og Brechtísk nálgun sem kallar á sam­eig­in­legan skiln­ing beggja vegna sviðs­brúnar – áhorf­endur fá að upp­götva í stað þess að ein­göngu treysta á til­finn­ingar sínar. Þannig ögrar hið „lík­am­lega leik­hús“ hinu Aristótel­íska leik­húsi, þar sem áhorf­endur áttu að ganga í gegnum til­finn­inga­lega hreinsun og í stað þess öðl­ast nýjan, vit­rænan skiln­ing á sam­fé­lag­inu og sam­tím­anum.

Þessi leikstíll er sem fyrr segir ráð­andi í sýn­ingu Pálínu Jóns­dóttur þar sem smá­sögur Evu Marcinek liggja til grund­vallar; þær segja frá reynslu hennar sem inn­flytj­anda til Íslands frá Póllandi og það verður ekki annað sagt en Eva hafi bæði næmt auga og góða til­finn­ingu fyrir menn­ing­ar­mun þeim, sem ríkir á milli hinna tveggja menn­ing­ar­heima, Póllands og Íslands. Nú skal það tekið fram að und­ir­rit­uðum hefur ekki gef­ist færi á að lesa sögur hennar í frum­gerð, en ef marka má þau atriði sem fljúga hjá á leik­sviði Tjarn­ar­bíós nálg­ast hún við­fangs­efnið með bæði klínískri nákvæmni, eft­ir­breytn­is­verðri virð­ingu og miklum húmor. Þar með einnig sagt að hún sneiðir hjá klisjum og ódýru for­dómakitli, sem er ekki síður til fyr­ir­myndar og styrkir hina list­rænu við­leitni.

[adspot]Sýn­ing­ar­höf­und­inum og leik­stjór­anum Pálínu Jóns­dóttur nýt­ist þessi efni­viður vel og hún býr hann í sviðs­gerð sem er einkar frjáls­leg, hríf­andi og örvandi fyrir ímynd­un­ar­afl áhorf­and­ans; áhorf­and­inn er þannig virkj­aður og verður óhjá­kvæmi­lega hluti af sýn­ing­unni.

Pol­is­hing Iceland er vissu­lega tví­ræður tit­ill, ef ekki þrí­ræður: Hér er verið að slípa mynd­ina af Íslandi og fanga það sem er ein­kenn­andi, það er verið að gera Ísland ívið pólskara – og veitir kannski ekki af! – og það má jafn­vel finna vott af gagn­rýni á þá við­leitni okkar að fegra Ísland og allt sem íslenskt er. Við fylgj­umst með hinum pólska inn­flytj­anda, sem leik­inn er af Magda­lenu Tworek, þar sem hún tekst á við menn­ing­ar­á­rekstra sem eiga sér óhjá­kvæmi­lega stað í hinu nýja heima­landi; hinn súr­r­eal­íski heimur snýr að öllu mann­legu: tungu­mál­inu, siðum, mat og – lík­ams­tján­ing­unni.

Sýningin sam­anstendur af stuttum atriðum, eins konar svip­myndum, sem sýna hvernig átök geta orðið til milli tveggja menn­ing­ar­heima. Sumt kemur þar á óvart, annað hljómar frekar kunn­ug­lega eins og við má búast. En allar eru þessar svip­myndir tær dæmi um hvað mætir þeim sem ætlar sér að takast á við að sam­sama sig nýjum siðum, nýjum skiln­ingi og nýrri menn­ingu. Þetta er ver­öld sem allir inn­flytj­endur heims­ins kann­ast við og það eru til allrar ham­ingju æ fleiri Íslend­ingar líka farnir að kann­ast við þessi atvik enda fjölgar hratt þeim Íslend­ingum sem deilt hafa kjörum með öðrum þjóðum. Sýning Reykja­vik Ensemble – já, sjálf stofnun og til­urð þessa leik­hóps! – er áþreif­an­leg sönnun þess að Ísland fær­ist nær því að verða hluti af alheimi og við Íslend­ingar hluti af mann­kyni heims­ins.

Þá skaðar ekki heldur að yfir sýn­ing­unni hvílir sterkur andi kven­legrar reynslu og kven­legra gilda. Það þarf kannski ekki að koma á óvart – þrí­eykið Eva Marcinek, Pálína Jóns­dóttir og Magda­lena Tworek eru greini­lega vel með­vit­aðar um að reynsla og upp­lifun kvenna af því að vera lít­il­magn­inn er ann­ars eðlis en reynsla karla og það er hreint ekk­ert að því að vera minntur á það af og til. Það er svo bara meira gaman að því þegar það er gert með ósvik­inni kómík eins og gert er í Pol­is­hing Iceland, en leik­ar­arnir ná að halda hár­fínu jafn­vægi milli þeirrar kómíkur sem í sögum Evu Marcinek býr og þess boð­skapar sem sögur hennar koma á fram­færi.

Leikið er á þremur tungu­málum, sem veldur þó engum mis­skiln­ingi, svo greini­lega sem allt er fram sett og tjáð: íslenskan, pólskan og enskan hljóma nokkuð jöfnum höndum og eiga á sinn hátt sinn þátt í að valda mis­skiln­ingi og greiða úr honum; en alls staðar má finna næmni fyrir efn­inu og það klætt í mál­fars­legan og lík­am­legan bún­ing af því tagi sem við erum óvön hér á landi. Það er auð­séð og auð­fundið að Pálína og leik­hópur hennar hefur borið með sér and­blæ fram­andi menn­ingar inn á leik­svið Tjarn­ar­bíós og það er vel. Íslenskt leik­hús hefur einatt borið með sér að vera háð orð­inu sem er í sjálfu sér ekk­ert ein­kenni­legt – við teljum okkur bók­mennta­þjóð og byggjum að stórum hluta sjálfs­mynd okkar á því og það hlýtur því að vera kapps­mál að færa orðs­ins list upp á leik­sviðið og koma þá einnig orðum yfir alla þá list sem treystir á ann­ars konar tján­ingu – dans og hreyf­ingu, mynd­list, tón­list. Það hefur verið okkar ríki­dæmi, bóka­þjóð­ar­innar. En Pálína sem list­rænn stjórn­andi Reykja­vik Ensemble og hennar list­ræna teymi sýnir og sannar að til er annað ríki­dæmi sem er ekki síður magnað og nær að fanga til­finn­ingu og stemn­ingu sem hefð­bundin orð ná ekki yfir.

Eitt skal áréttað: hér hefur orðið tíð­rætt um hið „lík­am­lega leik­hús“ og bent á frum­kvöðla sem kunna að hafa veitt leik­stjór­anum Pálínu Jóns­dóttur inn­blástur og hug­hrif. En það er einnig nauð­syn­legt að geta þess, að sem leik­stjóri bregður hún sínum eigin lit á allt sem fram fer á svið­inu. Pálína er leik­ari og dans­ari að mennt og hefur einkum starfað í Banda­ríkj­unum þar sem hún lauk námi frá MFA Theatre Directing Program við Háskól­ann í Columbia, en þar áður hafði hún starfað meðal ann­ars sem leik­ari um ára­bil. Yfir­bragð sýn­ingar hennar ber vitni um hennar eigin stíl og áferð. Hreyf­ingar leik­ar­anna þriggja eru skýrt og vel skipu­lagðar, ekk­ert smá­at­riði er til­viljun háð heldur hluti af frá­sögn­inni og miðlar merk­ingu; þessi vinnu­brögð eru fáséð á íslensku leik­sviði og væri svo sann­ar­lega gaman að sjá áhrifa af þessum vinnu­brögðum gæta víðar.

Reykja­vík Ensemble er alþjóð­legur leik­hópur sem stofn­aður var á síð­ast­liðnu ári og Pálína Jóns­dóttir er list­rænn stjórn­andi hans. Það er ósk­andi að þessi frjóa og eggj­andi við­bót við íslenskt leik­hús­líf fái að vaxa og dafna um langa fram­tíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár