Með sköpunargleði og leikgleði að vopni

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Djáknann á Myrká sem sett er upp af Miðnætti leik­húsi.

Miðnætti leikhús í samvinnu við Leikfélag Akureyrar og Tjarnarbíó: Djákninn á Myrká – sagan sem aldrei var sögð

Handrit og söng­textar: Agnes Wild og leik­hóp­ur­inn

Leik­stjórn: Agnes Wild

Leikmynd og bún­ingar: Eva Björg Harð­ar­dóttir

Lýsing: Lárus Heiðar Sveins­son

Tónlist og hljóð­mynd: Sigrún Harð­ar­dóttir

Leikarar: Birna Pét­urs­dóttir, Jóhann Axel Ing­ólfs­son

Leik­hóp­ur­inn Miðnætti leik­hús á rætur norðan heiða en hefur nú lagt land undir fót og sótt

höf­uð­stað­inn heim til að sýna Djáknann á Myrká – sög­una sem aldrei var sögð. Und­ir­tit­ill­inn hljómar dálítið eins og öfug­mæli, því ef það er eitt­hvað sem Miðnætti leik­hús gerir, þá er það einmitt að segja sög­una – kannski eins og hún hefur aldrei verið sögð, kannski eins og hefði átt að segja hana frá upp­hafi eða jafn­vel eins og hún fær loks­ins að vera sögð. Hvað sem því líður, fer ekki á milli mála að Mið­næt­ur­fólkið segir sög­una af Djákn­anum á Myrká, Guðrúnu, vinnu­konu á Bægisá og fjölda­mörgu öðru fólki í sveit­inni á kostu­legan hátt og óborg­an­legan! Það er auð­séð að frá­sagn­ar­gleðin og leik­gleðin ræður ríkjum í leik­hóp mið­nætt­is­ins!

Það mætti ætla að sagan af djákn­anum á Myrká er kunn­ari en svo að þurfi að eyða á hana mörgum orðum. Þó má rekja efni hennar stutt­lega, les­endum til hægð­ar­auka við að átta sig á þræði hennar, þótt hann sé löngu orð­inn hluti af okkar sam­eig­in­lega menn­ing­ar­arfi, sem flestir gætu trú­lega rakið í svefni.

Guðrún, áður­nefnd vinnu­kona prests­ins á Bægisá, er í þingum við djákn­ann, sem er að Myrká; sá á grá­föx­óttan hest sem heitir Faxi. Nú ríður djákn­inn til Bægisár og býður Guðrúnu til jóla­gleði að Bægisá og kveðst munu sækja hana á til­teknum tíma. Þetta er auð­vitað að vetri til og þegar djákn­inn er á leið heim á Myrká eftir fund­inn með Guðrúnu er komin asa­hláka og leys­ing og þegar hann ríður yfir brúna á Hörgá fer ekki betur en svo að brúin brotnar undan honum og hest­inum, djákn­inn ferst en hest­ur­inn kemst til Myrkár. Nú fara engar fréttir milli Myrkár og Bægisár, þannig að Guðrún á ekki von á öðru en að djákn­inn sæki hana fyrir jóla­gleð­ina eins og um var samið. Þegar barið er að dyrum á Bægisá á til­settum tíma fer Guðrún út og sér þar fyrir Faxa og mann­veru hjá, sem hún telur vera djákn­ann, sem þó er eitt­hvað und­ar­legur í háttu. Hún hefur brugðið um sig hempu, en ekki haft tíma til að fara í ermarnar og sest á bak hest­inum fyrir aftan djákn­ann. Tungl veður í skýjum en þegar ský rekur frá tungli sér Guðrún aftan á hnakka djákn­ans og glittir þar í bera höf­uð­kúp­una. Djákninn ríður með Guðrúnu til kirkju­garðs­ins á Bægisá og ætlar þar að tæla hana með sér í opna gröf, en þegar hann kippir í hempu hennar kemur sér vel að hún hafði ekki farið í ermarnar, djákn­inn steyp­ist ofaní gröf­ina sem lok­ast á eftir honum, en Guðrún bregður á það ráð að kippa í klukku­streng­inn og hringir án afláts uns menn koma frá Myrká og bjarga henni til bæjar. Draugur djákn­ans – því það var hann sem hafði sótt Guðrúnu til Bægisár og ætlað að trylla hana ofaní gröf­ina – ofsótti Guðrúnu eftir þetta og þurfti að kveðja til galdra­mann frá Skaga­firði til að kveða hann niður. Það tókst, en Guðrún varð aldrei söm og áður.

[adspot]Það má vel velta því fyrir sér hversu „happy“ þessi endir er – fyrir utan að vera áhrifa­mikil drauga­saga, sem sögu­menn fyrri tíma hafa eflaust haft enda­laust gaman af að segja auð­trúa áheyr­endum í skamm­deg­is­myrkri bað­stof­unnar hefur sagan hugs­an­lega líka verið sögð ungum stúlkum til varn­aðar, að þær skyldu nú ekki hlaupa í granda­leysi á eftir hvaða slóða sem er; og jafn­vel má hugsa sér að lægra settar vinnu­konur væru var­aðar við því að leggja lag sitt við sér hærra setta í sam­fé­lag­inu, að slíkt gæti aldrei endað vel.

Hvað um það – í sög­unni um Djáknann á Myrká má finna merki­legt frá­sagn­ar­tækni­legt stíl­bragð, sem hún er nokkuð ein um í íslenskum sagna­arfi. Sagan breytir sumsé um sjón­ar­horn í miðjum klíðum og um stund­ar­sakir. Frá því að vera eins hlut­læg frá­sögn og hugs­ast getur – eins og líkt er farið um flestar þjóð­sögur – ger­ist það að frá­sögnin lýsir því sem Guðrún ein er til vitnis um: fund­inum með draug djákn­ans, hinni þöglu reið til Myrkár þar til kemur að Hörgá þar sem Guðrún sér hvítan blett í hnakka draugs og síðan reið­inni í kirkju­garð þangað til komið er að Guðrúnu hringj­andi klukk­unum. Það kemur hvergi fram í sög­unni að Guðrún hafi sagt neinum öðrum frá atvikum en það er skýrt tekið fram að hún hafi aldrei orðið söm eftir sem áður. Í þeirri frum­gerð sög­unnar sem við þekkjum úr Þjóð­sögum Jóns Árna­sonar er málið leyst þannig að vitnað er til tveggja ólíkra til­brigða sög­unnar – í öðru til­brigð­inu er það til­viljun sem veldur því að Guðrún sér hinn hvíta blett í hnakka draugs, í hinu lyftir hún hatti djákn­ans og sér þá blett­inn. Áheyranda er gef­inn frjáls kostur með það hvoru hann trúir, en með því að gefa kost á tveimur til­brigðum er trú­verð­ug­leiki sög­unnar styrktur.

Þetta getur valdið nokkrum vand­ræðum hverjum þeim, sem ætlar að túlka sög­una í öðru list­formi og í þeim dæmum sem und­ir­rit­aður man í svip­inn hefur þetta staðið í mönnum; það hefur ein­fald­lega ekki tek­ist að skapa trú­verð­uga sögu þegar kemur að því að Guðrún er ein til frá­sagnar og ber þar tvennt til: ann­ars vegar er val­kost­ur­inn úr sög­unni, áhorf­andi fær bara eitt til­brigði sög­unnar og fær því ekki að velja og hins vegar er sagan sögð með Guðrúnu sem aðal­sögu­hetju. Hversu við­felldin sem Guðrún kann að þykja er það nú engu að síður hún sem gengur í gildru draugs djákn­ans og það hlýtur því að ganga illa upp að gera hana að hetju sög­unnar.

Það er því ótrú­lega gaman að sjá, að mið­nætt­is­fólkið skýtur sér fim­lega hjá þessu vanda­máli og leysir það á frá­bæran hátt, ein­fald­lega með því að treysta leik­hús­form­inu og áhorf­endum þess. Lausnin er því eig­in­lega jafn ein­föld og hún er snjöll – en það er með hana eins og egg Kól­umbusar, það þarf ein­hver að láta sér detta þetta í hug!

Hér er það ein­fald­lega gert með því að breyta í sífellu um sjón­ar­horn! Og það er hægt með því að leik­hús­at­burð­ur­inn sjálfur er sögu­heim­ur­inn, það eru leik­ar­arnir sem kynna sög­una og per­sónur hennar og svo eru það hinar ýmsu per­sónur sem fá hver sína „fimmtán mín­útna frægð“ til að baða sig í; með því að treysta á sam­band þeirra Birnu og Jóhanns Axels við áhorf­endur og að áhorf­endur fylgi þeim eftir – ekki Guðrúnu! – þá er vanda­málið með trú­verð­ug­leika sögu­manns og/eða Guðrúnar hrein­lega leyst. Þar með er líka annað vanda­mál úr sög­unni, sem oft hefur valdið vand­ræðum þeim, sem miðla vilja menn­ing­ar­arfi til nýrra kyn­slóða, en það er sjálft tungu­málið og frá­sagn­ar­stíll­inn. Tungumál nítj­ándu aldar, þegar sagan af Djákn­anum á Myrká er færð í letur, er býsna forn­legt nú, í upp­hafi hinnar tutt­ug­ustu og fyrstu aldar, og frá­sagn­ar­stíll­inn frá­brugð­inn því sem nú ger­ist í fjöl­miðlum. Miðnætti leik­hús færir frá­sögn­ina sem slíka til nútím­ans, beitir nútíma stíl­brigðum í frá­sögn og fram­setn­ingu og hikar ekki við að færa sér í nyt öll kómísk áhrif sem vinna má af því. Ef eitt­hvað er, eykur það trú­verð­ug­leik­ann enn frekar og verður meðal ann­ars til þess að atriðið þegar draug­ur­inn er kveð­inn niður verður áhrifa­mikið og átak­an­legt. Eða, ef not­ast má við slang­ur­yrði: gæsa­húð­ar­legt!

Sýningin var unnin af leik­hópi og list­rænum stjórn­endum í því sem í leik­skrá er kallað „sam­sköp­unar“ aðferð, á ensku „devised“. Í gamla daga, þ.e. í árdaga frjálsra leik­hópa á Íslandi á sjö­unda ára­tugnum, var slík hóp­vinna ein­fald­lega kölluð leiksmiðja, enda var hér starf­andi leik­hópur sem kall­aði sig því nafni og sýndi nokkrar athygl­is­verðar sýn­ingar á sínum tíma. Það er ekk­ert að því að nota það góða orð, leiksmiðju, yfir sýn­ingu Mið­nættis leik­húss.

Það má hafa fleiri orð um vinnu Mið­nættis leik­húss um umbreyt­ing­una á þjóð­sög­unni yfir í nútíma leik­hús­verk – en látið nægja, að hér var fal­legt þrek­virki unnið, sem svo sann­ar­lega má kanna hvort henti ekki fleiri sögum úr menn­ing­ar­arfi okkar Íslend­inga og er Miðnætti leik­húss hvatt til þess.

Leikarar eru aðeins tveir, auk mjög virkrar hljóð­myndar, sem hönnuð er af Sigrúnu Harð­ar­dóttur. Þau Birna Pét­urs­dóttir og Jóhann Axel Ing­ólfs­son eru bæði ungir leik­arar, hún útskrifuð frá Rose Bruford College of Theatre & Performance í London, hann frá Stella Adler Studio of Acting í New York. Bæði hafa þau leikið nokkuð hér á landi að námi loknu, mest­megnis norðan heiða hjá Leik­fé­lagi Akur­eyrar. Þau bera þess merki að vera menntuð sínu hvoru megin Atl­antsála, leikstíll þeirra er nokkuð mis­mun­andi og má sjálf­sagt benda á að Rose Bruford lagði á sínum tíma ívið meiri rækt við hið tal­aða mál en Stella Adler; báðir skól­arnir styðj­ast þó að veru­legu leyti við aðferð Stan­isla­kv­skíjs, sem kveður á um að leik­ar­inn eigi að styðj­ast við til­finn­ingar sínar í karakt­er­sköpun og leik; þó hefur Stella Adler bætt þar í og kveður líka á um að leik­ar­inn skuli styðj­ast við ímynd­un­ar­afl sitt líka.

Sá leikstíll sem Djákninn á Myrká – sagan sem aldrei var sögð krefst er ákaf­lega hraður. Þau Birna og Jóhann Axel leika sam­tals um tutt­ugu hlut­verk og hvert þeirra þarf að meit­l­ast skýrum dráttum og hiklausum, ímynd karakt­ers­ins svo djúp og afdrátt­ar­laus að hann beri sögu sína með sér. Það má styðja það rökum að þau sæki að sumu leyti hvort í sinn skól­ann við karakt­er­sköp­un­ina og hefði leik­stjór­inn, Agnes Wild, mátt stilla þau ívið betur saman hvað það varðar – Birna meit­lar hvern karakter skýrum dráttum, en grunnum meðan karakt­erar Jóhanns Axels eru meira á dýpt­ina en ekki að sama skapi skarpir. En þetta kemur þó lítið að sök; mestu skiptir að sam­leikur þeirra og tækni­legt öryggi er með ágætum og skilar sér í fjör­legri, bráð­skemmti­legri og mein­fynd­inni sýn­ingu sem gerir hvort tveggja í senn, að miðla mik­il­vægum menn­ing­ar­arfi þjóð­ar­innar á sínum eigin for­sendum og skapa eft­ir­minni­lega leik­sýn­ingu sem bara allir ættu að sjá!

[adspot]Aðeins er minnst á hljóð­mynd Sigrúnar Harð­ar­dóttur, en má þó hnykkja á því að hún skapar ákaf­lega fal­legan hljóm fyrir alla sýn­ing­una, stemn­ingin er í anda þess tíma sem sagan ger­ist, sem er í fyrri daga, í gamla daga og fyrir langa löngu. Leikmynd og bún­ingar Evu Bjargar Harð­ar­dóttur eru með sama móti, ein­faldir svo hægt sé að skipta um karakter eins snögg­lega og þarf, en jafn­framt dæmi­gerðir fyrir fyrri daga, gamla daga og fyrir langa löngu og leik­myndin bregður sér líka í alls kyns hlut­verk – þarna er kirkju­bekkur sem þjónar líka sem nokkrir hestar og orgel sem einnig er tún­garður; að öðru leyti er leik­myndin mínímal­ísk sem hentar frá­sagnar- og leikstíl vel, lýs­ingin bætir við þar sem leik­mynd­inni sleppir og skapar ágæt hug­hrif.

Djákninn á Myrká – sagan sem aldrei var sögð er sýn­ing sem hentar öllum aldri og kannski til­valið fyrir kyn­slóðir að fara saman á hana. Eldri kyn­slóðin getur þá furðað sig á því eft­irá hve vel yngri kyn­slóðir geta tekið til sín menn­ing­ar­arf­inn og gert að sínum. Ekki síst þegar hann er bor­inn á borð eins og Miðnætti leik­hús gerir – með sköp­un­ar­gleði og leik­gleði að vopni og af virð­ingu fyrir arf­inum og áhorf­endum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár