Grímur ekki gagnslausar en geta veitt falskt öryggi

Ef fólk í áhættu­hópum þarf að fara út í búð nú á tímum kór­ónu­veirunnar, ætti það að vera með and­lits­grímur og jafn­vel hanska? Grímur geta gert gagn en þær geta líka veitt falskt öryggi.

Grímur verða gagnslitlar þegar þær blotna í gegn.
Grímur verða gagnslitlar þegar þær blotna í gegn. Mynd: EPA

Af erlendum frétta­myndum að dæma mætti halda að and­lits­grímur væru stað­al­bún­aður á þeim svæðum þar sem nýja kór­ónu­veiran hefur breiðst hratt út. Mikið magn þeirra hefur einnig selst hér á landi og dæmi eru um að fólk beri þær nú fyrir vitum er það fer að versla í mat­inn. En gera þær raun­veru­legt gagn og þá hvernig?

„Það hefur í sjálfu sér ekki mikið segja að nota and­lits­grímu til að verja sjálfan sig [smiti],“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir spurður um málið á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra í gær.

Hann sagði að grímur gætu virkað að ákveðnu leyti og hanskar sömu­leiðis en að notkun þessa hlífð­ar­bún­aðar gæti þó gefið falskt öryggi. Benti hann á að and­lits­grímur virki aðeins í ákveð­inn tíma því þegar þær blotna í gegn, sem þær gera smám saman þegar fólk andar í þær, þá eru þær gagns­lausar eða gagnslitlar.

Sama má að sögn Þórólfs segja um hanska. Fólk á það til að gleyma sér með hansk­ana og það er ákveðin kúnst að fara rétt úr þeim svo smit ber­ist ekki af þeim og í við­kom­andi. „Þannig að það getur gefið falskt öryggi,“ ítrek­aði Þórólfur. „Ég held að þeir sem eru veikir fyrir ættu helst að reyna að fá ein­hvern til að fara fyrir sig út í búð.“

[links]Alma Möller land­læknir sagði á fund­inum að vissu­lega væri það nauð­syn­legt fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk að bera grímur er það sinnir veikum og að sjálf­sögðu þegar það hlúir að sjúk­lingum með COVID-19. Það væru hins vegar sér­stakar grímur.

Þá benti hún á að það gæti þurft að setja grímur á smit­aða svo að þeir smiti ekki frá sér. „Svo er eitt sem grím­urnar gera og það er að minna okkur á að vera ekki alltaf að bera hend­urnar upp í vitin og and­litið.“

198 smit höfðu greinst hér á landi í gær­kvöldi. Enn má rekja flest þeirra til útlanda. Rúmlega 2.000 manns eru í sótt­kví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár