Spurt og svarað um COVID-19

Hvers vegna er gott að syngja afmæl­is­söng­inn á meðan maður þvær sér um hend­urnar? Og skiptir hand­þvottur raun­veru­legu máli? Svör við þessu og miklu fleiri spurn­ingum má finna í þess­ari frétt.

Yfir 90 þúsund manns hafa greinst með nýju kórónuveiruna.
Yfir 90 þús­und manns hafa greinst með nýju kór­ónu­veiruna. Mynd: EPA

Uppfært: Þessi frétt var upp­færð með til­liti til fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­inga 16. mars.

Tugir til­fella af nýju kór­ónu­veirunni hafa verið greind hér á landi og í nokkrum lands­hlutum. Hér að neðan er að finna svör við algengum spurn­ingum vegna veirunnar, útbreiðslu hennar og var­úð­ar­ráð­stöf­unum.

Hvað er kórónuveira?

Kór­ónu­veirur eru stór fjöl­skylda veira sem valda ýmsum sjúk­dómum hjá mönnum og dýrum. Þær eru þekkt orsök kvefs en þær geta einnig valdið alvar­legri lungna­bólgu og jafn­vel dauða.

[adspot]

Hvað er vitað um þessa nýju veiru og faraldurinn á þessu stigi?

Orsök núver­andi far­ald­urs er ný teg­und kór­ónu­veiru sem hefur ekki áður greinst í mönnum. Veiran var fyrst nefnt 2019-nCoV en vegna mik­ils skyld­leika við SARS-veiruna hefur hún nú hlotið nafnið SARS-CoV-2 og sjúk­dóm­ur­inn kall­ast nú COVID-19.

Hvernig hagar þessi veira sér samanborið við aðrar kórónuveirur?

Nýja veiran er ekki eins skæð og SARS- eða MERS-kór­ónu­veir­urnar sem höfðu 10% og 35% dán­ar­tíðni, en virð­ist mun meira smit­andi. Þær veirur voru minna smit­andi en inflú­ensa en ollu far­öldrum á ákveðnum svæðum og sjúkra­húsum og dán­ar­tíðni vegna sýk­ing­anna var einnig mun hærri en fyrir inflú­ensu.

Hvaðan kemur veiran?

Uppruni veirunnar virð­ist hafa verið í Wuhan-borg í Kína og tengd ákveðnum mat­ar­mark­aði sem versl­aði með lif­andi dýr og afurðir ýmissa dýra. Veiran virð­ist hafa borist úr leð­ur­blökum, trú­lega með annan óþekktan, milli­hýsil áður en smit barst í menn og loks manna á milli.

Er til bóluefni gegn nýju kórónuveirunni?

Það er ekk­ert bólu­efni til gegn þess­ari veiru og því ekki hægt að bólu­setja.

Hver eru einkennin?

Einkenni líkj­ast helst inflú­ensu­sýk­ingu, hósti, hiti, bein- og vöðva­verkir, þreyta o.s.frv. COVID-19 getur einnig valdið alvar­legum veik­indum með neðri önd­un­ar­færa­sýk­ingum og lungna­bólgu, sem koma oft fram sem önd­un­ar­erf­ið­leikar á 4.–8. degi veik­inda.

Hverjir eru í mestri hættu á að fá alvarleg einkenni?

Líkur á alvar­legum sjúk­dómi hækka með hækk­andi aldri, sér­stak­lega eftir 50 ára aldur. Ein­stak­lingar með ákveðin und­ir­liggj­andi vanda­mál eru einnig í auk­inni hættu á alvar­legri sýk­ingu ef þeir smit­ast af COVID-19 sjúk­dómi. Ekki er vitað nákvæm­lega hversu mikið aukin hættan er ef þessi vanda­mál eru til staðar, en þegar borin eru saman væg og alvar­leg til­felli er greini­legt að ákveðin vanda­mál voru til staðar hjá mun fleirum með alvar­legan sjúk­dóm en vægan sjúk­dóm. Þessi vanda­mál eru: hár blóð­þrýst­ingur/hjarta­sjúk­dómar, syk­ur­sýki, lang­vinn lungna­teppa, lang­vinn nýrna­bilun og krabba­mein.

Ein­stak­lingar sem reykja virð­ast vera í auk­inni hættu á alvar­legum sjúk­dómi en ekki er hægt að úti­loka að þar sé í raun lang­vinn lungna­teppa und­ir­liggj­andi vanda­mál sem eykur alvar­leika sjúk­dóms­ins.

Á þess­ari stundu er óvíst hvort ónæm­is­bælandi með­ferð (s.s. sterar, met­hotrexate eða líf­tækni­lyf) eykur líkur á alvar­legri kór­óna­veiru­sýk­ingu.

Eru karlar líklegri en konur til að smitast?

Rann­sóknir frá Kína benda til þess að fleiri karlar en konur þar í landi hafi veikst vegna veirunnar. Það virð­ist þó eiga sér þær skýr­ingar að þar í landi reykja mun fleiri karlar en konur og reyk­inga­fólk er við­kvæmara fyrir sýk­ingum en annað.

[adspot]

Eru barnshafandi konur í sérstakri áhættu?

Engar upp­lýs­ingar hafa borist um sér­staka hættu fyrir barns­haf­andi konur eða hættu á fylgi­kvillum með­göngu vegna COVID-19.

Hvaða meðferð er í boði?

Engin sér­tæk með­ferð er þekkt við sjúk­dómnum. Meðferð bein­ist því enn sem komið er að því að sinna grunn­þörfum og ein­kennum eftir ástandi sjúk­lings.

Hvað er vitað um smit manna á milli?

COVID-19 smit­ast á milli ein­stak­linga. Smitleið er talin vera snerti- og dropa­smit, svipað og inflú­ensa. Það þýðir að veiran getur dreifst þegar veikur ein­stak­lingur hóstar, hnerrar eða snýtir sér og hraustur ein­stak­lingur andar að sér dropum/úða frá þeim veika eða hendur hans meng­ast af dropum og hann ber þær svo upp að and­liti sínu.

Eru ferðatakmarkanir til Íslands?

Nei, engar ferða­tak­mark­anir eru á ferða­lögum til Íslands. En íslensk yfir­völd vara við ferða­lögum til áhættu­svæða.

Er munur á sóttkví og einangrun?

Sóttkví er notuð þegar ein­stak­lingur hefur mögu­lega smit­ast af sjúk­dómi en er ekki ennþá veikur. Ein­angrun á við sjúk­linga með ein­kenni sjúk­dóms. Hvort sem um sótt­kví eða ein­angrun er að ræða þarf að tak­marka umgengni við annað fólk.

Allir sem staddir eru hér á landi en þurfa að vera í sótt­kví eða ein­angrun í heima­húsi geta haft sam­band við Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins í síma­núm­er­inu 1717 eða á net­spjalli á www.1717.is. Þar er hægt að óska eftir aðstoð, leita stuðn­ings, fá upp­lýs­ingar og ræða við ein­hvern í trún­aði.

Hjálp­ar­sím­inn er opinn allan sól­ar­hring­inn og núm­erið er gjald­frjálst.

Hvernig á að bregðast við ef grunur um smit vaknar?

Hafðu sam­band við lækna­vakt­ina í síma 1700. Ekki fara beint á sjúk­linga­mót­töku, heldur hringja fyrst og fá leið­bein­ingar.

Ein­dregið er óskað eftir að þeir sem leita upp­lýs­inga í tengslum við COVID-19 nýti sér upp­lýs­ingar á heima­síðu emb­ættis land­læknis, fremur en að hringja í emb­ættið.

Þurfa ferðamenn sem hingað koma að fara í sóttkví?

[links]Ferða­menn sem koma til Íslands þurfa almennt ekki að fara í sótt­kví. Talið er að þeir séu ólík­legri að vera í nánu sam­neyti við marga ein­stak­linga meðan á dvöl­inni stendur. Smit­hætta hjá ferða­mönnum er því talin mun minni en frá Íslend­ingum og erlendum rík­is­borg­urum með fasta búsetu á Íslandi.

Stendur til að loka landinu fyrir ferðamönnum?

Sótt­varna­læknir, almanna­varnir og heil­brigð­is­ráð­herra hafa ákveðið að ekki sé ástæða til að loka land­inu. Mögulegt er að smit ber­ist hingað með ferða­mönnum en reynsla ann­arra Evr­ópu­landa hefur sýnt að mesta smit­hættan er frá ein­stak­lingum með náin tengsl við íbúa lands­ins.

Af hverju er ekki skimun fyrir kórónuveirunni á flugvellinum hér?

Ekki er hægt að leita að veirunni hjá ein­kenna­lausum ferða­löngum þar sem hún finnst ekki í vessum fyrr en ein­kenni koma fram. Hita­mæl­ingar og spurn­inga­listar til far­þega frá sýktum svæðum hafa verið not­aðir í fyrri far­öldrum með litlum sem engum árangri. Sóttkví þeirra sem hafa verið á áhættu­svæðum og leit að veirunni ef ein­kenni koma fram er mun væn­legri til árang­urs.

Hvað get ég gert til að forðast smit?

Góð hand­hreinsun er mik­il­væg­asta og ein­faldasta ráðið. Hand­þvottur með heitu vatni og sápu í um 20 sek­úndur er æski­leg­astur ef hendur eru óhreinar. Ágæt tíma­við­miðun er að syngja afmæl­is­söng­inn á meðan hendur er þvegnar.

Hendur sem virð­ast hreinar en hafa komið við sam­eig­in­lega snertifleti eða tekið við hlutum úr ann­arra höndum s.s. pen­ingum eða greiðslu­kortum, má hreinsa með hand­spritti.

Rétt er að forð­ast náið sam­neyti við ein­stak­linga sem eru með almenn kve­fein­kenni, hnerra eða hósta.

Grímur nýt­ast best þegar þeir sem eru veikir nota þær en einnig þegar náið sam­neyti er óhjá­kvæmi­legt, s.s. fyrir heil­brigð­is­starfs­menn eða við­bragðs­að­ila.

Getur fólk smitast við að opna vörusendingar frá áhættusvæði?

Nei.

Á fólk sem á bókaða ferð til útlanda að hætta við að fara?

Sótt­varna­læknir ræður gegn öllum ónauð­syn­legum ferðum á há-áhættu­svæði. Ekki er hægt að spá fyrir um þróun mála á öðrum svæðum og verða ein­stak­lingar sjálfir að taka ákvörðun eftir því sem þeirra eigið heilsu­far eða aðrir þættir gefa til­efni til. Ein­stak­lingar með áhættu­þætti fyrir alvar­legum önd­un­ar­færa­sýk­ingum ættu að hafa sam­ráð við sinn lækni hvað þetta varðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár