„Sögulegur sigur“ þó ýtrustu kröfur hafi ekki náðst

Þrátt fyrir að Efling hafi ekki fengið sínar ýtr­ustu kröfur í gegn í samn­inga­við­ræðum við Reykja­vík­ur­borg lýsir stétt­ar­fé­lagið yfir sögu­legum sigri. Borg­ar­stjóri segir mestu máli skipta að allir séu ánægðir með nið­ur­stöð­una sem náð­ist í nótt.

Talsmenn Eflingar hafa lýst samn­ingi sínum við Reykja­vík­ur­borg sem „sögu­legum sigri“ í verka­lýðs­bar­áttu hér­lendis. Það sem fram hefur komið fram um efni samn­ings­ins er þó nokkuð frá þeim ýtr­ustu kröfum sem Efling setti fram opin­ber­lega í við­ræðu­ferl­inu.

Samt er ánægjan í röðum for­ystu Eflingar mikil. Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður stétt­ar­fé­lags­ins segir við Kjarnann að efn­is­legu kjara­bæt­urnar sem félags­menn fái með samn­ingnum við Reykja­vík­ur­borg séu raun­veru­legar, en sigur Eflingar snúi ekki síður að auknum „sýni­leika og plássi“ sem lág­launa­konur hafi fengið í opin­berri umræðu síð­ustu vikur.

„Það var mjög, mjög, mjög lengi vel ekki boðið upp á neitt sem ég myndi kalla samn­ings­við­ræður. Ekki aðeins náum við að brjót­ast í gegnum þann múr og heyja þessa bar­áttu á okkar eigin for­sendum og með þennan kraft og sjálfs­virð­ingu sem býr í þessum dýr­mæta hópi, sem borgin hefði nátt­úr­lega sjálf átt að mæta við samn­ings­borðið með góða og heild­stæða lausn,“ segir Sólveig, auð­heyri­lega sátt.

Varðandi krónur og aura fór Efling fram á sér­staka „leið­rétt­ingu“ kjara lægst laun­uðu hópanna sem starfa fyrir borg­ina. Slík leið­rétt­ing fékkst, en hún verður þó að hámarki rúmar 22 þús­und krónur umfram þær 90 þús­und króna almennu hækk­anir sem borgin bauð í takt við lífs­kjara­samn­ing­inn. Tæpar átta þús­und krónur fara til allra, vegna breyt­inga á launa­töflum, og svo bæt­ast við leið­rétt­ingar sem hæstar eru 15 þús­und krónur og trapp­ast svo niður upp launa­stig­ann. Lægstu launin hækka því um 112 þús­und krónur á samn­ings­tím­anum.

Í kröfu­gerð sinni fór Efling fram á að þessi sér­staka leið­rétt­ing yrði mest 52 þús­und krónur ofan á lægstu launin, en síðan stig­lækk­andi upp launa­töfl­una. Þessa kröfu verð­mat Stefán Ólafsson, pró­fessor við Háskóla Íslands og sér­fræð­ingur hjá Eflingu, á 1,2 millj­arða króna fyrir borg­ina í grein sem birt­ist á Kjarn­anum í byrjun febr­úar, en ljóst er að leið­rétt­ingin sem samd­ist um á end­anum kostar Reykja­vík­ur­borg eitt­hvað minna, sé miðað við þær sömu for­sendur og Stefán not­ast við.

Kostnaðarmat samninganna í takt við væntingar borgarinnar

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir við Kjarnann að hann geti ekki svarað því nákvæm­lega hvað sú leið­rétt­ing sem Efling náði fram kosti borg­ina sem slík, slíkt mat fari ávallt eftir þeim for­sendum sem stuðst sé við og margir aðrir þættir komi inn í kostn­að­ar­mat samn­ing­anna, stytt­ing vinnu­vik­unnar, leng­ing orlofs og fleiri.[links]

Þá hafi fjöl­mörg þeirra stöðu­gilda sem samn­ing­arnir ná utan um átt að koma til starfs­mats síðar á þessu ári og þeirri vinnu hafi í reynd verið flýtt, sem þýði að hluti þess kostn­aðar borgin ber vegna hinnar svoköll­uðu leið­rétt­ingar hafi verið við­bú­inn.

„Við teljum í raun kostn­að­ar­matið af samn­ing­unum, plús starfs­mat­inu, vera nálægt því sem við mið­uðum við í okkar til­boði, sem hefur legið fyrir um nokk­urt skeið,“ segir Dagur.

Deila enn ekki sömu sýn á það hvað fólst í tilboði borgarinnar

Sólveig seg­ist ánægð með árang­ur­inn. Hún telur mikið hafa áunn­ist eftir því sem á leið á samn­inga­ferlið og bætir við að fyrsta boð borg­ar­innar í við­ræð­unum hafi verið verra en lífs­kjara­samn­ing­ur­inn. Þá hafi einnig mikið gerst frá því að borg­ar­stjóri setti fram hið svo­kall­aða „Kast­ljóstil­boð“, en það hafi ekki verið það sem skrifað var undir, þrátt fyrir að borg­ar­stjóri hafi að hennar mati tjáð sig með þeim hætti í fjöl­miðlum í dag.

„Það er bara aldeilis ekki rétt, veru­leik­inn í samn­inga­her­berg­inu eftir að hann fór fram með þetta marg­um­rædda Kast­ljóstil­boð var sá að þá var verið að bjóða okkur leið­rétt­ingu fyrir um það bil fimm starfs­heiti, en þegar við skrifum undir í nótt erum við að fá leið­rétt­ingu fyrir um það bil tutt­ugu og sex starfs­heiti. Það er nú aldeilis tölu­vert mik­ill árangur myndi ég segja,” segir Sólveig Anna.

„Við höfum ekki sömu sýn á það,“ segir Dagur, spurður út í orð Sól­veigar um að til­boð borg­ar­innar hafi hljó­mað öðru­vísi í Kast­ljós­inu en það sem lagt var fram við samn­inga­borðið. Hann leggur áherslu á að hann sé ánægður með að allir séu ánægðir með það sem á end­anum samd­ist um.

„Við lítum svo á að samn­ing­ur­inn hafi verið gerður á grund­velli til­boðs borg­ar­innar, lífs­kjara­samn­ings­ins og stytt­ingu vinnu­vik­unnar. Það er auð­vitað besta nið­ur­staðan ef allir eru sáttir við útkom­una,“ segir borg­ar­stjóri.

Kórónuveiran í hugum fólks í Karphúsinu

Hann seg­ist per­sónu­lega ánægður með að þess­ari deilu sé lokið. „Það eru ekki síst fjöl­skyldur með börn á leik­skóla­aldri sem hafa fundið mjög yfir þessu, sér­stak­lega eftir að fór að líða á verk­fallið, og eru því fegn­ust að kom­ast í rútín­una,“ segir Dagur.

Borg­ar­stjóri bætir við að nú taki við stórt verk­efni, að búa sam­fé­lagið undir að takast á við útbreiðslu kór­ónu­veirunnar, sem þegar sé byrjuð að reyna á vel­ferð­ar­svið borg­ar­innar. Þá stöðu segir hann hafa haft áhrif á gang við­ræðna hjá öllum þeim hópum sem voru hjá rík­is­sátta­semj­ara um helg­ina.

„Mér fannst í raun allir samn­ings­að­ilar, líka BSRB og ríkið, átta sig á því sam­hengi og að það þyrfti að nota tím­ann mjög vel til að ljúka málum og við getum verið mjög ánægð með það öll að það tókst,” segir Dagur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár