Efling semur við borgina – Verkfallsaðgerðum lokið

Ótíma­bundnu verk­falli Eflingar í Reykja­vík er lokið. Efl­ing­ar­fé­lagar í lægstu flokkum hækka um allt að 112 þús­und krónur á mán­uði. Börn snúa aftur í leik­skóla, dval­ar­heim­ili starfa aftur að fullu og sorp verður hirt með venju­bundnum hætti.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, og Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Samsett

Efling - stétt­ar­fé­lag og Reykja­vík­ur­borg und­ir­rit­uðu í nótt kjara­samn­ing sem gildir til 31. mars 2023. Verk­falls­að­gerðir Eflingar höfðu staðið yfir í meira en mánuð og þar af hafði staðið yfir alls­herj­ar­verk­fall frá miðjum febr­úar sem hafði meðal ann­ars mikil áhrif á starf leik­skóla, dval­ar­heim­ila og á sorp­hirðu. Þeim aðgerðum er nú lokið.

Í til­kynn­ingu frá Eflingu segir að með samn­ingnum sé stigið mik­il­vægt skref í átt að kjara­leið­rétt­ingu lág­launa­fólks og kvenna­stétta.

„Með samn­ingnum hækka byrj­un­ar­laun Efl­ing­ar­fé­laga í lægstu launa­flokkum um allt að rúm­lega 112.000 krónur á samn­ings­tím­anum miðað við fullt starf. Hækkunum umfram 90 þús­und króna taxta­hækkun að fyr­ir­mynd almenna vinnu­mark­að­ar­ins er náð fram með töflu­breyt­ingu sem skapar að með­al­tali um 7.800 krónur í við­bót­ar­grunn­launa­hækkun hjá öllum Efl­ing­ar­fé­lögum og einnig er samið um sér­staka við­bót­ar­hækkun lægstu launa í formi sér­greiðslu.

Sér­greiðslan sem um samd­ist er 15.000 krónur í lægstu launa­flokkum og fjarar út eftir því sem ofar dregur í launa­flokkum. Sér­greiðslan kemur á 26 starfs­heiti Eflingar önnur en þau sem þegar hafa sér­staka kaupauka. Hún mun skila sér í stig­lækk­andi mynd til tæp­lega þriggja af hverjum fjórum Efl­ing­ar­fé­lögum hjá borg­inni.“

[adspot]Þá séu í nýjum kjara­samn­ingi marg­vís­legar aðrar kjara­bætur en grunn­launa­hækk­anir, svo sem stytt­ing vinnu­vik­unnar og að nám­skeiðum og fræðslu verði gefið aukið vægi í launa­myndun ein­stakra starfs­manna. „Efling lítur á samn­ing­inn sem sigur eftir langa og stranga bar­áttu þar sem tek­ist var hart á um rétt­mæti krafna félags­ins og verk­falls­vopn­inu beitt,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að áður þagg­aðar og jað­ar­settar konur, sem fáir höfðu fram að því haft áhuga á, hafi stigið fram í aðgerðum Eflingar með sjálfs­virð­ing­una að vopni og skilað skömm lág­launa­stefn­unnar þangað sem hún á heima. „Lág­launa­konur búa yfir ólýs­an­legum kröftum sem þær ákváðu að nýta í eigin bar­áttu frekar en að fórna sér ævina langa í að taka til eftir aðra,“ sagði Sólveig

„Allar stofn­anir valds­ins stóðu sam­ein­aðar gegn okkur. Okkur átti að berja til hlýðni, eins og tíðkast hefur ára­tugum saman. En Efl­ing­ar­fé­lagar hjá borg­inni hafa fært valda­stétt­inni og raunar sam­fé­lag­inu öllu fréttir; þegar verka­fólk kemur saman í krafti fjöld­ans, sam­stöð­unnar og bar­áttu­vilj­ans þá stöðvar það ekk­ert. Efl­ing­ar­fé­lagar hjá borg­inni hafa skrifað nýjan kafla í sögu íslenskrar verka­lýðs­bar­áttu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár