Verkaskipting ríkislögreglustjóra og lögreglustjóra þarf að vera skýrari

„Erfitt ástand“ og „tor­tryggni“ hafði verið til staðar í sam­skiptum á milli lög­reglu­stjóra og efsta stjórn­un­ar­lags rík­is­lög­reglu­stjóra um langt skeið og nauð­syn­legt er að end­ur­skoða verka­skipt­ing­una þar á milli, sam­kvæmt nýrri úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri.
Haraldur Johann­es­sen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Viðtal Haraldar Johann­es­sen fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóra við Morg­un­blaðið í sept­em­ber og van­trausts­yf­ir­lýs­ing sem Haraldur fékk í kjöl­farið frá átta af níu lög­reglu­stjórum lands­ins voru lýsandi fyrir það „erf­iða ástand og þá tor­tryggni“ sem skap­ast hafði innan lög­reglu vegna langvar­andi ófull­nægj­andi sam­skipta á milli lög­reglu­stjóra og efsta stjórn­un­ar­lags rík­is­lög­reglu­stjóra.

Þetta segir í nýrri úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar á emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, sem birt var í dag. Rík­is­end­ur­skoð­andi telur að það þurfi að breyta lög­reglu­lögum til þess að skýra verka­skipt­ingu rík­is­lög­reglu­stjóra og lög­reglu­stjóra lands­ins.

Rík­is­end­ur­skoð­andi ákvað að höfðu sam­ráði við dóms­mála­ráðu­neytið að ráð­ast í úttekt á emb­ætt­inu í heild sinni í haust, en áður hafði borist beiðni frá emb­ætt­inu sjálfu um að ráð­ist skyldi í úttekt á rekstri bíla­mið­stöðvar rík­is­lög­reglu­stjóra, sem styr hafði staðið um á opin­berum vett­vangi.

Í skýrsl­unni sem birt var í dag bendir rík­is­end­ur­skoð­andi meðal ann­ars á að óein­ing um vald­mörk og yfir­stjórn­un­ar­hlut­verk rík­is­lög­reglu­stjóra hafi und­an­farin ár leitt til þess að lög­reglu­stjórar hafi í auknum mæli leitað beint til dóms­mála­ráðu­neytis vegna ýmissa mála, í stað þess að leita til rík­is­lög­reglu­stjóra.

Mikilvægt að lögregla verði ein heild

Þessa óein­ingu rekur rík­is­end­ur­skoð­andi til skorts á sam­starfi, sam­ráði og upp­lýs­inga­flæði innan lög­regl­unnar. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra kynnti í des­em­ber nýtt lög­reglu­ráð, einmitt til þess að auka sam­vinnu og sam­ráð innan lög­regl­unnar. Það hefur verið starf­andi frá ára­mótum. Í skýrsl­unni er tekið undir það sem dóms­mála­ráðu­neytið hefur gefið út, að lögeglan á Íslandi þurfi í auknum mæli að starfa sem ein heild.

„Skapa þarf skiln­ing og sátt meðal lög­reglu­liða um mark­mið og leiðir, en slíkt næst best fram með sam­ráði, sam­tali, skýrri stefnu­mörkun og mark­vissri eft­ir­fylgni. Þannig telur Rík­is­end­ur­skoðun að nálg­ast þurfi upp­bygg­ingu og skipu­lag lög­gæslu með það fyrir augum að lög­reglan á Íslandi starfi í fram­tíð­inni sem ein lög­regla, eitt lið undir sam­eig­in­legri stjórn, óháð fjölda umdæma eða fyr­ir­komu­lagi ein­stakra verk­efna innan skipu­lags­ins, hvort sem þau eru unnin á lands­vísu eða í nærum­hverf­inu,“ segir í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar.

Slíkt segir rík­is­end­ur­skoð­andi að væri í takt við þá lög­gæslu­þróun sem átt hefur sér stað meðal þeirra ríkja sem Ísland ber sig helst saman við. Jafn­framt mætti með slíku skipu­lagi stór­bæta nýt­ingu þeirra fjár­muna sem ætlað er til lög­gæslu í land­inu á sama tíma og fram­kölluð væru veru­leg áhrif til fag­legrar sam­legðar, hag­kvæmni og skil­virkni.

Rekstur bílamiðstöðvarinnar ógagnsær

Lög­reglu­stjórar lands­ins gagn­rýndu margir rekstur bíla­mið­stöðvar rík­is­lög­reglu­stjóra opin­ber­lega frá því í árs­lok 2018 og fram á mitt síð­asta ár, er óskað var form­lega eftir úttekt á rekstr­inum. Rík­is­end­ur­skoðun segir að margir sam­verk­andi þættir hafi orðið til þess að grund­völlur fyrir áfram­hald­andi rekstri bíla­mið­stöðv­ar­innar brást og sam­staða um mið­lægan sam­rekstur lög­reglu rofn­aði.

Þannig hafi fyr­ir­komu­lagið verið „afar ógagn­sætt“ gagn­vart lög­reglu­emb­ætt­unum og „ekki til þess fallið að skapa skiln­ing og sátt um rekst­ur­inn“, gald­skráin tekið mið af ýmsum öðrum kostn­að­ar­þáttum en rekstri öku­tækj­anna, sem stuðl­aði að óvissu og ágrein­ingi um kostn­að­ar­for­sendur. Einnig hafi kostn­að­ur­inn lagst á lög­reglu­emb­ættin af mis­miklum þunga.

Þá hefði rekstur bíla­mið­stöðv­ar­innar þurft að vera aðskil­inn frá rekstri emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra, „til að stuðla að gagn­sæi rekst­urs­ins og aðgrein­ingu mis­mun­andi kostn­að­ar­þátta og til að fyr­ir­byggja tor­tryggni um að emb­ættið nýtti þá fjár­muni sem lög­reglu­emb­ættin greiddu bíla­mið­stöð­inni í óskyldan rekstur.“

Fyr­ir­komu­lagið var svo einnig, að mati rík­is­end­ur­skoð­anda, „ein­fald­lega of dýrt og og á end­anum ósjálf­bært“ auk þess sem fjár­fest­ing­ar­fram­lag sam­rekst­urs­ins stóð ekki undir nauð­syn­legri end­ur­nýj­un­ar­þörf öku­tækja­flot­ans.

„Athygli vekur að með­al­aldur öku­tækja lög­reglu var hærri á árinu 2018 en þegar ákvörðun var tekin um sam­rekstur á árinu 1998 vegna þess sem þá var talið neyð­ar­á­stand í bíla­málum lög­reglu,“ segir rík­is­end­ur­skoð­andi, sem mælir þó með því að ýmsum verk­efnum bíla­mið­stöðvar verði áfram sinnt með mið­lægum hætti, meðal ann­ars til að tryggja sam­ræmi í tækja­kosti lög­reglu og nauð­syn­lega sam­hæf­ingu í rekstri og eft­ir­liti.

Rík­is­end­ur­skoðun hefur þannig efa­semdir um að lög­reglan í land­inu not­ist í vax­andi mæli við bíla­leigu­bíla og telur þróun í þá átt­ina „umhugs­un­ar­verða“.

„Sérstök örygg­is­sjón­ar­mið kunna að mæla með því að lög­reglan eigi þau öku­tæki sem hún nýtir við lög­gæslu­störf og býr við­kvæmum tækni­bún­aði, þótt lög­reglan sé í öllum til­fellum eig­andi bún­að­ar­ins og fjar­lægi hann að leigu­tíma liðnum. Jafn­framt kunna þær aðstæður að skap­ast að það þætti óheppi­legt að lög­reglan væri háð föstum við­skipta­skuld­bind­ingum við einka­fyr­ir­tæki um leigu á öku­tækjum til langs tíma,“ segir í skýrsl­unni.

Faglegt lögreglustarf öflugt þrátt fyrir togstreitu

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefur umsjón með ýmsum sér­stökum verk­efnum innan lög­gæsl­unnar hér­lendis og ann­ast rekstur sér­sveitar, almanna­varna­deildar, alþjóða­deildar, landamæra­deildar, grein­ing­ar­deildar, stoð­deildar og fleiri ein­inga. Í skýrslu rík­is­end­ur­skoð­anda segir að almennt hafi ríkt góð sátt um þessi verk­efni rík­is­lög­reglu­stjóra og þau sögð til marks um þá „efl­ingu og fram­þróun“ sem átt hefur sér stað frá því emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra var komið á fót árið 1997.

„Faglegt lög­gæslu­starf innan emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra hefur þannig verið öfl­ugt þrátt fyrir tog­streitu um yfir­stjórn lög­reglu á síð­ustu árum,“ segir í skýrsl­unni, en þar eru settar fram sjö til­lögur til úrbóta, sú fyrsta að end­ur­skoða þurfi lög­reglu­lög og skýra hlut­verk rík­is­lög­reglu­stjóra og stöðu emb­ætt­is­ins í lög­gæsl­unni hér­lendis.

„Verka­skipt­ing rík­is­lög­reglu­stjóra og lög­reglu­stjóra þarf að vera skýr og hvaða vald­mörk gilda varð­andi yfir­stjórn­un­ar­hlut­verk rík­is­lög­reglu­stjóra í umboði dóms­mála­ráð­herra. Þá þarf að skýra hlut­verk og ábyrgð nýstofn­aðs lög­reglu­ráðs,“ segir rík­is­end­ur­skoð­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

löggæsla

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár