Ólafur Helgi flyst frá Suðurnesjum í dómsmálaráðuneytið

Ólafur Helgi Kjart­ans­son lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum mun taka við starfi í dóms­mála­ráðu­neyt­inu um næstu mán­aða­mót. Deilur hafa staðið um störf hans innan lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum að und­an­förnu.

Ólafur Helgi Kjartansson
Ólafur Helgi Kjart­ans­son Mynd: Skjáskot úr útsendingu RÚV

Ólafur Helgi Kjart­ans­son lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum mun láta af störfum sem lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum og taka við starfi sér­fræð­ings í mál­efnum landamæra innan dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins um næstu mán­aða­mót.

Embætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum verður aug­lýst á næst­unni, en Grímur Her­geirs­son stað­geng­ill lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­landi verður tíma­bundið settur lög­reglu­stjóri í umdæm­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra flytur Ólaf Helga til í starfi á grund­velli 36. greinar laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins, en þar segir meðal ann­ars að stjórn­vald sem skipað hafi mann í emb­ætti geti flutt emb­ætt­is­mann í annað starf án aug­lýs­ingar.

Ekki kemur fram í til­kynn­ingu um flutn­ing Ólafs hvort hann hafi óskað eftir flutn­ingi sjálfur, en harðar deilur hafa verið um störf hans innan lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum að und­an­förnu og röt­uðu þær í fjöl­miðla í sumar.

Greint hefður verið frá því í sumar að dóms­mála­ráð­herra hafi bæði beðið Ólaf Helga um að láta af störfum og einnig að honum hafi verið boðið að flytj­ast til lög­reglu­stjóra­emb­ætt­is­ins í Vest­manna­eyjum.

„Flutn­ing­ur­inn gefur ráðu­neyt­inu og lög­regl­unni færi á að nýta sér­þekk­ingu hans og reynslu á sviði landamæra­vörslu næstu árin, sér­stak­lega þegar kemur að Schengen sam­starf­inu og þeirri marg­vís­legu sam­vinnu Schengen ríkj­anna á sviði landamæra­gæslu sem hefur verið byggð upp innan Frontex landamæra­stofn­un­ar­innar,“ segir í til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Sem áður segir stendur til að Grímur Her­geirs­son verði tíma­bundið skip­aður í emb­ættið á Suð­ur­nesjum, en einnig mun Margrét Kristín Páls­dóttir, lög­fræð­ingur í dóms­mála­ráðu­neyt­inu, gegna stöðu aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra á sama tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

löggæsla

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár