Lögreglan má nú sekta einstaklinga fyrir að vera ekki með grímu

Lög­reglan hefur fengið auknar sekt­ar­heim­ildir vegna brota á sótt­varna­lögum og reglum þeim tengdum, sam­kvæmt nýjum fyr­ir­mælum frá rík­is­sak­sókn­ara. Nú má sekta ein­stak­linga fyrir að vera ekki með grímu á þeim stöðum þar sem grímu­skylda er í gildi.

Lögreglan hefur fengið auknar heimildir til þess að sekta fólk og forsvarsmenn fyrirtækja fyrir brot gegn sóttvarnalögum, í takt við nýjar reglur sem stjórnvöld hafa sett.
Lög­reglan hefur fengið auknar heim­ildir til þess að sekta fólk og for­svars­menn fyr­ir­tækja fyrir brot gegn sótt­varna­lögum, í takt við nýjar reglur sem stjórn­völd hafa sett. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lög­reglan á Íslandi hefur nú heim­ild til þess að sekta ein­stak­linga um 10 til 100 þús­und krónur fyrir að vera ekki með grímu þar sem grímunotkun er skylda. Nýjar sekt­ar­heim­ildir vegna brota gegn sótt­varna­lögum og reglum sem settar eru sam­kvæmt þeim tóku gildi 14. ágúst, sam­kvæmt fyr­ir­mælum rík­is­sak­sókn­ara.

Þá er einnig komin inn heim­ild til þess að sekta for­svar­menn fyr­ir­tækja fyrir að brjóta reglur um grímunotkun og geta þær sektir numið á bil­inu 100 til 500 þús­und krónur. Nú hefur lög­reglan einnig heim­ild til þess að sekta for­svars­menn starf­semi eða skipu­leggj­endur sam­komu um sömu upp­hæð ef að brotið er gegn þeirri skyldu að tryggja að hægt sé að hafa að minnsta kosti tvo metra á milli ein­stak­linga sem deila ekki heim­ili.

Þetta eru helstu breyt­ing­arnar í nýju fyr­ir­mælum rík­is­lög­reglu­stjóra hvað sekt­ar­heim­ildir varðar, en þar er einnig að finna sekt­ar­heim­ildir á hendum ein­stak­lingum sem brjóta skyldu varð­andi veru í sótt­kví eða ein­angrun, sem numið geta á bil­inu 150 til 500 þús­und krónum.

Einnig er áfram hægt að beita sektum gegn bæði ein­stak­lingum sem sækja sam­komur þar sem of margir eru miðað við gild­andi tak­mark­anir og líka skipu­leggj­endum slíkra sam­koma.

Lögð áhersla á að meta hvert tilvik fyrir sig

Rík­is­sak­sókn­ari segir í fyr­ir­mælum sínum að lögð sé áhersla á að ákærendur meti hvert til­vik fyrir sig og ákvarði sekt­ar­fjár­hæð með hlið­sjón af alvar­leika brots, en ljóst sé að brotin geti verið afar mis­mun­andi og þar með mis­al­var­leg.

Fyrsta sektin fyrir brot á sótt­varna­lögum í heims­far­aldr­inum var veitt hér á landi í apr­íl­mán­uði, en þá var um ræða ein­stak­ling sem hafði ekki farið í sótt­kví eftir að hafa verið í útlöndum. Upp komst um brot hans þegar hann var hand­tek­inn í mið­borg Reykja­víkur fyrir að láta ófrið­lega og sparka í bíla. Hann fékk 50 þús­und króna sekt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár