Segir ríkisstjórnina hafa sofið á verðinum í baráttunni við skipulagða glæpastarfsemi

Þing­maður Sam­fylk­ingar gerði Komp­ásþátt um skipu­lagða glæp­a­starf­semi að umtals­efni sínu á þingi og sagði að auka þyrfti fjár­veit­ingar til lög­gæslu í land­inu. Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks tók undir varn­að­ar­orð en sagði margt hafa verið gert í mála­flokknum.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, skoraði á ríkisstjórnina að bregðast við skipulagðri glæpastarfsemi.
Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, skor­aði á rík­is­stjórn­ina að bregð­ast við skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Mynd: Bára Huld Beck

Auka þarf fjár­veit­ingar til almennrar lög­gæslu að mati Helgu Völu Helga­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. „Enda hefur lög­reglu­mönnum fækkað mikið þrátt fyrir aukin og flókn­ari verk­efni,“ sagði Helga Vala í þing­inu í dag en hún gerði lög­gæslu að umfjöll­un­ar­efni sínu í ræðu sinni í umræðum um störf þings­ins.

„Rík­is­stjórnin hefur sofnað á verð­inum þegar kemur að því að tryggja öryggi borg­ar­anna og berj­ast gegn skipu­lögðum glæpum. Er það í besta falli kæru­leysi en í versta falli afglöp rík­is­stjórn­ar­innar. Þetta varðar manns­líf, herra for­seti, öryggi borg­ar­anna og heil­brigt sam­fé­lag,“ sagði Helga Vala en hún hafði áður bent á að í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar segði að öflug lög­gæsla væri ein af for­sendum þess að öryggi borg­ar­anna sé tryggt.

Helga Vala vís­aði í Komp­ásþátt Vísis sem fjall­aði um mann­drápið í Rauða­gerði. „Margeir Sveins­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá mið­lægri rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir þar aðspurður að lög­reglan hafi að sjálf­sögðu viljað vakta ferðir ein­stak­lings sem grun­aður var um að bera skamm­byssu með hljóð­deyfi, en að lög­reglu skorti hvort tveggja mann­afla og tíma til að geta sinnt slíkum verk­efnum. Maður ferð­ast sem sagt um landið vopn­aður skamm­byssu með hljóð­deyfi með vit­neskju lög­reglu sem getur ekki aðhafst vegna fjár­skorts,“ sagði Helga Vala.

Hún skor­aði á rík­is­stjórn­ina að bregð­ast við áður en það yrði um seinan.

Margt verið gert til að stemma stigu við glæpastarfsemi

Birgir Ármanns­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði fulla ástæðu til taka undir við­vör­un­ar­orð Helgu Völu í ræðu sinni undir sama dag­skrár­lið. Hann sagði það vera rétt sem komið hefði fram hjá lög­reglu­yf­ir­völdum að skipu­lögð glæp­a­starf­semi væri vax­andi vanda­mál.

„Hins vegar held ég að rétt sé að halda því til haga að rík­is­stjórnin hefur ekki, eins og hátt­virtur þing­maður lét í veðri vaka, setið aðgerða­laus og látið þessa þróun eiga sér stað án þess að bregð­ast við með ein­hverjum hætti. Það er langt því frá,“ sagði Birgir í kjöl­farið.

Hann sagði að fjallað hefði verið um þessi mál á vett­vangi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar. Farið hafi verið í sér­stakt átak til að auka sam­vinnu lög­reglu­emb­ætta auk þess sem auknu fjár­magni hafi verið varið í rann­sóknir á þessu sviði. Í þriðja lagi hefðu verið gerðar ýmsar breyt­ingar á lög­gjöf á þessu sviði.

„Hér hafa verið laga­breyt­ingar sem hafa falið í sér breyt­ingar sem varða pen­inga­þvætti, vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga í lög­gæslu­skyni, fram­sal saka­manna. Við hér í þing­inu erum með breyt­ingu á lög­reglu­lögum sem meðal ann­ars á að svara þörf að þessu leyti. Við erum að breyta Schengen-reglum til að auð­velda okkur að nýta upp­lýs­inga­kerfi í þessu skyni og svo má lengi telja,“ sagði Birgir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

löggæsla

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár