Næstu tvær helgar áskorun fyrir lögregluna

Lög­reglan er til­búin í þau verk­efni sem í hönd fara nú þegar stærsta ferða­helgi árs­ins, Versl­un­ar­manna­helgin, er á næsta leiti. Hann brýnir fyrir fólki að virða reglur sem gilda um hópa­mynd­anir.

Lögreglan fylgist grannt með hópamyndum í miðborginni sem og annars staðar, einkum um Verslunarmannahelgina.
Lög­reglan fylgist grannt með hópa­myndum í mið­borg­inni sem og ann­ars staðar, einkum um Versl­un­ar­manna­helg­ina. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er nokkuð ljóst að næstu dagar og kannski einkum næstu tvær helgar eru tals­verð áskorun fyrir lög­reglu­liðin í land­inu," sagði Karl Steinar Valsson yfir­lög­reglu­þjónn á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna, síð­asta fund­inum í bili.

Hópa­myndum er það sem lög­reglan hefur helst áhyggjur af og Karl Steinar brýnir sér­stak­lega fyrir fólki að virða þær reglur sem í gildi eru. Að hámarki mega 500 manns koma saman og áfram er fólk hvatt til að virða tveggja metra regl­una. 

„Við brýnum fyrir fólki að virða reglur um hópa­myndum, hvort serm er á lands­byggð­inni, á tjald­stæðum eða að sækja þær skemmt­anir sem standa til boða í höf­uð­borg­inni eða öðrum byggða­lögum."

Lög­reglu­emb­ætti á lands­byggð­inni eru í góðu sam­starfi við rekstr­ar­að­ila tjald­svæða og ann­arra staða þar sem fólk er lík­legt til að hóp­ast saman næstu helgar, einkum um Versl­un­ar­manna­helg­ina.

Að sögn Karls Steinars er ekki annað að sjá en að mik­ill vilji sé hjá öllum til að fylgja þeim reglum sem í gildi eru. Lög­reglan sé mjög til­búin í verk­efni næstu helga.

Hvatt til nágrannavörslu

Hann kom inn á það á fund­inum að það að loka öllum veit­inga­stöðum á sama tíma hefði vissu­lega opnað á hættu á hópa­myndun í mið­borg­inni en sagði að gengið hefði vel að afstýra því og koma í veg fyrir að hópar yrðu of stórir.

„En eftir að þessar breyt­ingar urðu, að afgreiðslu­tím­inn var styttur, hefur orðið aukn­ing á til­kynn­ingum í heima­húsum. Við höfum fengið fleiri kvart­anir um hávaða í heima­húsum en áður. Á móti kemur að það er minna um verk­efni fyrir lög­reglu í mið­bænum," benti hann á.

Karl Steinar hvatti fólk enn­fremur sér­stak­lega til að huga að nágranna­vörslu nú þegar stórar ferða­helgar fara í hönd og margir eru að heiman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár