Kári mun ekki skima fyrir veirunni: Þetta er endanleg ákvörðun

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, bauð fram krafta fyr­ir­tæk­is­ins til að skima fyrir kór­ónu­veirunni. Nú er ljóst að af því verður ekki.

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, segir að ekk­ert verði af því að fyr­ir­tækið skimi fyrir nýju kór­ónu­veirunni meðal almenn­ings. Alma Möller land­læknir sagði frá því á blaða­manna­fundi í gær að Kári hefði boðið fram aðstoð sína og fyr­ir­tæk­is­ins. Sagði hún að eftir ætti að útfæra málið.

Nú er ljóst að af þessu verður ekki.

„Það er ill­vígur veiru­far­aldur að ganga yfir landið. Það var okkar mat og ann­arra að það væri mik­il­vægt að geta fylgst með útbreiðslu veirunnar og því hvernig hún stökk­breyt­ist þegar hún ferð­ast milli fólks,“ skrifar Kári á Facebook-síðu sína.

Fimmtíu manns hafa nú greinst með veiruna á Íslandi. Meðal hinna smit­uðu er eins árs gam­alt barn.

„Við buð­umst til þess að hlaupa undir bagga með heil­brigð­is­kerf­inu og skima fyrir veirunni og rað­greina hana þar sem hún finnst þannig að það væri vitað hvar hún er og í hvaða formi,“ segir Kári. „Það leit út fyrir að boð okkar væri þegið. Nú kemur í ljós að Vís­inda­siða­nefnd/Per­sónu­vernd líta svo á að þessi til­raun okkar til þess að taka þátt í aðgerðum heil­brigð­is­kerf­is­ins beri að líta á sem vís­inda­rann­sókn og við yrðum að sækja um leyfi til þeirra.

Það munum við ekki gera vegna þess að af okkar hálfu átti þetta að vera þátt­taka í klínískri vinnu en ekki vís­inda­rann­sókn. Þess vegna verður ekk­ert af okkar fram­lagi að þessu sinni. Þetta er end­an­leg ákvörðun.“

[links]Í dag hefur sýk­ing af völdum COVID-19 verið stað­fest hjá um 105.479 manns í heim­inum og um 3.555 hafa lát­ist eða 3,4% sýktra. Samkvæmt John Hopkins hafa 58.354 ein­stak­legar náð sér eftir veik­indin.

Kína, Suður-Kórea, Íran, Ítalía og skíða­svæðið Ischgl í Aust­ur­ríki eru skil­greind áhættu­svæði. Danir hafa hækkað aðvör­un­ar­ar­stig vegna ferða til Frakk­lands, Þýska­lands, Spánar og Aust­ur­ríkis úr grænu í gult í 2, sem þýðir sýnið mikla aðgætni . Eins hafa þeir hvatt til þess að sam­komum með fleiri en 1.000 þátt­tak­endum verði frestað út mars. Fjöl­margar alþjóða­stofn­anir hafa sent til­kynn­ingu um frestun á stórum fundum, boðað til fjar­funda eða sett á fjölda­tak­mark­anir, segir í sam­an­tekt almanna­varna um stöðu útbreiðsl­unnar og við­bragða í heim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár