Kári býðst til að skima fyrir veirunni

Nýja kór­ónu­veiran hefur nú greinst hjá 43 ein­stak­lingum hér á landi. Þar af eru tvö svokölluð inn­an­lands­smit.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. Mynd: Íslensk erfðagreining

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, hefur haft sam­band við heil­brigð­is­yf­ir­völd og boð­ist til að skima í sam­fé­lag­inu fyrir nýju kór­ónu­veirunni. „Einstakt á heims­vísu,“ sagði Alma Möller land­læknir um málið á sam­eig­in­legum blaða­manna­fundi almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins og Land­helg­is­gæsl­unnar í dag.

Nýja kór­óna­veiran hefur nú greinst hjá 43 ein­stak­lingum hér á landi. Þar af eru tvö svokölluð inn­an­lands­smit.

„Við höfum verið að velta því fyrir okkur hvort að veiran hafi hugs­an­lega búið um sig í sam­fé­lag­inu án þess að við höfum orðið hennar vör,“ sagði Alma á fund­inum. Kári Stef­áns­son hefði svo haft sam­band og boð­ist til að skima fyrir veirunni hjá fólki sem ekki endi­lega hefur verið á áhættu­svæðum eða í tengslum við fólk frá áhættu­svæðum. Með þeim hætti væri hægt að kom­ast að því hvort að um sam­fé­lags­smit væri að ræða.

Alma sagði að hjá Íslenskri erfða­grein­ingu væri góð aðstaða til að fram­kvæma slíka skimun. Áður en til þessa kæmi á þó eftir að útfæra málið betur.

Viðkvæmt fólk forðist mannamót

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði að enn væri ekki tíma­bært að setja á sam­komu­bann hér á landi vegna COVID-19. Hann sagði þó að notkun þeirrar var­úð­ar­ráð­stöf­unar verði þó á ein­hverjum tíma­punkti óum­flýj­an­leg. „Við erum ekki þar enn,“ sagði hann en bætti við að við­kvæmir ein­stak­lingar í áhættu­hópum væru hvattir til að forð­ast manna­mót.

Á vef land­læknis segir að sótt­varna­læknir geti mælt með því við ráð­herra að gripið verði til opin­berra sótt­varna­ráð­staf­ana með ónæm­is­að­gerðum, ein­angrun smit­aðra, sótt­hreinsun, afkvíun byggð­ar­laga eða lands­ins alls, lokun skóla eða sam­komu­bann. „Sótt­varna­læknir getur beitt slíkum vörnum til bráða­birgða án þess að leita heim­ildar fyrir fram ef hann telur að hvers konar töf sé hættu­leg, en gera skal hann ráð­herra jafn­skjótt kunnar ráð­staf­anir sínar.“

Æfi sig í að fara í og úr hlífðarfatnaði

Alma land­læknir sagði á fund­inum í dag að útbreiðslan á Ítalíu, þaðan sem flest smitin sem greinst hafa hér á landi eru upp­runnin, end­ur­spegli alvar­leika far­ald­urs­ins. Hún sagði við­bragðs­að­ila hér á landi við­búna og brýndi fyrir heil­brigð­is­starfs­fólki að klæð­ast við­eig­andi hlífð­ar­bún­aði. Hvatti hún það til að æfa sig í að fara í bún­ing­ana og einnig að fara úr þeim.

Yfir 100 þús­und manns hafa nú greinst með veiruna víða um heim og 3.411 hafa lát­ist. Tæplega 56 þús­und hafa náð sér af veik­ind­unum.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á fund­inum að veiran væri komin til að vera næstu tvo til þrjá mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár