Þreifað á mold, talað til vits og tilfinninga!

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Lífið - stór­skemmti­legt drullum­all, sem sýnt er í Tjarn­ar­bíói.

Leikhúsið 10 fingur í Tjarnarbíói: Lífið – stórskemmtilegt drullumall

Höfundar: Sveinn Ólafur Gunn­ars­son, Sólveig Guð­munds­dóttir, Charlotte Bøving, Helga Arnalds

Leik­mynda- og bún­inga­hönnun: Helga Arnalds

Aðferð og stjórnun á mynd­rænni fram­setn­ingu: Helga Arnalds

Tónlist: Margrét Kristín Blöndal

Lýsing: Björn Berg­steinn Guð­munds­son

Aðstoð við brúðu­vinnu: Satu Kivisto

Leikarar: Sólveig Guð­munds­dóttir, Sveinn Ólafur Gunn­ars­son

Leik­húsið 10 fingur á senn 25 ára afmæli og var í upp­hafi einnar konu leik­hús Helgu Arnalds sem ferð­að­ist milli leik­skóla og skóla í land­inu með sýn­ingar sínar. Smám saman bætt­ist í hóp­inn og hefur margt af okkar fremsta lista­fólki gengið í lið með Helgu; Leik­húsið 10 fingur hefur einnig í æ rík­ara mæli sér­hæft sig í list­sköpun sem stendur á mörkum leik­húss og mynd­listar og er eina leik­húsið í land­inu sem helgar sig slíkum sýn­ingum og hefur auk þess lagt áherslu á að gera sýn­ingar sem börn og full­orðnir geta notið saman. Það er gaman að geta þess einnig að á ferli sínum hefur Leik­húsið 10 fingur hlotið tvær Grímur fyrir bestu barna­sýn­ing­arnar auk þess að hafa hreppt íslensku bjart­sýn­is­verð­launin.

Þegar gluggað er í leik­skrá sýn­ing­ar­innar Lífið – stór­skemmti­legt drullum­all má lesa hvaða hug­myndir voru kveikjan að verk­inu: „Lífið er ferða­lag og skref fyrir skref fikrum við okkur inn í óviss­una. ... Við þreif­uðum á mold­inni og skoð­uðum hvaða hug­myndir voru fólgnar í henni. Svo fórum við að rann­saka poka, ljós og skugga. ... Við tókum eitt skref í einu án þess að vita hvar sýn­ingin myndi enda. ...“

Þessar sér­deilis frjóu hug­myndir urðu að ákaf­lega sér­stæðri, fal­legri og ein­lægri sögu sem þau Sólveig Guð­munds­dóttir og Sveinn Ólafur Gunn­ars­son miðla áhorf­endum á tæpri klukku­stund, sem er hæfi­leg lengd á sýn­ingu fyrir yngstu áhorf­end­urna.

Sagan kviknar með spili skugga á stóru bak­tjaldi sem gnæfir yfir sviði Tjarn­ar­bíós. Óræðar, tor­kenni­legar fígúrur kvikna til lífs, hreyfa sig til og frá, ummynd­ast, stækka og minnka á víxl og smám saman birt­ast þær á svið­inu, tvær verur sem tjá sig með ýmiss konar frum­stæðum hljóðum. Þetta er fal­legt sjón­ar­spil þar sem unnið er með bak­lýs­ingu aftan við bak­tjaldið – og eins og atriðið er unnið, fer einnig heil­mikið fyrir lýs­ingu framan við bak­tjaldið líka – og þannig geta skugg­arnir leikið sér og búið til hug­renn­inga­tengsl sem tak­markast af engu nema ímynd­un­ar­afl­inu. Og þá eru þau ekki síður til­komu­mikil hljóðin sem frá ver­unum koma og undir heyr­ist tón­listin, sem á stóran þátt í að glæða heild­ina spenn­andi lífi.

Það var býsna magnað að upp­lifa, að nokkrir hinna ungu áhorf­enda virt­ust þegar í upp­hafi eiga erfitt með skilin milli listar og lífs og gripust skelf­ingu þegar skugg­arnir brugðu á leik. Það er vissu­lega gaman þegar listin hel­tekur svo áhorf­endur sína og þeir lifa sig svo ger­sam­lega inn í það sem fyrir augu þeirra og eyru ber – þannig vill jú leik­húsið virka, ekki satt? – en það er engu að síður umhugs­un­ar­efni þegar ungir áhorf­endur ráða ekki við að greina á milli þess sem er áhuga­vert, hluti af þróun, líkt og upp­haf sögu er, og svo þess sem er ógn­vekj­andi af því þau virð­ast ekki þekkja sjálfan mið­il­inn – leik­húsið.

Getur verið að for­eldrar anni ekki skyldum sínum, að leiða börn sín inn í heim sög­unnar, kenni þeim í verki að greina á milli þess sem er veru­leiki ann­ars vegar og hins vegar frá­sögnin af þessum veru­leika? Eða reyn­ist sú fantasía, sem birt­ist okkur í upp­hafi Lífsins – stór­skemmti­legt drullum­all ein­fald­lega hinum ungu áhorf­endum ofviða? Eru þau alin upp í ein­hvers konar „afþrey­ing­arna­t­úr­al­isma“ sem gerir alla sym­bó­lík fram­andi og hættu­lega?

Þetta voru nokkrar hug­leið­ingar sem flugu um huga þess sem hér skrifar og ekki skal full­yrt neitt um svör eða nið­ur­stöður, en óneit­an­lega eru þetta pæl­ingar sem vert er að gefa gaum.

Lífið – stór­skemmti­legt drullum­all vex hægt og örugg­lega og verður að sögu tveggja ein­stak­linga sem mæt­ast óvænt, kynn­ast og bregða á leik sem þró­ast frá því að ein­kenn­ast af hrifn­ingu fyrir öllu því nýja og spenn­andi sem fyrir skiln­ing­ar­vitin ber, bragð, sjón, heyrn, ilman og skynjan yfir í and­stæðu sína og hörku­lega bar­áttu um yfir­ráða­svæði; með því er sam­tímis brugðið upp ljós­lif­andi mynd af sögu mann­kyns frá upp­hafi til nútíma og um leið ger­ist fyrir augum okkar leik­húsæv­in­týri þar sem mold­ar­pokar öðl­ast líf og tær og fingur verða að sér­stæðum karakt­erum.

[adspot]Allt er gert af næmni fyrir og þekk­ingu á ótak­mörk­uðum tján­ing­ar­tækjum leik­list­ar­innar og ber vott um þróað list­rænt inn­sæi, rót­gróna þekk­ingu á bæði leik­list­inni og sögu­efn­inu og yfir öllu skín virð­ing fyrir hinum ungu áhorf­endum (og reyndar hinum eldri líka!) sem er og á að vera aðal og ein­kenn­is­merki allrar góðrar leik­listar. Hér er sagan sögð blátt áfram og af ein­lægni, hvergi ber á til­gerð eða auð­veldum gervi­lausnum heldur allt sett fram í krafti þess sem rök­rétt er og talar til vits­muna áhorf­enda í sama mæli og til­finn­ingum þeirra er ögrað.

Þeir ungu áhorf­endur sem gripnir voru ótta í upp­hafi róuð­ust, enda þeirra full­orðna fylgd­ar­fólk natið við að hugga og knúsa; hvað sem líður vanga­veltum hér ofar, er það hverju orði sann­ara að leik­húsi þarf að venj­ast og læra á tákn­rænan frá­sagnir þess og hvernig þær orka á til­finn­ingar og sál­ar­líf. Þá getur verið einkar gott að hafa ein­hverja hlýja og góða eldri fylgd­ar­mann­eskju sem opnar faðm­inn, sefar og telur kjark í unga sál. Og kannski rétt að geta þess að loka­mynd sýn­ing­ar­innar andar frá sér friði og værð; þar er slegið á hár­réttan tón til að for­eldrar og fylgd­ar­fólk geti tekið við og hjálpað til við að láta sýn­ing­una og þau hug­hrif sem hún hefur vakið að gerj­ast og jafn­vel öðl­ast sjálf­stætt líf í barns­hug­anum. Til þess er jú leik­húsið, ekki satt?

Lífið – stór­skemmti­legt drullum­all er hríf­andi sýn­ing, fal­leg og talar til allra skiln­ing­ar­vita. Leik­ur­inn er hug­mynda­ríkur og fjör­legur, þau Sólveig og Sveinn Ólafur hlífa sér hvergi og lík­ams­tján­ing þeirra náði svo sann­ar­lega áhorf­endum. Það er hrein unun að sjá hví­líkt vald þau hafa á með­ulum leik­ar­ans, hve sam­leikur þeirra er öruggur og traustur og hvernig þau leiða sög­una til lykta án þess að styðj­ast við hefð­bundið tungu­mál heldur aðeins hreyf­ingar, svip­brigði, og óhefð­bundin hljóð – og óhljóð.

Leik­stjórn Charlotte Bøving er eins og búast má við, traust og mark­viss og sér til þess að hinn mann­legi, hlý­legi svipur haldi sér í hví­vetna – en ekki verður svo skilið við Lífið – stór­skemmti­legt drullum­all án þess að minnst sé á tón­list Mar­grétar Krist­ínar Blöndal, sem gerði allt í senn, að draga, fylgja með og elta rás atburða, inni­lega sam­fléttuð í allan þann list­ræna gjörn­ing sem fram fór á svið­inu.

Lýsing Björns Berg­steins Guð­munds­sonar var sömu­leiðis sköpuð í anda frá­sagn­ar­innar og þjón­aði henni út í ystu æsar. Allt þetta gerir Lífið – stór­skemmti­legt drullum­all ekki bara að stór­skemmti­legu drullum­alli, heldur fal­legri, vand­aðri og heil­steyptri leik­sýn­ingu fyrir börn á öllum aldri – þar sem borin er ósvikin virð­ing fyrir greind þeirra og til­finn­ingum og þau hvött til nokk­urs þroska. Betri ger­ast leik­sýn­ingar ekki!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár