Rússneskt útgerðarfélag hefði „aldrei“ keypt togara af Samherja ef það hefði vitað af mútumálinu í Namibíu

Rúss­neskt útgerð­ar­fé­lag hafði und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um að kaupa tog­ara Samherja í Namibíu á 20 millj­ónir doll­ara. Svo kom mútu­málið í Namibíu og tog­ar­inn var tek­inn fyrir meintar ólög­legar veiðar.

Rússneskt útgerðarfélag hefði „aldrei“ keypt togara af Samherja ef það hefði vitað af mútumálinu í Namibíu
Deilan um Heinaste Samherji ætl­aði að selja togar­ann Heinaste til rúss­nesks fyr­ir­tækis en mútu­málið í Namibíu, auk meinta ólög­legra veiða tog­ar­ans í Namibíu, hefur sett söl­una á ís.

Rúss­neska útgerð­ar­fé­lagið sem gerði stofn­samn­ing við Samherja um að kaupa togar­ann Heinaste fyrr á árinu hefði „aldrei“ gert þennan samn­ing ef það hefði vitað af mútu­mál­inu í Namibíu. Kaupin á tog­ar­anum eru nú komin í upp­nám út af fréttum um stór­felldar mútu­greiðslur Samherja í Namibíu.

Samherji hefur veitt hesta­makríl með Heinaste í Namibíu síð­ast­liðin ár og hafa staðið yfir harðar deilur um togar­ann við með­fjár­festa Samherja í Namibíu. Í októ­ber gerði Samherji samn­ing við rúss­nesku útgerð­ina Preobrazhenskaya Base of Trawl Fleet um að selja henni Heinaste á 20 millj­ónir doll­ara, tæp­lega 2.5 millj­arða króna, en rúss­neska fyr­ir­tækið vill nú slíta sam­komu­lag­inu.  

Þetta kemur fram í bréfa­skiptum lög­manns­stofu Samherja, Wikborg Rein, og lög­manns­stof­unnar Dawson, Edwards Associates frá því fyrr í þessum mán­uði. Gögnin eru hluti af dóms­máli í Namibíu um togar­ann Heinaste. 

Slíta stofnsamningnum

Tekið skal fram að ekki var um ræða und­ir­rit­aðan kaup­samn­ing …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár