Samtvinnuð örlög kynslóða

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Auður og Auður, sýn­ingu eftir Auði Jóns­dóttur sem sýnd er í Land­náms­setr­inu.

Auður Jónsdóttir og Auður Laxness.
Auður Jóns­dóttir og Auður Laxness. Mynd: Landnámssetrið.

Landnámssetur: Auður og Auður

Höfundur og sögu­maður: Auður Jóns­dóttir

Auður Jóns­dóttir hefur ákaf­lega þægi­lega og við­kunn­an­lega nær­veru. Hún birt­ist líkt og huldu­kona á Sögu­loft­inu í Land­náms­setri eftir að áhorf­endur/áheyr­endur hafa fengið sér sæti, yfir hreyf­ingum hennar hvílir lát­leysi og hóg­værð, hún er hlé­dræg í fram­komu og þegar hún hefur sögu sína fetar hún sig var­lega inn í sögu­heim­inn, leiðir okkur var­færn­is­lega í upp­hafi ferða­lags sem á eftir að reyn­ast um tveggja klukku­stunda langt – en það má vera stað­reyndin; í til­finn­ing­unni er sögu­st­undin eins og and­ar­tak. Eftir að Auður hefur náð tökum á áheyr­enda­sk­ar­anum er eins og tím­inn hverfi, sögu­heimur Auðar er eitt ein­asta hér og nú.

Það verður auð­vitað ekki hjá því horft að fyrir hvern ein­asta Íslend­ing sem man afa Auðar, nóbels­skáldið Halldór Laxness, eru sögu­per­són­urnar þekktar – hversu þekktar skal ósagt látið, því það er nú einu sinni þannig að það veldur hver á heldur þegar um opin­berar per­sónur er að ræða. Þær hafa til­hneig­ingu til að vera býsna ólíkar sjálfum sér eftir því hver horfir og hver lýsir og Halldór Laxness og eig­in­kona hans seinni hluta ævinnar, afi og amma Auðar Jóns­dóttur eru engin und­an­tekn­ing á því. En hér, á Sögu­lofti Land­náms­set­urs fáum við að kynn­ast afa og ömmu Auðar eins og hún þekkir þau, og þó einkum ömmu hennar, Auði, sem hún heitir eftir og sem hún sat hjá í eld­hús­inu og átti sam­skipti við jafnt á barns­aldri sem á ung­lings­árum. Það er sú Auður amma sem mót­aði barnið og ung­ling­inn og það er þeirra sam­eig­in­lega saga sem sögð er undir heit­inu „Auður og Auður“.

[adspot]Að stofni til er frá­sögnin bók Auðar Jóns­dóttur, Ósjálfrátt, sem kom út 2012 og var til­nefnd til bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs. Ósjálfrátt er þroska­saga ungrar stúlku, Eyju, sem er hel­tekin af þeirri sann­fær­ingu að hún eigi að skrifa; það er sú löngun eða þrá­hyggja sem rekur hana áfram og fleytir á milli skerja í sögu hennar. Í upp­hafi sög­unnar finnur hún sig nýgifta tutt­ugu árum eldri drykk­felldum bóhem, sem hafði tjáð henni að án hennar gæti hann ekki lifað – og ekki vildi hún verða völd að dauða hans! Þau setj­ast að á Flateyri, heima­byggð hans, en þar höfðu skömmu áður fallið snjó­flóð eina vetr­ar­nótt sem kost­aði fjölda manns lífið og þorpið varð aldrei samt aftur. Stúlkan verður fyrir þrýst­ingi frá dug­miklum konum, skíða­drottn­ingu og ömmu sinni, sem sjá að þetta hjóna­band er dauða­dæmt, þær hvetja Eyju til að skilja við mann­leys­una, og á end­anum ákveður hún að fara til Sví­þjóðar að skrifa bók­ina sem í henni blundar. Í Svíþjóð lendir hún í ýmsum ævin­týrum með skíða­drottn­ing­unni og er sá hluti frá­sagn­ar­innar bæði kostu­legur og bráð­fynd­inn; og í Svíþjóð rekst hún á sögu ömmu sinnar í strætó­skýli nálægt Sund­svall og hefst þá athygl­is­vert og spenn­andi ferða­lag sem gengur úr á að rann­saka hvernig ævi­skeið kyn­slóða geta runnið saman, end­ur­tekið sig, rímað og flétt­ast rétt eins og örlögin væru fyr­ir­fram ráðin – eða hvað?

Það skal játað, að sá sem hér skrifar hefur ekki lesið Ósjálfrátt (úr því skal bætt hið snarasta!) en það kemur ekki að sök, frá­sögn Auðar er eins sjálf­stæð og hægt er og hvergi háð bók­inni. Það verður ljóst á frá­sögn Auðar á Sögu­loft­inu að saga Eyju er saga hennar sjálfrar og nú stígur Auður skrefið til fulls og leiðir okkur í gegnum sjálfsævi­sög­una milli­liða­laust. Sú saga er í raun sam­tvinnuð úr örlögum hennar sjálfrar og ömmu hennar og stendur fylli­lega undir sínu sem sjálf­stæð og heil­steypt frá­sögn. Hún er þroska­saga Auðar rit­höf­undar.

Inn í þá sögu flétt­ast einnig minn­ingar af nóbelskáld­inu, afanum og fyrir hvern þann sem er þó ekki sé nema pínu­lítið ‚starstruck‘, þá er svona ‚name-dropp­ing‘ vel til þess fall­inn að áheyr­andi sperri eyrun; þetta er með þekkt­ustu brögðum í bók góðra sögu­manna og bregst aldrei. En hér er meiri dýpt í ‚frægra­nafna­slett­unum‘ en venja er – það fræga fólk sem hér er nefnt til sög­unnar eru áhrifa­valdar í sögu Auðar og hún afhjúpar hvernig þessi áhrif virka, hún er opin og hrein­skilin með það hvernig þetta fræga fólk, áhrifa­vald­arnir í lífi hennar, hafa líkt og góðir leið­sögu­menn leitt hana sjálfa frá því að vera ráð­villtur ung­lingur sem hvað sem gáfum og góðri greind leið, tók stöðugt rangar ákvarð­anir, yfir í að vera sá rit­höf­undur sem blund­aði í brjósti hennar og tókst á end­anum að brjót­ast út og blómstra.

Það er fremur erfitt að ímynda sér að Auður Jóns­dóttir, þessi lág­vaxna kona með þennan blíð­lynda svip, geti hafa verið vand­ræðaung­lingur. En saga hennar er trú­verðug og hún styður með nægi­lega mörgum fal­legum, mann­legum dæmum að vand­ræðaung­lingar eiga líka skilið að njóta skiln­ings og fá það svig­rúm sem þarf til að láta draumana ræt­ast.

Og þegar að er gáð eins vel og unnt er og öllu á botn hvolft – erum við ekki öll á ein­hvern hátt þess ‚vand­ræðaung­lingur‘ sem þarf svig­rúm til að láta draumana ræt­ast – og þurfum á stundum bak­hjarla og bjarg­vætti sem leiða okkur áleiðis á lífs­braut­inni þar til við getum látið okkar eigin drauma, lang­anir og þrár ráða för.

Það er ekki ama­legur boð­skapur að fá með sér í vega­nesti þegar sögu­st­und­inni á Sögu­lofti lýkur, sögu­konan, huldu­konan, kvödd og haldið út í vet­ur­myrkrið í Borg­ar­nesi og áleiðis heim. Ríkari en var.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár