Fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins vill í stjórn Sýnar

Á meðal þeirra sem vilja taka sæti í stjórn eins stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tækis Íslands er fyrr­ver­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður VÍS.

Kristín Þorsteinsdóttir.
Kristín Þor­steins­dóttir. Mynd: Skjáskot

Kristín Þor­steins­dóttir, fyrr­ver­andi rit­stjóri og útgef­andi Frétta­blaðs­ins, sæk­ist eftir því að setj­ast í stjórn fjar­skipta- og fjöl­miðla­fé­lags­ins Sýnar á kom­andi aðal­fundi hans, sem fram fer 20. mars næst­kom­andi. Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í dag.

Kristín lét af störfum hjá Frétta­blað­inu í sept­em­ber í fyrra skömmu eftir eig­enda­skipti þar og var á meðal þeirra sem sótt­ust eftir því að verða næsti útvarps­stjóri, en hlaut ekki braut­ar­gengi í þeirri veg­ferð.

Í Mark­aðnum segir auk þess að Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir, sem setið hefur í stjórn VÍS und­an­farin ár sam­hliða því að félag í hennar eigu var á meðal stærstu hlut­hafa þess félags, vilji einnig inn í stjórn Sýnar. Félag í eigu hennar og Guð­mundar Þórð­ar­sonar, K2B, keypti 1,6 pró­sent hlut í Sýn í byrjun árs en seldi 7,5 pró­sent hlut sinn í VÍS á svip­uðum tíma. Svan­hildur Nanna vék úr sæti stjórn­ar­for­manns VÍS árið 2018 þegar greint var frá því að hún og Guð­mundur væru til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir meint umboðs­svik, meint skatt­svik, mögu­leg mútu­brot og brot á lögum um pen­inga­þvætti þegar olíu­fé­lagið Skelj­ungur og tengd félög voru keypt og seld á árunum 2008 til 2013. Það mál er enn til rann­sóknar.

[adspot]Tveir vara­menn hafa sest í stjórn Sýnar frá síð­asta aðal­fundi, en Heiðar Guð­jóns­son, stærsti einka­fjár­festir­inn í félag­inu, færði sig úr sæti stjórn­ar­for­manns og í stól for­stjóra í fyrra.

Sýn varð til þegar Fjar­­­­skipti, móð­­­­ur­­­­fé­lag Vodafone á Íslandi, breytti nafni sínu á aðal­­­­fundi sínum í mars 2018. Nokkrum mán­uðum áður, nánar til­­­­­­­tekið í des­em­ber 2017, höfðu Fjar­­­­skipti sam­einað fjöl­miðla­­­­starf­­­­semi inn í rekstur félags­­­­ins sem fól í sér meðal ann­­­­ars Stöð 2, Stöð2 Sport, Vísi, Bylgj­una, FM957 og Xið 977. Mið­l­ana höfðu Fjar­­­­skipti keypt af 365 mið­l­­­­um. Nafna­breyt­ingin var fram­­­­kvæmd svo að heitið væri meira lýsandi fyrir starf­­­­semi hins sam­ein­aða félags.

Því er um að ræða eitt stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins sem rekur meðal ann­ars frétta­stofu fyrir sjón­varp og útvarp og frétta­vef­inn Vísi.is, annan af mest sóttu frétta­vefum lands­ins.

Krefjandi rekstur síðustu misseri

Tekjur fjar­skipta- og fjöl­miðla­fé­lags­ins Sýnar á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 voru 14,9 millj­arðar króna, sem er 454 millj­ónum krónum lægri tekjur en félagið hafði á sama tíma­bili árið áður. Hagn­aður Sýnar fyrir fjár­magns­gjöld, afskriftir og skatta var 4,1 millj­arður króna og lækk­aði um 153 millj­ónir króna á milli ára.

[links]Hagn­aður Sýnar var hins veg­ar 384 millj­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019. Lyk­ilá­­­­stæða þess að Sýn skil­aði hagn­aði er að á fyrsta árs­fjórð­ungi var bók­­­­færður sölu­hagn­aður vegna sam­runa P/F Hey, dótt­­­­ur­­­­fé­lags Sýnar hf. í Fær­eyjum og Nema, dótt­­­­ur­­­­fé­lag Tjaldurs, gekk í gegn á fjórð­ungnum og er 49,9 pró­­­­sent hlutur Sýnar hf. í nýju sam­ein­uðu félagi færður sam­­­­kvæmt hlut­­­­deild­­­­ar­að­­­­ferð og því ekki hluti af sam­­­­stæð­u­­­­reikn­ings­skilum Sýnar hf. frá byrjun þessa árs. Alls nam bók­­­­færður sölu­hagn­aður vegna þessa 817 millj­­­­ónum króna.

Án þessa bók­færða sölu­hagnað vegna þeirrar sölu væri tap Sýnar á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 433 millj­ónir króna. Til sam­an­burðar skil­aði félagið 326 milljón króna hagn­aði á sama tíma­bili 2018.

Í jan­úar greindi Sýn frá því að félagið hefði fært niður við­skipta­vild, sem það hafði eign­ast við kaup á áður­nefndum fjöl­miðlum frá 365 miðlum, um 2,5 millj­arða króna.

Hluta­bréfa­verð í Sýn hefur hækkað umtals­vert það sem af er ári og um tæp­lega 30 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum. Árs­upp­gjör félags­ins vegna árs­ins 2019 verður birt í næstu viku, þann 26. febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár