Áhrifin af enska boltanum sjást greinilega á uppgjöri Símans og Sýnar

Það virð­ist vera að marg­borga sig fyrir Símann að hafa tryggt sér sýn­ing­ar­rétt­inn að enska bolt­anum fyrir um ári síðan. Tekjur hans vegna sjón­varps­rekst­urs juk­ust um 20 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi en fjöl­miðla­tekjur Sýnar dróg­ust saman um sjö pró­sent.

Fyrir rétt um ári síðan, 2. nóv­em­ber 2018, var greint frá því opin­ber­lega að Síminn hefði tryggt sér sýn­ing­ar­rétt­inn að enska bolt­anum frá og með tíma­bil­inu 2019 til 2020, eða því sem nú stendur yfir. Sýn, áður Stöð 2 Sport, hafði þá haldið á sýn­ing­ar­rétt­inum síðan 2007 og efnið hafði verið eitt af krúnu­djásn­unum í íþrótta­dag­skrá félags­ins.

Þáver­andi fram­kvæmda­stjóri miðla hjá Sýn, Björn Víglunds­son, sagði að það hefði ein­fald­lega komið ofurtil­boð úr annarri átt. Hluta­bréf í Sýn féllu um 7,3 pró­sent þennan sama dag.

Á því ári sem liðið er frá þessum tíð­indum hefur mark­aðsvirði Sýnar rúm­lega helm­ing­ast og er nú um 8,1 millj­arður króna. Síminn hefur ekki gefið það upp opin­ber­lega hvað hann greiddi fyrir rétt­inn að enska bolt­anum.

Óvíst hvernig myndi fara

Í sam­runa­skrá vegna kaupa á miðlum 365, sem var óvart birt á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins með trún­að­ar­upp­lýs­ingum vorið 2017, kom fram að um þrjú þús­und áskrif­endur væru að Sport­pakka Stöðvar 2 og tæp­lega 1.400 manns með Risa­pakk­ann, sem inni­hélt einnig íþrótta­stöðv­arnar.

[adspot]Í grein­ingu sem Arion banki gerði á Sýn snemma árs 2019 var áætlað að um fimm þús­und við­skipta­vinir gætu farið frá félag­inu sam­hliða því að það missti enska bolt­ann. Út frá þeim for­sendum spáði grein­ingin fyrir um tekju­sam­drátt hjá Sýn.

Það lá hins vegar ekki strax fyrir hvernig Síminn ætl­aði að nýta sér þessa vöru sem hann hafði tryggt sér rétt­inn á, né hvort félag­inu tæk­ist að gera það með arð­væn­legum hætti.

Sumarið 2019 var loks sýnt á spilin. Verðinu á nýstofn­aðri Sím­inn Sport, sem myndi sýna leiki úr ensku úrvalds­deild­inni, yrði stillt í hóf og stök áskrift seld á 4.500 krónur. Á sama tíma var hins vegar greint frá því að allir áskrif­endur að Sjón­varpi Símans Premium, sem voru þá þegar 35 til 40 þús­und, myndu fá aðgang að enska bolt­anum. Um leið var mán­að­ar­verðið fyrir þá þjón­ustu hækkað úr fimm þús­und krónum í sex þús­und krónur.

Ef vel til tæk­ist, og eng­inn við­skipta­vinur myndi hætta í Premium áskrift vegna hækk­un­ar­innar, myndi Síminn þegar vera búinn að tryggja sér 420 til 480 millj­ónir króna í við­bót­ar­tekjur á ári með henni.

Um tuttugu prósent aukning hjá Símanum

Ljóst var að áhrifin af þess­ari vend­ingu myndu ekki koma fram að fullu fyrr en á þriðja árs­fjórð­ungi 2019, enda byrjar enska úrvals­deildin ekki að rúlla fyrr en í ágúst­mán­uði. Því var beðið með nokk­urri eft­ir­vænt­ingu eftir upp­gjörum Símans og Sýnar fyrir tíma­bilið sem hófst í byrjun júlí og lauk í sept­em­ber­lok.

Síminn birti fyrst, í síð­ustu viku. Þar kom fram að tekjur hans vegna sjón­varps­þjón­ustu hefði auk­ist um 19,6 pró­sent á fjórð­ungnum miðað við sama tíma­bil í fyrra, eða um 233 millj­ónir króna. Þær voru í heild 1.423 millj­ónir króna á árs­fjórð­ungnum.

[adspot]Í fjár­festa­kynn­ingu kom fram að tekju­á­hrif af enska bolt­anum hefðu verið umfram vænt­ingar, að við­skipta­vinum sem keyptu Premium áskrift hefði fjölgað um þrjú þús­und frá því að Síminn Sport fór í loftið og að aug­lýs­inga­tekjur hefðu vaxið um 54 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi og ell­efu pró­sent milli ára.

Sjö prósent samdráttur hjá Sýn

Hjá Sýn, sem birti sitt upp­gjör í gær, var sagan önnur. Þar lækk­uðu tekjur vegna fjöl­miðla­rekstur um 144 millj­ónir króna miðað við þriðja árs­fjórð­ung í fyrra, eða um sjö pró­sent. Samtals námu tekjur Sýnar vegna fjöl­miðla 1.946 millj­ónir króna og engin ein tekju­stoð félags­ins dróst meira saman í krónum talið en fjöl­miðla­rekst­ur­inn. Hann nær til ann­arra fjöl­miðla sam­stæð­unnar en bara sjón­varps­stöðva. Miðlar Sýnar eru Stöð 2, Stöð2 Sport, Vísi, Bylgj­una, FM957 og Xið 977. Félagið er því líka með umtals­verðar tekjur af útvarps­rekstri og rekstri frétta­mið­ils­ins Vísis.

Á þriðja árs­fjórð­ungi 2018 höfðu tekjur Sýnar vegna fjöl­miðla verið 76 pró­sent hærri en tekjur Símans vegna þeirrar tekju­stoðar. Í ár voru fjöl­miðla­tekjur Sýnar 37 pró­sent hærri en helsta keppi­naut­ar­ins. Bilið á milli þeirra minnk­aði 377 millj­ónir króna.

Hagnaður Símans var 2,3 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum þessa árs á meðan að hagn­aður Sýnar var 384 millj­ónir króna á sama tíma, en hann kemur til vegna þess að bók­færður var sölu­hagn­aður upp á 817 millj­ónir króna vegna sam­runa dótt­ur­fé­lags í Færeyjum. Án þessa bók­færða sölu­hagnað vegna þeirrar sölu væri tap Sýnar á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 433 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Enski

FréttirEnski

Atli Fannar: "Verður bara venju­legur dagur á skrif­stof­unni hjá Gylfa"

Áttunda umferð ensku úrvals­deild­ar­innar í fót­bolta fer fram um helg­ina. Eins og þeir vita sem fylgj­ast með enska bolt­anum, trónir Chelsea á toppi deild­ar­innar, hefur hlotið nítján stig eftir sjö leiki, með fimm stiga for­skot á Eng­lands­meist­ara Manchester City. Stór­leikur umferð­ar­innar fer fram í hádeg­inu í dag á Etihad leik­vang­inum í Manchester, þar sem heima­menn í Manchester City taka á...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár