Atli Fannar: "Verður bara venjulegur dagur á skrifstofunni hjá Gylfa"

Áttunda umferð ensku úrvals­deild­ar­innar í fót­bolta fer fram um helg­ina. Eins og þeir vita sem fylgj­ast með enska bolt­anum, trónir Chelsea á toppi deild­ar­innar, hefur hlotið nítján stig eftir sjö leiki, með fimm stiga for­skot á Eng­lands­meist­ara Manchester City.

Stór­leikur umferð­ar­innar fer fram í hádeg­inu í dag á Etihad leik­vang­inum í Manchester, þar sem heima­menn í Manchester City taka á móti Totten­ham. Annars verður að segj­ast eins og er að það er fátt um fína drætti í enska bolt­anum um helg­ina, hvað stór­leiki varðar.

Kjarninn fékk engu að síður Atla Fannar Bjarka­son, rist­jóra Nútímans, til að spá fyrir um úrslit leikj­anna í átt­undu umferð ensku úrvals­deild­ar­innar.

Manchester City 3- 0 Tottenham


[caption id="attachment_9880" align="alignnone" width="2925"] Yaya Toure, vél­mennið á miðj­unni hjá Man City, hefur verið lyk­il­maður hjá lið­inu und­an­farin ár, en hann hefur farið heldur rólega af stað í ensku deild­inni í vetur.[/caption]

Totten­ham er fyrir ensku knatt­spyrn­una það sem Fanta Lemon er fyrir gos­drykki: Einhvern veg­inn aldrei til staðar nema örsjaldan og er þá ógeðs­lega gott. Fanta Lemon er ekki fáan­legt í dag og City tekur þennan leik auð­veld­lega.

Arsenal 0-0 Hull


[caption id="attachment_9883" align="alignnone" width="2197"] Meiðsla­list­inn hjá Arsenal er langur, en miklar vonir eru nú bundnar við að Jack Wilshere stígi upp og sýni sitt rétta and­lit.[/caption]

Ég efast reyndar um að Arsenal nái í lið þar sem meiðsla­list­inn þeirra er lengri en gesta­list­inn hans Ingós. Þetta verður leið­in­legur leikur.

Burnley 0-2 West Ham


[caption id="attachment_9885" align="alignnone" width="2034"] Hamr­arnir hafa farið vel af stað í ensku deild­inni í vetur, og sitja í sjö­unda sæti deild­ar­innar. Hinn síungi Kevin Nolan fer fyrir skút­unni sem fyrr.[/caption]

Samkvæmt ein­földum töl­fræði­reikn­ingi er mjög ólík­legt að Burnley skori mark. Hamr­arnir eru hins vegar flottir, taka þennan leik auð­veld­lega.

Crystal Palace 1-4 Chelsea


[caption id="attachment_9886" align="alignnone" width="1600"] Diego Costa hefur verið and­set­inn fyrir framan mark and­stæð­inga í vetur, og hefur skorað 9 mörk í sjö leikjum.[/caption]

Áfram heldur stærsta lygi fót­bolt­ans um að Diego Costa sé eitt­hvað tæpur. Hann er gulur í Fantasy en spilar pott­þétt á laug­ar­dag­inn og skorar tvö. Chelsea er á óþol­andi rönni en fer að tapa þegar Móri byrjar að mæta á æfingar með Napo­leóns­hatt og vara­lit.

Everton 2-3 Aston Villa


[caption id="attachment_9887" align="alignnone" width="2197"] Roberto Martinez, þjálf­ari Everton, á ærið verk fyrir höndum að þétta vörn liðs­ins, en liðið hefur fengið á sig sextán mörk í fyrstu sjö leikj­unum, eða mest allra liða í deild­inni.[/caption]

Þarna mæt­ast tvö lið sem ég skil ekk­ert í. Skil ekki af hverju Everton eru svona glat­aðir og skil alls ekki af hverju Aston Villa eru svona fínir. Þetta verður leikur helg­ar­innar. Mörk, tæk­lingar, spjöld og stuð.

Newcastle 0-1 Leicester


[caption id="attachment_9888" align="alignnone" width="2197"] Verður leik­ur­inn í dag gegn Leicester, síð­asti leikur Alan Pardew við stjórn­völ­inn hjá Newcastle?[/caption]

Það verða fleiri spjöld í þessum leik en í spila­stokki í sum­ar­bú­stað (43). Ég fór á Borgríki 2 í vik­unni og þessi leikur verður svip­aður: Nóg af ofbeldi en minna af kyn­lífi.

Southampton 1-0 Sunderland


[caption id="attachment_9889" align="alignnone" width="1600"] Eftir að hafa misst marga lyk­il­leik­menn í sumar, hefur frammi­staða Southampton í ensku úrvals­deild­inni komið mörgum á óvart.[/caption]

Þetta Southhampton lið er átt­unda undur ver­aldar. Sést úr geimnum og eng­inn veit hvernig svona fram­bæri­legt lið varð til eftir að stóru liðin sóp­uðu upp leik­mönnum eins og þeir væru sófa­borð í Söstrene Grene.

QPR 1-2 Liverpool


[caption id="attachment_9890" align="alignnone" width="800"] Frammi­staða Liverpool í upp­hafi leik­tíma­bils hefur valdið áhan­gendum liðs­ins von­brigðum. Einn af lyk­il­mönnum liðs­ins er Raheem Sterling.[/caption]

Þessi spá bygg­ist á til­finn­ingarökum. Mínir menn eru búnir að vera von­lausir í haust og þessi leikur skelfir mig. Í fyrra vissi maður að ef mótherj­arnir skor­uðu tvö myndi Liverpool bara skora fjögur. Ég vil þennan tíma aftur.

Stoke 0-3 Swansea


[caption id="attachment_9891" align="alignnone" width="1280"] Gylfi Sig­urðs­son hefur sjaldan eða aldrei leikið betur. Hann hefur verið óstöðv­andi með Swansea og íslenska lands­lið­inu, og fagnar hér marki gegn Manchester United.[/caption]

Hol­lend­inga­slátr­ar­inn Gylfi Sig­urðs­son mætir lemstr­aður úr land­s­leikja­stuð­inu en skorar og gefur stoðsend­ingu. Venju­legur dagur á skrif­stof­unni hjá Gylfa.

West Brom 2-2 Man Utd


[caption id="attachment_9892" align="alignnone" width="2048"] Hinn fljúg­andi Angel Di Maria hefur verið óstöðv­andi á tíma­bil­inu. Það verður for­vitni­legt að fylgj­ast með hvernig honum reiðir af gegn bar­átt­uglöðu liði West Brom.[/caption]

Manchester United tap­aði fyrir Leicester í mest brú­tal fót­bolta­leik sem ég hef séð. Þá held ég að litlu liðin í deild­inni hafi verið eins og lúðar í grunn­skóla sem sáu loks­ins veik­leika bekkj­ar­hrott­ans. West Brom mæta því sturl­aðir til leiks. Bekkj­ar­hrott­inn er hins vegar búinn að vera dug­legur í rækt­inni og tekur ana­ból­ískur á móti lúð­unum. Þetta endar illa fyrir alla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár