Sala á áskriftum að enska boltanum umfram væntingar

Hagnaður Símans dróst saman frá sama tíma­bili í fyrra en er samt samt jákvæður um 1,4 millj­arða króna. Áhrif enska bolt­ans á sjón­varps­hluta starf­sem­innar vigta ekki að fullu inn í upp­gjör félags­ins fyrr en eftir yfir­stand­andi árs­fjórð­ung.

Enski boltinn er eitt vinsælasta sjónvarpsefni í heimi.
Enski bolt­inn er eitt vin­sælasta sjón­varps­efni í heimi. Mynd: EPA

Síminn segir að sala að enska bolt­anum, sem félagið keypti útsend­inga­rétt­inn að fyrir nýhafið tíma­bil sé umfram vænt­ingar. Þetta kemur fram í fjár­festa­kynn­ingu vegna birt­ingar á upp­gjöri Símans fyrir annan árs­fjórð­ung árs­ins 2019 sem var gert opin­bert í gær.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar er haft eftir Orra Hauks­syni, for­stjóra Símans, að verðið á Síminn Sport, sem sýnir leiki úr ensku úrvalds­deild­inni, og Sjón­varps Símans Premium, en allir áskrif­endur að þeirri leið voru gerðir að áskrif­endum að enska bolt­anum, hafi með­vitað verið stillt í hóf, meðal ann­ars til að draga úr freist­ingu til ólög­legs streymis. Áskrift­ar­gjaldið fyrir staka áskrift að Síminn Sport, sem er einnig dreift í gegnum kerfi ann­arra fjar­skipta­fyr­ir­tækja, er 4.500 krónur á mán­uði en áskrift­ar­gjaldið fyrir Sjónvarp Símans Premium var hækkað úr 5.000 í 6.000 krónur á mán­uði þegar enska bolt­anum var bætt inn í þann pakka.

[adspot]„Tekjur af sjón­varps­þjón­ustu eru á góðri sigl­ingu. Breyt­ingar í fyrra­haust á verði, til hækk­unar í sjón­varps­þjón­ustu og til lækk­unar á inter­net þjón­ustu, skekkja sam­an­burð­inn á þessum til­teknu vörum milli ára. Keppi­kefli okkar er að fjölga við­skipta­vinum í Sjón­varpi Símans Premium og í Heim­il­i­pakka, en hvort tveggja tókst sem nemur nokkrum þús­undum heim­ila milli ára. Nú þegar enski bolt­inn er orð­inn hluti af Sjón­varpi Símans Premium von­umst við til að sú vara styrk­ist enn frekar í sessi[...]Við erum ekki komin á leið­ar­enda og þurfum að halda áfram og selja fleiri heim­ilum aðgang, en nú er yfir þriðj­ungur heim­ila lands­ins með lög­legt aðgengi að ensku úrvals­deild­inni á langtum hag­stæð­ara verði en áður.“ segir Orri í til­kynn­ing­unni.

Tekjur af sjónvarpsþjónustu aukast

Enski bolt­inn vigtar ekki inn í nýbirt upp­gjör Símans, enda hófst hann ekki fyrr en í ágúst en upp­gjörs­tíma­bil­inu lauk í lok júní. Því má búast við að áhrif sölu af áskrift­ar­sölu vegna enska bolt­ans komi fyrst fram þegar upp­gjör fyrir þriðja árs­fjórð­ung árs­ins 2019 verður birt, en það upp­gjörs­tíma­bil gildir frá byrjun júlí og út sept­em­ber næst­kom­andi. Í fjár­festa­kynn­ingu sagði að salan á bæði Premium pökkum og stökum áskriftum gangi vel og séu umfram vænt­ingar.

Síminn hefur ekki viljað gefa upp hvað félagið greiddi fyrir enska bolt­ann og sagt verðið vera trún­að­ar­mál. Í fjár­festa­kynn­ingu Símans sem birt var í gær kemur þó fram að kostn­aður „við enska bolt­ann er sam­kvæmt vænt­ingum“.

Tekjur Símans af allri sjón­varps­þjón­ustu juk­ust umtals­vert milli ára. Tekjur vegna Premium pakka juk­ust um 190 millj­ónir króna milli ára, eða 27 pró­sent, og við­skipta­vinum sem eru með þá þjón­ustu fjölg­aði um fimm þús­und. Alls voru tekjur Símans vegna sjón­varps­þjón­ustu 2.631 millj­ónir króna á fyrri hluta árs­ins 2019 sem er 322 millj­ónum krónum meira en á sama tíma­bili í fyrra. Það er vöxtur upp á 13,9 pró­sent. Tekjur vegna sjón­varps­þjón­ustu eru nú 18,7 pró­sent af heild­ar­tekjum félags­ins en voru 14,5 pró­sent í fyrra.

Hagnaður dregst saman

Allt í allt lækk­uðu rekstr­ar­tekjur Símans á fyrri hluta árs­ins 2018 þegar borið er saman við sama tíma­bil í fyrra. Rekstr­ar­hagn­aður félags­ins var 175 millj­ónum krónum lægri á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019 en hann var á sama tíma­bili 2018. Rekstr­ar­hagn­aður Símans fyrir fjár­magns­kostnað, skatta og afskriftir (EBITDA), þegar búið er að leið­rétta fyrir áhrifum af inn­leið­ingu nýrra end­ur­skoð­un­ar­staðla og breyttri fram­setn­ingu á sýn­ing­ar­rétti sjón­varps­efnis, var nei­kvæður um 215 millj­ónir króna.

[adspot]Hagnaður félags­ins dróst saman um 327 millj­ónir króna á fyrri hluta árs­ins miðað við sama tíma­bil í fyrra og var 1.413 millj­ónir króna, en um 280 millj­ónir króna þegar búið var að taka til­lit til ofan­greindrar breyt­ingar á upp­gjörs­að­ferð.

Í fjár­festa­kynn­ingu Símans kemur fram að tekjur vegna far­síma­þjón­ustu, gagna­flutn­inga og vöru­sölu hafi lækkað milli ára en að góður gangur í sjón­varps­þjón­ustu, upp­lýs­inga­tækni og „öðru“ vegi þar upp á móti.

Sam­an­lögð lækkun far­síma­tekna af reiki og heild­sölu nam til að mynda um 200 millj­ónum króna á milli ára og breyt­ingar á verð­lagn­ingu í ágúst 2018 höfðu áhrif til lækk­unar á inter­net­tekjum en til hækk­unar á sjón­varps- og tal­síma­tekjum.

Sýn birtir í dag

Helst sam­keppn­is­að­ili Símans, fjöl­miðla- og fjar­skipta­fé­lagið Sýn, mun birta sitt hálfs­árs­upp­gjör í dag. Félagið sendi út afkomu­við­vörun fyrir rúmri viku þar sem fram kom að tekjur fyrir árið 2019 vegna fjöl­miðla og fjar­skipta hafi verið ofá­ætl­aðar um tæpar 400 millj­ónir króna í fyrri áætlun og að kostn­aður við útsend­ingar miðla van­á­ætl­aður um 160 millj­ónir króna. Til sam­an­burðar þá var árs­hagn­aður Sýnar í fyrra 473 millj­ónir króna, sem var 57 pró­sent lækkun frá árinu áður.

Sýn hélt áður á sýn­ing­ar­rétt­inum á enska bolt­anum og var hann eitt helsta flagg­skipið í vöru­fram­boði félags­ins þegar kom að íþrótta­af­þr­ey­ingu, sem miðla Sýnar hafa verið leið­andi í árum saman.

[adspot]Í sam­runa­skrá vegna kaupa Sýnar á miðlum 365, sem var óvart birt á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins með trún­að­ar­upp­lýs­ingum vorið 2017, kom fram að um þrjú þús­und áskrif­endur væru að Sport­pakka Stöðvar 2 og tæp­lega 1.400 manns með Risa­pakk­ann, sem inni­heldur einnig íþrótta­stöðv­arnar. Í grein­ingu Arion banka á Sýn, sem birt var í jan­úar síð­ast­liðnum, var áætlað að um fimm þús­und við­skipta­vinir gætu farið frá félag­inu sam­hliða því að það missir enska bolt­ann. Út frá þeim for­sendum spáði grein­ingin fyrir um tekju­sam­drátt hjá Sýn á árinu 2020.

Fjar­skipta­hluti Sýnar selur vörur sínar undir merkjum Vodafone. Í árs­hluta­reikn­ingi Símans kemur fram að Vodafone hafi lagt fram kvörtun til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna fyr­ir­komu­lags við sölu á útsend­ingum frá ensku úrvals­deild­inni og gert kröfu um heild­sölu­að­gang að Síminn Sport. Sam­keppn­is­eft­ir­litið birti frum­mat sitt í júlí og taldi að ákveðið fyr­ir­komu­lag gæti farið í bága við sam­kepp­inslög og afleiddar ákvarð­anir. Stofnun hafi þó und­ir­strikað að um frum­mat væri að ræða sem gæti breyst og kall­aði sam­hliða eftir frek­ari gögnum. Í árs­hluta­reikn­ingnum segir að Síminn telji að „afstaða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sé í and­stöðu við fyrri fram­kvæmd og án stuðn­ings til við­hlít­andi gagna. Félagið er þeirrar skoð­unar að fyr­ir­komu­lag um sölu á þjón­ustu félags­ins sé fylli­lega í sam­ræmi við sam­keppn­is­lög.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Enski

FréttirEnski

Atli Fannar: "Verður bara venju­legur dagur á skrif­stof­unni hjá Gylfa"

Áttunda umferð ensku úrvals­deild­ar­innar í fót­bolta fer fram um helg­ina. Eins og þeir vita sem fylgj­ast með enska bolt­anum, trónir Chelsea á toppi deild­ar­innar, hefur hlotið nítján stig eftir sjö leiki, með fimm stiga for­skot á Eng­lands­meist­ara Manchester City. Stór­leikur umferð­ar­innar fer fram í hádeg­inu í dag á Etihad leik­vang­inum í Manchester, þar sem heima­menn í Manchester City taka á...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár