Viðskiptavild Sýnar hefur lækkað um 2,5 milljarða vegna fjölmiðlanna sem voru keyptir

Sýn hefur fært niður við­skipta­vild sína um 2,5 millj­arða króna. Um er að ræða við­skipta­vild sem skap­að­ist við kaup á fjöl­miðlum frá 365 miðlum árið 2017.

Sýn er eitt stærsta fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki landsins.
Sýn er eitt stærsta fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Þeir sem greina fyr­ir­tækið eru löngu búnir að átta sig á þessu,“ segir Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Sýnar, í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands þar sem greint er frá því að fjar­skipta­fyr­ir­tækið hafi fært niður við­skipta­vild sína um 2,5 millj­arða króna. Afkoma Sýnar og eigið fé mun lækka sem nemur afskrift­inni.

Heiðar segir að verið sé að upp­færa efna­hags­reikn­ing Sýnar í takt við raun­hæf rekstr­arplön. „Við erum að hreinsa úr efna­hags­reikn­ingi áhrif sem byggðu ekki á raun­hæfum áætl­unum. Þetta hefur engin áhrif á rekst­ur­inn, hvorki í dag né í fram­tíð­inni, heldur er ein­ungis til merkis um að við viljum gera efna­hags­reikn­ing­inn heil­brigð­ari.“

[links]Við­skipta­vild er mat á virði hug­lægra eigna fyr­ir­tækis. Með því er til að mynda sett mat á fjár­hags­legu verð­mæti þess að eiga hóp fastra við­skipta­vina, eins og til dæmis áskrif­enda að sjón­varps­þjón­ustu Stöðvar 2.

Ástæða þess að verið er að færa niður við­skipta­vild­ina er sú að virð­is­rýrn­un­ar­próf komst að þeirri nið­ur­stöðu að færa þyrfti þá vild sem skap­að­ist við kaup Sýnar á ákveðnum eignum og rekstri 365 miðla í lok árs 2017 um áður­nefnda upp­hæð, 2,5 millj­arða króna.

Eftir nið­ur­færsl­una er við­skipta­vild Sýnar 8,1 millj­arður króna. Í árs­lok 2017, þegar búið var að sam­eina keyptar ein­ingar úr 365 miðlum við rekstur Sýnar, var 12,2 millj­arðar króna. Þar af nam keypt við­skipta­vild, sem fylgdi eign­unum úr 365, 6,4 millj­örðum króna.

Vert er þó að taka fram að 12,2 millj­arða króna við­skipta­vildin byggði á bráða­birgða­tölum. Þær voru upp­færðar ári síðar og end­an­leg tala var 10,6 millj­arðar króna. Sú virð­is­rýrnun sem til­kynnt var um í dag er því eina rýrnin á við­skipta­vild sem ráð­ist hefur verið í vegna fjöl­miðla­kaupa Sýnar.

Keyptu fjölmiðla á milljarða

Sýn varð til þegar Fjar­­­skipti, móð­­­ur­­­fé­lag Vodafone á Íslandi, breytti nafni sínu á aðal­­­fundi sínum í mars 2018. Nokkrum mán­uðum áður, nánar til­­­­­tekið í des­em­ber 2017, höfðu Fjar­­­skipti sam­einað fjöl­miðla­­­starf­­­semi inn í rekstur félags­­­ins sem fól í sér meðal ann­­­ars Stöð 2, Stöð2 Sport, Vísi, Bylgj­una, FM957 og Xið 977. Mið­l­ana höfðu Fjar­­­skipti keypt af 365 mið­l­­­um. Nafna­breyt­ingin var fram­­­kvæmd svo að heitið væri meira lýsandi fyrir starf­­­semi hins sam­ein­aða félags.

365 miðlar fengu greitt fyrir með 10,92 pró­sent hlut í Sýn, tæp­lega 1,6 millj­arði króna í reiðufé auk þess sem Sýn tók yfir 4,6 millj­arða króna af vaxta­ber­andi skuldum. Eigendur 365 miðla, sem eru félög tengd Ingi­björgu Pálma­dóttur, seldu eign­ar­hlut­inn sinn í Sýn í októ­ber í 2018 á tvo millj­arða króna. Því má segja að þeir hafi fengið um 3,6 millj­arða króna í reiðufé út úr söl­unni auk þess sem Sýn tók yfir 4,6 millj­arða króna af skuldum 365 miðla. Sam­an­lagt er kaup­verðið sam­kvæmt því um 8,2 millj­arðar króna.

Tekjur af fjölmiðlum minnka

Síðan þá hefur rekstur Sýnar ekki gengið sem skyldi, og þau áhrif sem kaupin á fjöl­miðl­unum áttu að hafa á rekstur félags­ins ekki orðið. Fjöl­miðla­rekst­ur­inn hefur reynst erf­ið­ari en lagt var upp með og áætl­anir hvað hann varðar hafa ekki stað­ist.

[adspot][Af tekju­straumum Sýnar hafa tekj­urnar til að mynda minnkað mest í fjöl­miðla­hluta félags­ins, sem er stærsta tekju­stoð þess. Alls voru tekjur vegna fjöl­miðla Sýnar 6,3 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 sem er 230 millj­ónum krónum minna en á sama tíma­bili árið áður. Þar af lækk­uðu tekj­urnar á þriðja árs­fjórð­ungi, sem hófst í júlí og lauk í lok sept­em­ber, um 144 millj­ónir króna.

Til að rétta af þessa stöðu hafa átt sér stað tölu­verðar breyt­ingar á fjöl­miðla­hluta Sýnar und­an­farin miss­eri og þekktu dag­skrár­gerð­ar­fólki sagt upp störf­um. Félagið missti auk þess rétt­inn af sýn­ingu á enska bolt­anum yfir til sam­keppn­is­að­il­ans Sím­ans fyrir yfir­stand­andi tíma­bil, sem hófst á þriðja árs­fjórð­ungi, sem hafði veru­leg áhrif á tekjur Sýnar af fjöl­miðla­rekstri.

Heildartekjur dragast saman

Tekjur Sýnar á fyrstu níu mán­uðum síð­asta árs voru 14,9 millj­arðar króna, sem er 454 millj­ónum krónum lægri tekjur en félagið hafði á sama tíma­bili árið 2018. Hagn­aður Sýnar fyrir fjár­magns­gjöld, afskriftir og skatta var 4,1 millj­arður króna og lækk­aði um 153 millj­ónir króna á milli ára.

Hagn­aður Sýnar var hins veg­ar 384 millj­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019. Lyk­ilá­­­­stæða þess að Sýn skil­aði hagn­aði er að á fyrsta árs­fjórð­ungi var bók­­­­færður sölu­hagn­aður vegna sam­runa P/F Hey, dótt­­­­ur­­­­fé­lags Sýnar hf. í Fær­eyjum og Nema, dótt­­­­ur­­­­fé­lag Tjaldurs, gekk í gegn á fjórð­ungnum og er 49,9 pró­­­­sent hlutur Sýnar hf. í nýju sam­ein­uðu félagi færður sam­­­­kvæmt hlut­­­­deild­­­­ar­að­­­­ferð og því ekki hluti af sam­­­­stæð­u­­­­reikn­ings­skilum Sýnar hf. frá byrjun árs 2019. Alls nam bók­­­­færður sölu­hagn­aður vegna þessa 817 millj­­­­ónum króna.

Án þessa bók­færða sölu­hagnað vegna þeirrar sölu væri tap Sýnar á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 433 millj­ónir króna. Til sam­an­burðar skil­aði félagið 326 milljón króna hagn­aði á sama tíma­bili 2018.

Samkvæmt bráða­birgða­upp­gjöri Sýnar fyrir árið 2019 í heild mun EBITDA-hagn­aður félags­ins (hagn­aður fyrir fjár­magns­gjöld, afskriftir og skatta) vera nálægt 5,5 millj­örðum króna og tekjur Sýnar í heild vera um 19,8 millj­arðar króna.

Samkvæmt því munu tekjur Sýnar á síð­asta ári verða 2,2 millj­örðum krónum lægri en þær voru árið 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár