Svanhildur Nanna og Guðmundur selja allan hlutinn sinn í VÍS

Þriðji stærsti eig­and­inn í VÍS hefur selt allan hlut sinn á tæp­lega 1,6 millj­arða króna. Er líka á meðal stærstu eig­enda í Kviku. Eig­end­urnir eru til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara.

Félagið K2B fjár­fest­ingar ehf., sem var þriðji stærsti eig­andi trygg­inga­fé­lags­ins VÍS með 7,25 pró­sent hlut, hefur selt allt hlutafé sitt í félag­inu fyrir tæp­lega 1,6 millj­arð króna. Eigandi félags­ins er Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir og Guð­mundur Örn Þórð­ar­son.

[links]Svan­hildur Nanna hefur setið í stjórn VÍS og var um tíma stjórn­ar­for­maður félags­ins, en vék úr því sæti í fyrra þegar greint var frá því að hjónin væru til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir meint umboðs­svik, meint skatt­svik, mögu­leg mútu­brot og brot á lögum um pen­inga­þvætti þegar olíu­fé­lagið Skelj­ungur og tengd félög voru keypt og seld á árunum 2008 til 2013. Við brot­unum getur legið allt að sex ára fang­els­is­vist.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er það mál enn í rann­sókn þótt hún sé langt komin. Því má búast við því að ákvörðun um hvort að gefin verði út ákæra í mál­inu verði tekin í nán­ustu fram­tíð.

[adspot]K2B fjár­fest­ingar ehf. er einnig á meðal stærstu eig­enda Kviku banka, en félagið á 6,86 pró­sent í honum. Guð­mundur situr í stjórn Kviku í krafti þess eign­ar­hlutar. Auk þess á félagið hlut í Korta­þjón­ust­unni.

Eignir K2B fjár­fest­inga voru alls tæp­lega 3,7 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Lang­tíma­skuldir þess voru engar og eigið fé því sama upp­hæð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár