Mikil einföldun hjá Rio Tinto að tengja stöðuna eingöngu við raforkuverð

For­stjóri Lands­virkj­unar segir að það sé ekki byrjað að ræða breyt­ingar á því verði sem álverið í Straums­vík greiðir fyrir raf­magn sam­kvæmt gild­andi raf­orku­sölu­samn­ingi.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, segir að það sé mikil ein­földun hjá Rio Tinto, eig­anda álvers­ins í Straums­vík, að tengja stöðu mála í rekstri þess ein­göngu við það raf­orku­verð sem það greiðir til Lands­virkj­unar.

Vitað hafi verið í nokkurn tíma að þróun á mörk­uðum fyrir ál og rekstr­ar­vandi álvers­ins gerði stöðu Rio Tinto á Íslandi erf­iða. „Þess vegna höfum við ákveðið að setj­ast niður með þeim og skoða þeirra stöðu. En ég tel það mikla ein­földun að tengja þessa stöðu ein­göngu við raf­orku­verðið. Það eru miklu stærri áhrifa­valdar henni tengdir. Til dæmis álverð á heims­mark­aði, verð­þróun á þeirri vöru sem álverið fram­leiðir, hátt súráls­verð og það að missa út þriðj­ung af starf­sem­inni í fyrra.“

Þar vísar Hörður í að slökkt var á einum af þremur kerskálum álvers­ins í Straums­vík eftir að svo­kall­aður ljós­bogi mynd­að­ist. Það orsak­aði umtals­vert tekju­tap.

[adspot]Í jan­úar síð­ast­liðnum var greint frá því að álverið muni draga úr fram­leiðslu sinni um 15 pró­sent á árinu vegna erf­iðrar stöðu á álmörk­uðum erlendis, en álverð lækk­aði um alls tíu pró­sent í fyrra.

Á for­síðu Morg­un­blaðs­ins í dag birt­ist frétt um að for­svars­menn Rio Tinto hafi fundað með Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vegna þess að þeir meti sem svo að raf­orku­samn­ing­ur­inn frá 2010 „þrengi svo að starf­sem­inni að ekki verði við unað.“ Skömmu síðar birt­ist til­kynn­ing á vef Rio Tinto á Íslandi að til greina komi að loka álver­inu.

Ekkert byrjað að ræða um lægra verð

Gildandi raf­orku­samn­ingur Lands­virkj­unar og álvers­ins í Straums­vík var gerður í júní 2010. Hann gildir til árs­ins 2036 og um er að ræða fyrsta samn­ing­inn sem Lands­virkjun gerði við álf­ram­leið­anda hér­lendis þar sem að teng­ing við álverð var afnumin. Með því færð­ist mark­aðs­á­hættan af þróun á álmark­aði frá selj­and­anum yfir á kaup­and­ann.

[links]Í til­kynn­ing­unni Rio Tinto frá því í morgun segir að fyr­ir­tækið vilji leita leiða til þess að bæta sam­keppn­is­stöðu álvers­ins, en að gert sé ráð fyrir því að rekstur þess verði áfram óarð­bær til skemmri tíma sökum ósam­keppn­is­hæfs orku­verðs og lágs verðs á áli í sögu­legu sam­heng­i.

Rio Tinto seg­ist nú leita allra leiða til að gera álverið arð­bært og sam­keppn­is­hæft á alþjóða­mörk­uð­um, meðal ann­ars með sam­tali við stjórn­völd og Lands­virkj­un. Það sam­tal snýst um að reyna að lækka raf­orku­verð sem samið var um í nýjum samn­ingum sem gerðir voru árið 2010.

Aðspurður hvort að til greina komi að lækka verðið, eða eftir atvikum gera aðrar breyt­ingar á raf­orku­samn­ingnum, segir Hörður að það sé ekki byrjað að fjalla um það. Það sé í gildi raf­orku­samn­ingur og að óbreyttu gildi hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

straumsvík

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár