Telur raforkusamninginn við Rio Tinto sanngjarnan

Lands­virkjun hefur sent frá sér til­kynn­ingu þar sem fram kemur að aðstæður á álmörk­uðum séu mjög krefj­andi og að fyr­ir­tækið eigi nú í sam­tali við Rio Tinto.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Lands­virkjun á nú í sam­tali við Rio Tinto, eig­anda álvers­ins í Straums­vík, en fyr­ir­tækið til­kynnti í morgun að það ætl­aði að hefja „sér­staka end­ur­skoðun á starf­semi álvers­ins í Straums­vík til að meta rekstr­ar­hæfni þess til fram­tíð­ar­.“

[links]Í til­kynn­ingu frá Lands­virkjun kemur fram að aðstæður á álmörk­uðum séu mjög krefj­andi um þessar mundir, meðal ann­ars út af lágu álverði, minni eft­ir­spurn og mik­illi fram­leiðslu­aukn­ingu í Kína und­an­farin ár. „Einnig hefur álverið í Straums­vík lent í rekstr­ar­erf­ið­leikum sem hefur meðal ann­ars haft áhrif á afkomu þess.“

Þá segir að Lands­virkjun og álverið í Straums­vík hafi átt í far­sælu og löngu við­skipta­sam­bandi frá stofnun. Núgild­andi raf­orku­samn­ingur milli Lands­virkj­unar og Rio Tinto hafi verið í gildi síðan 2010.

Sýna því skilning að aðstæður séu krefjandi

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, segir að þau hjá Lands­virkjun sýni því skiln­ing að aðstæður fyr­ir­tæk­is­ins séu krefj­andi og eigi þau í sam­tali við Rio Tinto til þess að fá sam­eig­in­lega sýn á stöðu mála. „Við höfum sagt og teljum áfram að raf­orku­samn­ing­ur­inn sé sann­gjarn fyrir báða aðila og að það séu fleiri þættir en raf­orku­verðið sem hafa áhrif á þeirra stöðu en þetta erum við að greina nánar í sam­ein­ingu,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár