Rio Tinto íhugar að loka álverinu í Straumsvík

Eigendur álvers­ins í Straums­vík segja að raf­orku­verð á Íslandi sé ekki sam­keppn­is­hæft og boða end­ur­skoðun á starf­semi vers­ins. Til greina komi að loka álver­inu.

Rio Tinto, sem á álverið í Straums­vík, ætlar að hefja „sér­staka end­ur­skoðun á starf­semi álvers­ins í Straums­vík til að meta rekstr­ar­hæfni þess til fram­tíðar“.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á heima­síðu félags­ins. Í fyr­ir­hug­aðri end­ur­skoðun verða allar leiðir skoð­aðar, þar á meðal frek­ari fram­leiðslu­minnkun og mögu­lega lokun. End­ur­skoð­un­ar­ferl­inu verður lokið á fyrri helm­ingi árs 2020.

Í til­kynn­ing­unni segir að Rio Tinto vilji leita leiða til þess að bæta sam­keppn­is­stöðu álvers­ins, en að gert sé ráð fyrir því að rekstur þess verði áfram óarð­bær til skemmri tíma sökum ósam­keppn­is­hæfs orku­verðs og lágs verðs á áli í sögu­legu sam­hengi.

Rio Tinto seg­ist nú leita allra leiða til að gera álverið arð­bært og sam­keppn­is­hæft á alþjóða­mörk­uðum, meðal ann­ars með sam­tali við stjórn­völd og Lands­virkjun. Það sam­tal snýst um að reyna að lækka raf­orku­verð sem samið var um í nýjum samn­ingum sem gerðir voru árið 2010.

[adspot]Alf Barrios, for­stjóri Rio Tinto Alu­minium, segir í til­kynn­ingu á vef félags­ins, að fram­lag álvers­ins til íslensks efna­hags­lífs sé umtals­vert og félagið muni vinna náið með þeim sem eiga gagn­kvæma hags­muni að því að treysta fram­tíð þess. Þar með talið rík­is­stjórn Íslands, Lands­virkjun, starfs­fólki, stétt­ar­fé­lögum og sveit­ar­fé­lögum.

Vegna tap­rekstrar hefur fram­leiðsla álvers­ins í Straums­vík þegar verið minnkuð í 85 pró­sent af afkasta­getu álvers­ins. Áætluð fjár­hags­leg áhrif þess á tekjur Lands­virkjun, sem selur því raf­magn, er tekju­minnkun um 2,5 millj­arða króna á ári. Álverið er að fullu í eigu Rio Tinto og þar starfa um 500 manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár