Súrrealískur Tyrfingur – djarfur og áleitinn!

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Helgi Þór rofnar eftir Tyrfing Tyrf­ings­son.

Borgarleikhúsið: Helgi Þór rofnar

Höfundur: Tyrf­ingur Tyrf­ings­son

Leik­stjóri: Stefán Jónsson

Leikmynd: Grétar Reyn­is­son

Búningar: Stefanía Adolfs­dóttir

Lýsing: Pálmi Jónsson

Tónlist: Magnús Jóhann Ragn­ars­son

Myndband: Elmar Þór­ar­ins­son

Leik­gervi: Margrét Bene­dikts­dóttir

Hljóð­mynd: Garðar Borg­þórs­son

Leik­endur: Hilmar Guð­jóns­son, Þuríður Blær Jóhanns­dóttir, Bergur Þór Ing­ólfs­son, Hjörtur Jóhann Jónsson, Erlen Isabella Ein­ars­dóttir, Kári Gíslason.

Enn og aftur má segja að Tyrf­ingur Tyrf­ings­son hafi komið, séð og sigrað. Enn og aftur lætur hann frá sér fara sögu sem er stærri en sögu­efnið; Helgi Þór rofnar er kómísk tra­gedía – kómísk af því Tyrfingi tekst að bregða ljósi fárán­leik­ans á per­sónur sínar, tragísk af því hann lætur þær mæta örlögum sínum, taka afleið­ingum af for­tíð­inni og vera of mátt­vana til að bregða útaf viðjum van­ans, sem iðu­lega snýst um und­an­láts­semi og með­virkni. Þetta gerir Tyrf­ingur fremur áreynslu­laust, saga hans rennur lið­lega að ósi og flest ef ekki allt er rök­rétt og skilj­an­legt, áhuga­vert, kitlandi, ögrandi. Þótt Tyrf­ingur ýti per­sónum sínum út á ystu nöf þá þykir honum vænt um þær, manns­sýn hans er húmanísk og upp­full af skiln­ingi. Það er ekki lít­ils virði fyrir íslenska leik­ritun og leik­list­ar­menn­ingu að hafa fengið slíkan liðs­mann sem Tyrfing!

Helgi Þór rofnar er fimmta verk Tyrfings Tyrf­ings­sonar sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu; hin fyrri voru Skúrinn á slétt­unni, Bláskjár, Aug­lýs­ing árs­ins og Kart­öflu­æt­urnar. Það er svo einnig ánægju­efni að þessi verk eru óðum að rata á leik­svið hér og þar í Evrópu; útrás íslenskra leik­skálda er að kom­ast í end­ur­nýjun líf­daga í sam­ræmi við það sem áður var, þegar Jóhann Sig­ur­jóns­son og Guð­mundur Kamban voru uppá sitt besta. Seint verður þó Tyrf­ingur sak­aður um að líkj­ast þeim sem skáld, hvað þá að heims­sýn – Tyrf­ingur er barn okkar tíma og hikar ekki við að rýna í það myrkur sem við okkur blasir þegar við lyftum brúnum og lítum okkar heimskringlu. Helgi Þór rofnar er síst und­an­tekn­ing frá því.

Sjálf leik­myndin verður að áhrifa­ríkri yrð­ingu – hér er sitt hvoru megin á svið­inu lík­brennslan til vinstra, og bak­aríið til hægri. Tveir ofnar líkt og loka fyrir sviðs­rýmið hvor sínu megin, lík­brennslu­ofn­inn og bak­ara­ofn­inn, þar sem annar táknar dauða, hinn líf. Skemmti­legar and­stæður og skarp­ari ger­ast þær varla. Grétar Reyn­is­son hefur hannað hag­an­lega og vel nýt­an­lega leik­mynd þar sem allt ger­ist innan ramma, sem umlykur sviðið á milli sviðs og áhorf­enda. Bak­vegg­ur­inn er svo ekki allur þar sem hann er séður; þegar honum er hnikað til verður rýmið órætt og per­són­urnar geta átt inn- og útkomur eftir þörfum. Lýsing er hug­vit­sam­leg og í sam­ræmi við sög­una; hið sama gildir um bún­inga og gervi. Það er í raun sama hvert litið er, Stefán Jónsson leik­stjóri hefur unnið sitt verk af vand­virkni og list­rænni smekk­vísi og úr verður ákaf­lega heil­steypt og vönduð sýn­ing sem allir aðstand­endur mega vera stoltir af.

[adspot]Sagan snýst um Helga Þór, sem starfar í lík­brennslu- og lík­snyrti­stofu föður síns. Hann er í upp­hafi leiks að stússa yfir líki sem stendur til að jarða þegar dóttir líks­ins, Katrín, birt­ist til að kynn­ast þessum föður sínum, sem hún hefur reyndar mátu­legan áhuga á þegar allt kemur til alls. Hins vegar kvikna til­finn­ingar milli Helga Þórs og Katrínar, þau hafa hist áður og farið vel á með þeim. En Helgi Þór í allt ann­ars konar sam­bandi við föður sinn, það byggir á kúgun og and­legu ofbeldi sem lýsir sér meðal ann­ars í því þegar fað­ir­inn birt­ist og spúir hrylli­legum spá­dómum yfir þau skötu­hjúin.

Þetta er súr­r­eal­ískt eins og vænta má af Tyrfingi og hér er teflt saman and­stæðum af alls konar tagi – en fyrst og fremst eru það and­stæður lífs og dauða. Persónur verks­ins lúta örlögum sínum og fá þau ekki umflúið. Þetta er rétt eins og í klass­ískum grískum harm­leik, nema þessi ger­ist í iðn­að­ar­hverfi í Kópavogi, þar sem sam­ein­ast um hús­næðið lík­brennsla og lík­snyrti­stofa Jóns, föður Helga Þórs, og bak­arí hins nafn­lausa bak­ara – en reyn­ist vera hvort tveggja, fyrrum ást­maður Helga Þórs og elsk­hugi móður hans. Þetta er auð­vitað bæði súr­r­eal­ískt og bráð­fyndið og má skoða eins tákn­rænum skiln­ingi og vill – en auð­vitað gæti eng­inn nema Tyrf­ingur látið sér detta í hug að bak­ari og lík­snyrtir gætu verið slíkt par sem hefði eitt­hvað að segja áhorf­anda um lífið og veru­leik­ann. En þannig er það í hug­ar­heimi Tyrfings – Kópa­vogur er hin fasta stærð, allt annað er reikult, óvænt og óvið­jafn­an­legt.

Helgi Þór er leik­inn af Hilmari Guð­jóns­syni, sem sannar hér enn og aftur hví­líkt vald hann hefur á gam­an­leik sem ber öll merki traustrar hefðar en hefur engu að síður það yfir­bragð sem Hilmar einn býr yfir. Hann er, eins og flestir bestu gam­an­leik­arar sög­unnar, full­kom­inn „und­er­dog“ eða minni­poka­maður – hann er sá, sem öllum leyf­ist að lúskra á og kúga, hvort sem það er fað­ir­inn eða ást­mað­ur­inn fyrr­ver­andi, og hann á sér engrar við­reisnar von fyrr en eitt­hvað það ger­ist í lífi hans sem hann hefur aðeins þorað að dreyma um. Hér er það Katrín, leikin af Þuríði Blæ Jóhanns­dóttur, sem kveikir þá von að draum­ur­inn geti ræst; hún er stúlkan sem Helgi Þór hitti fyrir nokkru og þau áttu sér eins konar ham­ingju­stund sem birt­ist okkur í formi mynd­bands. Nú birt­ist hún á lík­brennslu­stof­unni, full af lífi, fjöri og seið­andi þokka til að líta á föður sinn lát­inn, sem Helgi Þór er að snyrta fyrir jarð­ar­för­ina. Og Helgi Þór lifnar við; atriðin milli þeirra tveggja ein­kenn­ast af feg­urð og von – en eins og í klass­ískum ást­ar­sögum er þessum fal­legu elskendum ekki skapað nema að skilja.

Adam var nefni­lega ekki lengi í Paradís og svipað má segja um Helga Þór bless­aðan. Faðir hans læð­ist að honum rétt eins og orm­ur­inn forðum og kveður gleði hans niður með voveif­legum spá­dómi. Og spá­dóm­ur­inn nær tökum á Helga Þór og verður eins og spá­dómar gjarnan verða – að áhríns­orðum. Meira skal ekki sagt um það, en vissu­lega er ekki annað hægt en fylgj­ast með Helga Þór mæta örlögum sínum með spenn­ingi.

Helgi Þór verður í með­förum Hilmars að áhuga­verðri per­sónu – Hilmar tengir saman á rök­réttan og trú­verð­ugan hátt þá kúgun sem hann býr við af hendi föð­ur­ins og þann lífs­kraft sem með honum vaknar í sam­skiptum hans við hina til­finn­inga­lega firrtu Katrínu. Þegar þess er gætt að texti Tyrfings er næsta súr­r­eal­ískur og á köflum ekki nema tæpt á hvað hugs­ast getur verið orsök og afleið­ing í karakter Helga Þórs, verður afrek Hilmars þeim mun magn­aðra og óhætt að segja að hann vinni hér fræki­legan leik­sigur. Það hlýtur að vera óhætt að ljóstri því upp hér að aldrei hefur slag­ar­inn vin­sæli, sem tröll­reið óska­lögum sjúk­linga og sjó­manna um langa hríð á öld­inni sem leið, verið fluttur jafn eft­ir­minni­lega og Hilmar gerir í hlut­verki Helga Þórs. Það atriði eitt er gull­korn sem lifir.

[adspot]Þuríður Blær fylgir Hilmari fast á eftir og svipað má segja um bak­ar­ann, sem í með­förum Hjartar Jóhanns verður bæði ísmeygi­legur og and­styggi­legur – og alveg ómót­stæði­legur! Faðirinn, kúg­ar­inn og and­legi ofbeld­is­mað­ur­inn er leik­inn af Bergi Þór Ing­ólfs­syni sem mætti draga úr mestu lát­unum – það hefur einatt verið sagt um vonsk­una og grimmd­ina að þegar hún er á lágu nót­unum er hún hvað hættu­leg­ust og spurn­ing hvort ekki hefði farið betur á því hér. Erlen Isabella Ein­ars­dóttir birt­ist sem hávaða­söm stúlka í tveimur inn­komum og gerir það vel, sam­kvæm sjálfri sér í frekj­unni og yfir­gang­inum.

Það er full ástæða til að hvetja fólk að sjá verk Tyrfings Tyrf­ings­sonar, Helgi Þór rofnar. Það er djarft, áleitið og vel skrifað, sýn­ingin öll hin hag­an­leg­asta undir styrkri stjórn Stefáns Jóns­sonar og leik­hóp­ur­inn skilar þess­ari sögu um teng­ingu nútíma­manns­ins við sjálfan sig og aðra. Hér er ekk­ert dregið undan og það má vel skoða verkið sem spé­spegil um okkur, sem sitjum í salnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár