„Ábyrgðin er hjá Reykjavíkurborg“

Forseti ASÍ seg­ist hafa fengið fyr­ir­spurnir um það hvort hún styðji verk­fall starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar sem eru í Eflingu. Hún segir að fyrir henni sé spurn­ingin fárán­leg. Hún styðji skil­yrð­is­laust gras­rót­ar­bar­áttu launa­fólks fyrir bættum kjörum.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að hún styðji skil­yrð­is­laust gras­rót­ar­bar­áttu launa­fólks fyrir bættum kjörum en hún hefur fengið fyr­ir­spurnir um það hvort hún styðji verk­fall Eflingar sem nú stendur yfir. „Það er kjarni verka­lýðs­bar­áttu að valdið sé nálægt félags­mönnum, fólk hafi skil­yrð­is­lausan rétt til að skipu­leggja sig í verka­lýðs­fé­lög og beita verk­föllum í kjara­deilu,“ skrifar hún.

Rúm­lega 1.800 félags­menn Efl­ingar sem starfa hjá borg­inni fóru í verk­fall á hádeg­inu á dag sem mun standa til mið­nættis. Næsti fundur í kjara­deil­unni er boð­aður klukkan þrjú á morgun. Verk­­fallið mun hafa mest áhrif á leik­­skóla- og vel­­ferð­­ar­­þjón­­ustu á vegum Reykja­vík­­­ur­­borgar auk sorp­­hirðu, vetr­­ar­­þjón­­ustu og umhirðu borg­­ar­lands­ins.

Starfs­fólk Efl­ingar telur um 1.850 af um 9.000 starfs­mönnum borg­ar­inn­ar. Efl­ing­ar­fólk starfar í fjöl­breyttum störfum á 129 starfs­stöðum hjá Reykja­vík­ur­borg. Um 1.000 starfa á skóla- og frí­stunda­sviði, þar af mik­ill meiri­hluti í leik­skól­un­um. Þá starfa um 700 úr Efl­ingu við vel­ferð­ar­þjón­ustu borg­ar­inn­ar.

Félagsmenn Eflingar sýnt mikið langlundargeð

Drífa bendir á að umboð Eflingar frá félags­mönnum sé sterkt. „Við skulum líka hafa það í huga að félags­menn hafa verið kjara­samn­ings lausir í 11 mán­uði og því aug­ljóst að félagar hafa sýnt mikið lang­lund­ar­geð. Verkföll eru líka ekki bara spurn­ing um fleiri krónur í umslagið heldur krafa um virð­ingu og að jafna völdin,“ skrifar hún.

Fólk á lægstu laun­unum í Reykja­vík rísi nú upp og krefj­ist virð­ingar, að á þau sé hlustað og gengið sé til raun­veru­legra samn­inga­við­ræðna. „Ábyrgðin er hjá Reykja­vík­ur­borg!“ skrifar hún að lokum.

BSRB styður verkfallsaðgerðir Eflingar

BSRB hefur lýst yfir stuðn­ingi við yfir­stand­andi verk­falls­að­gerðir Eflingar vegna kjara­samn­ings­við­ræðna við Reykja­vík­ur­borg.

„Sjálf­stæður samn­ings­réttur er grund­vall­ar­réttur launa­fólks og verk­falls­rétt­ur­inn öfl­ug­asta vopnið í kjara­bar­átt­unni. Félags­menn í aðild­ar­fé­lögum BSRB eru hvattir til að virða verk­falls­rétt Eflingar og ganga ekki í störf félags­manna sem eru í verk­falli,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár