Völundarhús Vanja frænda

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Vanja frænda eftir Anton Tsjekhov sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu.

Borgarleikhúsið: Vanja frændi

Höfundur: Anton Tsjekhov

Þýðing: Gunnar Þorri Pét­urs­son

Leik­stjóri: Bryn­hildur Guð­jóns­dóttir

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Filippía I. Elís­dóttir

Lýsing: Björn Berg­steinn Guð­munds­son

Tónlist: Bjarni Frímann Bjarna­son

Leik­gervi: Elín Sigríður Gísla­dóttir

Hljóð: Þórður Gunnar Þor­valds­son

Leik­endur: Jóhann Sig­urð­ar­son, Unnur Ösp Stef­áns­dóttir, Katrín Halldóra Sig­urð­ar­dóttir, Sigrún Edda Björns­dóttir, Valur Freyr Ein­ars­son, Hilmir Snær Guðnason, Halldór Gylfason, Margrét Helga Jóhanns­dóttir, Arnar Dan Krist­jáns­son.

Vanja frændi er eitt af fjórum höf­uð­verkum Antons Tsjek­hovs, hin eru Máfurinn, Þrjár systur og Kirsu­berja­garð­ur­inn; það er óum­deilt að þessi fjögur verk njóta sér­stöðu í vest­rænni leik­list­ar­menn­ingu og eru þar af leið­andi sett upp reglu­lega af leik­húsum um allan hinn vest­ræna heim. Þá nýtur fyrsta leik­rit hans, Platonov, einnig nokk­urra vin­sælda og er þá ekki minnst á nokkra ein­þátt­unga hans, sem einnig er hampað og svo smá­sögur hans.

Það fer að mörgu leyti vel á að taka Vanja frænda til sýn­inga nú – verkið talar á ýmsan hátt til okkar sam­tíma og nægir að nefna umhverf­isum­ræð­una sem Astrov læknir stendur fyrir þegar hann vill ganga í augun á hinni fögru Jelenu með því að sýna henni upp­drætti sína af þróun gróð­ur­fars í sveit­inni. Þetta atriði gæti nán­ast verið skrifað nú, en ekki fyrir rúmum eitt­hund­rað árum og segir það eitt sitt­hvað um hversu for­spár Tsjekhov var og sá fyrir um margt það sem öðrum var hulið og þá má ekki síst þreifa á þessum eig­in­leika skáld­skapar hans þegar kemur að hinu mann­lega eðli – en hann náði, ásamt þeim Ibsen og Strind­berg að lýsa hinn nýju félags­veru sem mað­ur­inn í vest­rænum heimi var óðum að breyt­ast í.

[adspot]En án þess farið sé út í víð­tækan sam­an­burð á þessum þremur risum vest­rænnar leik­rit­unar um alda­mótin 1900, má segja að þar sem Ibsen og Strind­berg fjalla um nútíma og stöðu per­sóna sinna í honum, eru per­sónur Tsjek­hovs eru gjarnan firrtar, fastar í for­tíð sem á sínum tíma boð­aði fram­tíð sem aldrei varð.

Það var svo í Lista­leik­hús­inu í Moskvu undir stjórn föður nútíma leik­listar, Kon­stant­íns Stan­islav­skí, að leik­húsið braust úr viðjum gam­al­dags, upp­haf­ins leikstíls og náði tökum á þeim sál­fræði­lega leikstíl sem varð til þess að texti og sam­ræðu­stíll Tsjek­hovs öðl­að­ist þá dýpt og heim­speki­legu vídd sem gerði per­sónur hans líkt og af holdi og blóði, sem áhorf­endur gátu skilið og látið sér þykja vænt um. Þetta var ný teg­und af real­isma, stillt­ari og hóg­vær­ari og bar með sér meiri skiln­ing á mann­inum en áður hafði verið í leik­list­inni. Verk Tsjek­hovs fólu þar með í sér bylt­ingu sem má að sumu leyti segja að enn sjái ekki fyrir end­ann á í leik­list­ar­menn­ingu Vest­ur­landa. En á sama tíma er komið að enda­lokum gull­aldar rúss­neskra bók­mennta þegar Tsjekhov kemur fram á rit­völl­inn og ger­ist tals­maður þeirra sem sjá á bak keis­ara­veld­inu og upp­lifa hnignun þess; öld upp­lausnar og úrkynj­unar blasir við og hafi ein­hvern tím­ann verið til fram­tíð er hún end­an­lega horfin.

Þetta kann að hljóma fremur myrkt og væri það eflaust ef um væri að ræða annan höf­und en Tsjekhov – en hann er því­líkur snill­ingur að glæða per­sónur sínar slíku lífi að nán­ast hver ein­asta setn­ing sem úr munni þeirra kemur verður að dásam­legri kómík – því hvað er hægt að gera annað en skop­ast að líf­inu þegar ekk­ert er framundan, ekk­ert ger­ist, ekk­ert breyt­ist.

Vanja frændi ger­ist á sveita­setri því sem Aleksandr Vla­dimírovitsj Serebr­ja­kov (Jóhann Sig­urð­ar­son), pró­fessor á eft­ir­launum hefur erft eftir fyrri konu sína. Hann býr sjálfur í Moskvu ásamt nýrri konu sinni, hinni ungu og fögru Jelenu Andrejevnu (Unnur Ösp Stef­áns­dóttir), en sveita­setrið er rekið af dóttur hans af fyrra hjóna­bandi, Sofíu Aleksandrovnu (Katrín Halldóra Sig­urð­ar­dóttir), kölluð Sonja, og móð­ur­bróður hennar, Ívan Petr­ovitsj Vojnít­skí (Valur Freyr Ein­ars­son). Tekj­urnar af sveita­setr­inu hafa verið sendar til Moskvu og farið í uppi­hald pró­fess­ors­ins og hans nýju konu.

Ívan Petr­ovítsj Vojnít­skí er kall­aður Vanja og er sá frændi, sem leik­ur­inn er nefndur eftir. Það er því nokkuð aug­ljóst að sam­band þeirra Sonju og Vanja er í brennid­epli í þeirri sögu, sem Tsjekhov vill segja. Hann er frændi hennar. Það má þó vekja athygli á því þó ekki sé nema til gam­ans að heiti verks­ins á frum­mál­inu er „Djadja Vanja“, en „dja­dja“ er eins konar gælu­nafn barns á þeim manni sem er annað hvort móður- eða föð­ur­bróðir og á sér enga hlið­stæðu í íslensku; en notkun gælu­nafns­ins bendir þó til hvers eðlis sam­band þeirra Sonju og Vanja er – þau eru skyld, en ekki jafn­ingjar, í það minnsta ekki til­finn­inga­lega.

Á setr­inu búa einnig móðir Vanja og hinnar fyrri eig­in­konu pró­fess­ors­ins, María Vasí­levjna Vojnít­skaja (Sigrún Edda Björns­dóttir) og fóstran gamla, Marína (Margrét Helga Jóhanns­dóttir); þá koma einnig við sögu Míkhaíl Lvovítsj Astrov, læknir (Hilmir Snær Guðnason) og Ílja Íljítsj Teljegín, kall­aður Vaffla (Halldór Gylfason), eigna­laus óðals­bóndi. Jefim, vinnu­manni (Arnar Dan Krist­jáns­son), bregður fyrir af og til.

Það er aug­ljóst að í slíkum hópi, þar sem ættar- og fjöl­skyldu­tengsl og stétt­ar­staða eru eins fjöl­breyti­leg og á köflum flókin, má finna efni í heil­mikið drama. Og dra­mað fer af stað um leið og tvennt ger­ist: Pró­fess­or­inn kemur ásamt hinni ungu fögru eig­in­konu sinni til dvalar á sveita­setr­inu og til­kynnir þar eftir nokkra dvöl að hann hyggst selja setrið enda lítið á því að græða; þá veldur nær­vera hinnar fögru Jelenu því að Astrov læknir fer á fjörur við hana, Sonju til mik­illar sorgar, því hún elskar lækn­inn hita og ástríðu.

Yfir allri atburða­rásinni hvílir svo hin vel­þekkta „tsjek­hovska“ ang­ur­værð sem und­ir­strikar að hér er hver ein­asta per­sóna leiks­ins röng mann­eskja á röngum stað á röngum tíma. Hér er hvergi að vænta „happy end“. En gleymum ekki því, að Tsjekhov er húmoristi, jafn­vel þótt hann hafi enga trú á lukku­legum enda­lokum. Hann er auk­in­heldur eins langt frá því að vera kald­hæð­inn og unnt er, til þess þykir honum alltof vænt um per­sónur sínar. Og hann vill að okkur þyki vænt um þær líka.

Þetta er í stuttu máli efni­við­ur­inn sem leik­stjór­inn Bryn­hildur Guð­jóns­dóttir og hennar list­ræna teymi hefur til að vinna úr til að skapa þeirra útgáfu af hug­ar­heimi Tsjek­hovs. Bryn­hildur kom, sá og sigr­aði með upp­setn­ingu sinni á Ríkharði III á síð­ast­liðnu leik­ári, þótti koma með ferska sýn á hinn valda­sjúka Ríkharð og sam­tíð hans og fékk nær ein­róma lof fyrir verk sitt.

Það er því spenn­andi að sjá, hvort hið sama sé uppi á ten­ingnum hér – er Tsjekhov gert bilt við, eða er honum kannski bylt við? Hér skal látið nægja að stað­hæfa að sýn­ing Bryn­hildar ber vitni um mikla og fölskvalausa virð­ingu fyrir Tsjekhov sem höf­undi og hug­mynda­smið. Sagan fær að njóta sín eins og hún er, og færð í bún­ing sem telja má að henti vel þeirri okkar sam­tíð sem hún er sett niður í – eins og fyrr sagði er Tsjekhov gletti­lega for­spár og fram­sýnn, sem bendir kannski til þess að mann­eskjan er sér lík, hvort sem var um þar­síð­ustu alda­mót eða alda­mótin sein­ustu, hvort sem er í rúss­neskri sveit eða íslenskri höf­uð­borg, nú, eða þá að það umbreyt­inga­skeið sem hófst með hnignun keis­ara­veld­is­ins og upp­gangi iðn­að­ar­sam­fé­lags­ins er hvergi nærri lokið enn og við erum ennþá mann­eskjur í leit að lífstil­gangi.

Þegar gengið er inn í sal Borg­ar­leik­húss­ins blasir við ein­hver feg­ursta mynd sem sá sem hér skrifar hefur séð í leik­húsi – Börkur Jónsson og Björn Berg­steinn Guð­munds­son skapa nær dul­ræna feg­urð úr þeirri hnignun sem ein­kennir allt; flekar úr brún­leitum fjölum sem lýs­ingin smýgur á milli og sem hægt er að lyfta og láta síga eftir þörfum, móta sviðs­rýmið sem getur ýmist verið úti í garði eða inn­an­dyra. Sveita­setrið er sagt stórt, her­bergin telja á þriðja tug­inn og í þess­ari leik­mynd verða þau að völ­und­ar­húsi, galopnu og lok­uðu í senn þar sem engin per­sóna virð­ist vita í raun hvar hún er stödd, hvaðan hún kemur eða hvert hún er að fara. Einu til­finn­ing­arnar sem brjót­ast um í mann­eskj­unum er for­tíð­ar­þráin, ástin og von­leysið og það er eins og þessar til­finn­ingar etji kappi hver við aðra. Fortíðin er að baki, liðin tíð sem mun aldrei koma aftur, ástin leitar án afláts í ranga höfn þar sem eng­inn er til að fagna henni, von­leysið er eig­in­lega eina til­finn­ingin sem hrósar happi með því að allt staðnar – pró­fess­or­inn hættir við að selja sveita­setrið og allt getur hrokkið í sama farið á ný.

Leik­hóp­ur­inn er sam­hentur, sam­stilltur og sam­taka um að skapa þau hug­hrif sem bera rás atburða áleiðis til enda­loka; hér skiptir máli að láta ekki hina myrku tóna ná yfir­hönd­inni, þrátt fyrir von­leysið sem ein­kennir allar per­sónur Tsjek­hovs og það er óhætt að segja, að leik­hóp­ur­inn fleyti sér áfram á öldu­toppum húmors­ins án þess að draga nokkuð úr þeim harmi sem hefur hreiðrað um sig í brjósti hvers og eins. Hópurinn er sam­stilltur og sam­hljóma, sýn­ingin er öguð og hvert smá­at­riði styður við þá meg­in­línu, sem Bryn­hildur leik­stjóri hefur markað. Og ef rýnt er í þá meg­in­línu mætti kannski segja að hún sé sú að hvað sem líður von­leysi og lítt breyt­an­legum aðstæðum erum við þó allt­ént mann­eskjur og hér leyfa mann­eskj­urnar sér þó að láta í ljósi ást og löngun hvers til ann­ars og þótt þær þreif­ingar séu klaufskar, ómark­vissar og vand­ræða­legar þá mun sá dagur rísa – ein­hvern tím­ann, von­andi! – að við rötum út úr völ­und­ar­hús­inu og lærum að taka við ást­inni og gefa hana til­baka, af því það er nú einu sinni hún sem við­heldur líf­inu, er lífið sjálft.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár