Enginn má undan líta – óviðjafnanleg sögustund í Landnámssetri

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Öxina, sögu­st­und í Land­náms­setri.

Landnámssetur: Öxin. Sögustund með Magnúsi Ólafssyni

Góðar sögur heilla. Góðir sagna­menn hrífa. Það er kunn­ari stað­reynd en frá þurfi að segja og það er sömu­leiðis alþekkt að Land­náms­setur hefur verið öðrum stofn­unum ötulla við að rækta góðan sagna­arf; þar hafa sagna­menn og konur átt sama­stað fyrir sig og áheyr­endur sína allt frá upp­hafi þess – nægir að nefna Benedikt Erlings­son og Egils sögu, Bryn­hildi Guð­jóns­dóttur og Brák, Þór Tulíníus og Þorgeir Ljós­vetn­inga­goða, Einar Kárason með ýmsar sögur, KK – og nú síð­ast Magnús Ólafsson, fyrrum bónda á Sveins­stöðum í Vatnsdal, sem segir sögu úr sinni sveit, sög­una af síð­ustu aftök­unni á Íslandi.

Góðar sögur, já, þær eru til dæmis sagðar af öllu því sem er fyrst – fyrsti land­náms­mað­ur­inn, fyrsta konan í geimnum – eða því sem er síð­ast – síð­asti ábú­and­inn í dalnum eða, eins og hér um ræðir, síð­ustu aftök­unni á Íslandi, þegar þau voru tekin af lífi, Friðrik Sig­urðs­son frá Kaldadal og Agnes Magn­ús­dóttir, fyrir morðin á Natan Ket­ils­syni og Pétri Jónssyni.

Ef leitað er á náðir leit­ar­vélar google og leitað að „síð­ustu aftök­unni“, „the last execution“, þá fer vélin víða og skilar marg­vís­legri leit­ar­nið­ur­stöðu. Það er aug­ljóst að „síð­ustu aftök­urnar“, hvar sem er í heimi, vekja for­vitni og það að vonum.

Það þarf ekki að koma á óvart að „síð­asta aftakan“, hvar í heimi sem hún kann að hafa átt sér stað, á sér stað á mörkum tveggja tíma – þeirra myrku tíma þegar aftökur voru nán­ast dag­legt brauð og not­aðar jafnt í refsi- sem for­varn­ar­skyni og þeirrar bjart­ari fram­tíðar þegar aftökur voru taldar ómann­úð­legar sem refs­ing og önnur sýn á mann­inn var að ryðja sér rúms. Slík mörk tveggja tíma eru ávallt spenn­andi; sagn­fræð­ingar leita skýr­inga á því hvað olli hug­ar­fars­breyt­ing­unni og nið­ur­stöður þeirra segja okkur efa­lítið eitt­hvað um okkar eigin tíma, því mörk tveggja tíma eru ávallt og alls staðar, og sagna­menn og -konur gera sér mat úr sög­unum og geta gjarnan í eyð­urnar þar sem sagn­fræð­ing­arnir fálma í myrkri og mega ekki, fræði­ag­ans vegna, spá í það sem ekki er skjal­fest eða sannað á annan ótví­ræðan hátt.

Síðasta aftakan á Íslandi er engin und­an­tekn­ing. Allt frá því að síð­asti blóð­drop­inn storkn­aði á aftöku­staðnum hefur aftakan sú verið milli tanna á fólki og um hana hafa síðar verið skrif­aðar skáld­sögur, gerðir þættir, fram­leiddar kvik­myndir, skrifuð leik­rit, fræði­rit og ljóð. Það munar um minna til að við­halda slíkum atburði í minn­ing­unni. Einhver kynni að telja, að með því væri efnið tæmt, en því fer víðs fjarri. Góð saga verður aldrei of oft sögð, og sagan af síð­ustu aftök­unni á Íslandi hefur að geyma ýmsa þá efn­is­þætti sem móta góða sögu og kitla áhuga almenn­ings: ást, afbrýði, for­smán, kyn­hvöt, hatur, ágirnd, mis­rétti, kúgun, vald­beit­ingu, ofbeldi ...

Og er þá fátt eitt nefnt.

Það ku vera í und­ir­bún­ingi kvik­mynd í Hollywood með aðkomu frægra og svo er um þessar mundir þekktur sögu­maður íslenskur, fyrr­nefndur Magnús Ólafsson, að flytja sína sögu um síð­ustu aftök­una í Land­náms­setr­inu í Borg­ar­nesi.

Hann hóf frum­flutn­ing sögu sinnar sunnu­dag­inn 12. jan­úar sl., á slag­inu 14.00, en þá voru liðin nákvæm­lega 190 ár síðan böð­ull­inn Guð­mundur Ket­ils­son sveifl­aði öxi sinni og hjó höf­uðin af þeim Friðrik og Agnesi á aftöku­staðnum að Sveins­stöðum í Vatnsdal.

Aftakan átti sér stað 12. jan­úar árið 1830 og það var ekki laust við að áheyr­endur Magnúsar fyndu til þessa sögu­lega and­ar­taks! Allt í einu var sem 190 ár hyrfu og áheyr­endur á Sögu­lofti Land­náms­set­urs væru hrifnir aftur í tím­ann, heill­aðir af kynn­gi­mögn­uðum sagna­krafti Magnúsar. Það var sem við værum kom­inn í hóp hinna 150 bænda sem Björn Blöndal sýslu­maður skip­aði að vera vitni að aftök­unni með orð­unum: „Enginn má undan líta!“

Magnús Ólafsson er full­trúi íslenskrar sagna­menn­ingar eins og hún ger­ist best. Lyk­il­orðið í hans sagna­list – eins og gildir raunar um íslenska sagna­list per se – er hug­takið „stað­reynd“. Honum er í mun að leggja fram hverja stað­reynd eins og hann þekkir best – sagan skal, hvað sem öðru líður vera trú­verðug, hún á að geta verið sann­ferðug, hún á að geta hafa gerst.

Íslensk sagna­mennska hefur ávallt haft þetta að leið­ar­ljósi, jafn­vel þegar hún virð­ist vera sem fjar­stæðu­kennd­ust – þegar að er gáð, er það á stundum ekki nema örlítil, vel dulin breyt­ing á sjón­ar­horni, sem gerir að verkum að trú­verð­ug­leik­inn helst og þar með galdur sög­unnar og dugar að vísa til hinnar frægu sögu um Djáknann á Myrká því til sönn­unar. Meira að segja verður það til að stað­festa trú­verð­ug­leik­ann þegar Magnúsi virð­ist líkt og óvart mis­minna um atvik og leið­réttir sig – það verður til að sann­færa áheyrand­ann enn betur um að hér segir frá sögu­maður sem vill, líkt og Ari fróði orð­aði það forðum, „hafa það sem sann­ara reynisk“. Það er ekki hægt að skjóta sterk­ari rótum í sagna­hefð­inni!

Hjá Magnúsi verður þetta nán­ast eins og leikur: hann er fæddur og upp­al­inn þar sem aftakan fór fram og hann leggur nán­ast ævi sína undir þegar hann kveðst hafa velt þess­ari sögu fyrir sér frá barns­aldri og drukkið í sig allt sem aðrir sagna­menn, sagn­fræð­ingar og sér­fræð­ingar hafa haft um málið að segja. Hann var barn að aldri þegar faðir hans og afi áttu þátt í því að grafa upp lík­ams­leifar Agnesar og Friðriks þar sem þau höfðu verið husluð á aftöku­staðnum og koma þeim í vígða mold. Hann hefur á seinni árum gerst leið­sögu­maður ferða­langa sem hafa viljað dýpka skiln­ing sinn á þeim atburðum sem þarna áttu sér stað fyrir tæpum tvö hund­ruð árum og vitna um skelfi­legan harm­leik. Þá er farið á hest­baki um Vatnsdal og Vatnsnes, skoðuð bæj­ar­stæði og aðstæður, atvikum lýst og af þeim lýs­ingum dregnar álykt­anir um hvaða hvatir kunna hafa leynst að baki gjörðum sögu­per­sóna.

Það þarf í sjálfu sér ekki að koma á óvart að Magnús Ólafsson er hallur undir þá sögu, sem Hannah Kent segir í ágætri skáld­sögu sinni, Náð­ar­stund, sem út kom 2015 og vakti mikla athygli ekki síst vegna til­urð­ar­sögu sjálfrar bók­ar­innar og nálgun Hönnuh á sögu­efn­inu, en hún var skiptinemi á Sauð­ár­króki og heyrði þá sög­una af síð­ustu aftök­unni á Íslandi. Magnús er hallur undir nið­ur­stöður Hönnuh, en þau má lesa í eft­ir­mála hennar að Náð­ar­stund, þar sem hún að síð­ustu greinir frá því að þeim ara­grúa rita sem segja frá Agnesi og Friðrik og vekur athygli á því að þótt þeim beri oft ekki saman, haldi þau þó gjarnan á lofti þeirri mynd að Agnes hafi verið „ómennsk norn sem ól á morðum“. Hannah Kent kveðst hafa skrifað sína sögu til að leiða fram margræð­ari mynd af Agnesi.

Undan því skyldi eng­inn líta – það er sú sögu­lega skylda sem hvílir á herðum okkar sem eigum þessa sögu að arfi. Þess vegna er fengur að sögu­st­und Magnúsar Ólafs­sonar á Sögu­loft­inu í Land­náms­setr­inu í Borg­ar­nesi. „Öxin“ er sagna­mennska eins og hún ger­ist sönn­ust og best og eng­inn skyldi láta hana fram­hjá sér fara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár