Ófullburða arfur – ljúf, fyndin og frábær leiklist

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Engilinn eftir Þorvald Þor­steins­son.

Þjóðleikhúsið: Engillinn. Leiksýning byggð á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar

Höfundur: Þor­valdur Þor­steins­son

Leik­stjórn, hand­rit og leik­mynd: Finnur Arnar Arnarson

Drama­t­úrg: Gréta Kristín Ómars­dóttir

Búningar: Þórunn María Jóns­dóttir

Lýsing: Ólafur Ágúst Stef­áns­son

Tónlist: Pétur Ben og Elvar Geir Sæv­ars­son

Hljóð­mynd: Kristján Sig­mundur Ein­ars­son og Elvar Geir Sæv­ars­son

Leikarar: Arndís Hrönn Egils­dóttir, Atli Rafn Sig­urð­ar­son, Baldur Trausti Hreins­son, Eggert Þor­leifs­son, Guðrún S. Gísla­dóttir, Ilmur Krist­jáns­dóttir

Þor­valdur Þor­steins­son (1960-2013) var aug­ljós­lega óvenju­lega fjöl­hæfur lista­maður sem lagði gjörva hönd á margt á stuttri ævi. Hann féll frá rúm­lega fimm­tugur og hafði þá þegar náð að halda yfir 40 einka­sýn­ingar sem mynd­list­ar­maður og taka þátt í tugum alþjóð­legra mynd­list­ar­við­burða og hlaut á þeim ferli við­ur­kenn­ingar og alþjóð­leg verð­laun fyrir fram­lag sitt til sam­tíma­mynd­listar. En hann var ekki síður afkasta­mik­ill rit­höf­undur og skrif­aði fjölda leik­verka fyrir svið, en þar munu þekkt­ust vera Skila­boða­skjóðan, sem frum­flutt var 1993 og sett upp aftur 2007 auk þess sem áhuga­fé­lög hafa tekið Skjóðuna til með­ferðar, Leitin að jól­unum sem er árviss við­burður í Þjóð­leik­hús­inu fyrir jól og And Björk, Of Course sem frum­flutt var 2002 hjá Leik­fé­lagi Reykja­víkur; en að auki skrif­aði Þor­valdur fyrir sjón­varp og hljóð­varp, m.a. örleik­rit og eins varð hann þekktur fyrir Vasa­leik­rit sín, sem flutt voru viku­lega í Rík­is­út­varp­inu vet­ur­inn 1991-92. Hann eftir sig fjölda leik­verka í fullri lengd auk hand­rita fyrir bæði sjón­varp og útvarp.

[adspot]Það er úr þessum arfi sem mynd­list­ar­mað­ur­inn og leik­mynda­hönn­uð­ur­inn Finnur Arnar Arnarson hefur sett saman sýn­ingu til að heiðra minn­ingu Þor­valdar og vekja athygli á þeim arfi sem hann lætur eftir sig. Þetta er í fyrsta skipti sem Finnur Arnar tekur að sér að semja hand­rit og leik­stýra í leik­húsi en hann er þó á heima­velli enda þekktur og marg­róm­aður hönn­uður leik­mynda. Skemmst frá að segja tekst þessi frumraun hans í hand­rits­gerð og leik­stjórn ákaf­lega vel og full ástæða til að hvetja hann til frek­ari dáða á þeim vett­vangi. Það er líka ákveðin áskorun fyrir leik­hús lands­ins að sækja inn­spýt­ingu og inn­blástur úr öðrum áttum en ein­göngu eigin ranni eða eigin hópi – í besta falli verður árang­ur­inn eins og hér er, því Eng­ill­inn er áleitið, ferskt, áhrifa­mikið leik­hús, það er hríf­andi og – það sem kannski mestu skiptir – barma­fullt af trú á lífið.

Finnur Arnar raðar saman brotum úr höf­und­ar­verki Þor­valdar og hirðir ekki um línu­lega eða rök­ræna frá­sögn. Það er vaðið úr einu í annað á ákaf­lega absúrd máta – sem er full­kom­lega í stíl við leik- og mynd­verk Þor­valdar; hann er öðrum þræði full­trúi absúr­dism­ans og má greina áhrif frá til dæmis Ionesco í sam­tölum per­sóna hans. En Þor­valdur fer eigin leiðir og þar sem absúr­distar milli­stríðs­ára Evrópu sátu fastir og komust ekki úr von­leysi sínu yfir til­vist manns­ins er Þor­valdur fremur að henda góð­lát­legt og elsku­legt gaman að því hvernig við mann­fólkið erum njörvuð í félags­leg hlut­verk okkar – hann skoðar sér­stak­lega og beinir spjótum að hvernig bún­ingar fara með fólk – reykka­f­arar, lög­regla, flug­freyja eru „bún­ingar“ sem koma fyrir í verkum hans – en hann er ekki síður hug­fang­inn af „ósýni­legu bún­ing­unum“ og hvernig við reynum stöðugt að öðl­ast sess í sam­fé­lagi manna í að því er virð­ist inni­halds­lausum, jafn­vel merk­ing­ar­lausum sam­ræðum.

En í öllum slíkum sam­ræðum felst ákveð­inn ótti við að heyra hvergi til, eiga hvergi heima, og það er kannski umfram allt sá ótti sem er við­fangs­efni Þor­valdar. Og hann tekur á þessum sammann­lega ótta af næmni og vænt­um­þykju og það er eins og í öllum hans sam­ræðum megi finna und­ir­liggj­andi stað­hæf­ingu: Ekki gef­ast upp, það er von, allt mun verða betra og þol­an­legra, bara ef mað­ur­inn þolir við, gefst ekki upp. Það er jákvæður boð­skapur, fram settur af þeirri hóg­værð sem absúr­dism­inn, fárán­leik­inn, á satt að segja til á sínum bestu stundum.

Þessi hug­ljúfi boð­skapur er fram bor­inn í hinum mis­mun­andi atriðum sýn­ing­ar­innar sem tengj­ast vel saman í leik­mynd, lýs­ingu og tón­list og hljóð­mynd allri. Og ekki síður leik! Það er langt síðan sást jafn vel slíp­aður sam­leikur og hér er og þarf ekki að fara mörgum orðum um frammi­stöðu leik­hóps­ins – hér er valin kona og val­inn maður í hverju rúmi og það er ein­fald­lega unun að því að horfa á hversu leik­gleðin og kátínan ræður ríkjum, leikstíll­inn frjáls­legur í sam­ræmi við efnið en allt vel agað og njörvað niður í heims­mynd Þor­valdar – og ekki verður betur séð en leik­hóp­ur­inn, allur sem einn, sam­sami sig þeirri heims­mynd og finni sig vel heima í henni. Enda verður ekki annað túlkað af efn­inu en Þor­valdur hafi verið húman­isti og mann­vinur af besta tagi og um leið ákaf­lega góður húmoristi með næmt auga fyrir hjá­kát­legum atvikum til­ver­unnar. Öllu þessu kemur leik­hóp­ur­inn til skila í frá­bærum sam­leik.

Það má vekja sér­staka athygli á því að allir þeir munir, sem finna má á svið­inu og heyra til leik­mynd og leik­munum eru til sölu – áhorf­endur geta keypt þá að lok­inni sýn­ingu og fengið þá afhenta að sýn­ing­ar­tíma­bili loknu. Þá er ekki síður gaman að því að í hléi er köku­basar – valið kven­fé­lag mætir með heima­bakað og það er sömu­leiðis til sölu ef áhorf­endur vilja taka með sér köku heim til að maula meðan sýn­ingin melt­ist og sest í sál­ina. Þessir gjörn­ingar – og reyndar fleiri – vísa til verka Þor­valdar jafnt í leik­list­inni sem í mynd­list­inni og verða því hluti af því „hommage“ til Þor­valdar sem Eng­ill­inn er og er vel við hæfi.

Sem fyrr segir lést Þor­valdur Þor­steins­son langt fyrir aldur fram, rétt rúm­lega fimm­tugur að aldri. Textar hans bera með sér að hann hefði örugg­lega náð mun lengra og þroskast sem leik­skáld og lista­maður, hefði honum enst aldur til. Að því leyti til er arfur hans ófull­burða og við munum aldrei fá að sjá hvaða hæðum list hans hefði hugs­an­lega getað náð. Megi það verða okkur áskorun að hefja fána hans á loft í bar­átt­unni óend­an­legu fyrir betra lífi og skemmti­legra! Þá er til ein­hvers unnið!

Eng­ill­inn er með því besta sem sjá má á fjölum leik­hús­anna um þessar mundir – ekki missa af þess­ari frá­bæru og fal­legu sýn­ingu!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár