Arion banki ræðst í kostnaðarsamar aðgerðir til að laga rekstur Valitor

Arion banki bók­færði 600 millj­óna króna kostnað vegna end­ur­skipu­lagn­ingar á Valitor á síð­asta árs­fjórð­ungi. Félagið hefur verið í miklum tap­rekstri og fjár­fest­ingar í vöru­línum ekki staðið undir vænt­ingum.

Arion banki, eig­andi greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Valitor, bók­færði 600 millj­óna króna kostnað vegna end­ur­skipu­lagn­ingar á Valitor á fjórða árs­fjórð­ungi árs­ins sem var að líða. End­ur­skipu­lagn­ing­unni er ætlað að snúa við miklum tap­rekstri sem verið hefur hjá Valitor und­an­farin miss­eri. Ákvörðun um hana var tekin af stjórn Valitor.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna þessa segir að Valitor muni greina frá inn­taki fyr­ir­hug­aðra breyt­inga innan tveggja vikna og að gert sé ráð fyrir því að þær muni breyta afkomu félags­ins í hagnað fyrir afskriftir, skatta og fjár­magnsliði. „Fjár­fest­ingar Valitor í alþjóð­legri starf­semi hafa verið umtals­verðar á und­an­förnum árum. Þessar fjár­fest­ingar hafa skilað tekju­vexti, en sala á alrás­ar­lausnum (e. omni-channel solutions), vöru­línu fyrir evr­ópsk stór­fyr­ir­tæki, hefur ekki staðið undir vænt­ingum. Þar munar mest um 6 millj­arða króna fjár­fest­ingu í alrás­ar­lausnum á tíma­bil­inu frá árinu 2014, en bók­færð óefn­is­leg eign af þessum fjár­fest­ingum nemur nú um 4,5 millj­örðum króna. Hins vegar nema ætl­aðar tekjur af lausn­inni ein­göngu um 1,1 millj­arði króna árið 2019. Áætlað er að draga veru­lega úr áfram­hald­andi fjár­fest­ingum á þessu sviði.“

Virðið lækkað um milljarða á skömmum tíma

Valitor var metið á 11,7 millj­­arða króna í bókum Arion banka í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Það er 4,1 millj­­arði króna lægri verð­miði en var á félag­inu í byrjun árs 2019.

[adspot]Tekjur Valitor dróg­ust saman um 1.240 millj­­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 þegar miðað er við sama tíma­bil árið áður, og voru tæp­­lega 3,6 millj­­arðar króna. Það var sam­­dráttur í tekjum um rúman fjórð­ung á einu ári. Munaði þar mestu um að þjón­ust­u­­tekjur dróg­ust saman um 1,2 millj­­arða króna.

Á sama tíma hafði rekstr­­ar­­kostn­aður auk­ist úr 5,9 millj­­örðum króna í tæp­­lega 7,8 millj­­arða króna, eða um 31 pró­­sent. 

Mikið tap og fækkað í framkvæmdastjórn

Tap Valitor í fyrra kom í fram­haldi af 1,9 millj­­arða króna tapi á árinu 2018. Sam­an­lagt tap fyr­ir­tæk­is­ins frá byrjun árs 2018 og til loka sept­em­ber 2019 nam því sex millj­­örðum króna. Árið 2017 skil­aði Valitor 940 milljón króna hagn­að­i.

Ein helsta ástæðan fyrir tap­inu er sú að einn stærsti við­­­skipta­vinur Valitor, Stripe, hætti færslu­hirð­ing­­­ar­við­­­skiptum sínum við Valitor um mitt ár 2018, líkt og Kjarn­inn greindi frá í mars 2018 að stæði til. Þessi ákvörðun Stripe leiddi til þess, sam­­­kvæmt afkomutil­kynn­ingu frá Valitor sem send var út í fyrra, að velta fyr­ir­tæk­is­ins flutt­ist frá Valitor sem „hafði tals­verð áhrif á vöxt tekna og við­­­skipta Valitor á árin­u.“

Hluti af tap­inu í ár er til­komið vegna þess að Valitor samdi um að greiða Datacell og Sunshine Press Productions, félagi tengt Wikileaks, 1,2 millj­­arða króna fyrr á þessu ári í skaða­bæt­­ur. Lands­bank­inn, sem er í eigu íslenska rík­­is­ins, greiddi alls 426 millj­­ónir króna af af þeim bót­­um.

Bene­dikt Gísla­­son, banka­­stjóri Arion banka, sagði í til­­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands, þegar upp­gjör þriðja árs­fjórð­ungs var birt, þar sem fjallað er um umtals­verðar nið­ur­færslur á virði eigna sem eru til sölu, að í til­­­felli Valitor sé ástæðan vegna fjár­­­fest­ingar í alþjóð­­legri starf­­semi og „gjald­­færsla kostn­aðar vegna skipu­lags­breyt­inga.“

Kjarninn greindi frá því 11. des­em­ber síð­ast­lið­inn að Valitor hefði breytt skipu­riti félags­ins og ein­faldað það þannig að fækkað er í stjórn­enda­teymi félags­ins úr tíu í fjóra. Í nýrri fram­kvæmda­stjórn Valitor sitja Robert Gray, Christine Bailey, Birkir Jóhanns­son og Viðar Þor­kels­son, for­stjóri félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár